18.12.1937
Sameinað þing: 16. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 181 í D-deild Alþingistíðinda. (2480)

91. mál, síldarmjöl til fóðurbætis

Páll Zóphóníasson:

Ég sé, að hv. form. landbn. Nd. er ekki viðstaddur, og vil ég því skýra frá því fyrir hönd landbn. Ed., að við fengum þessar tvær till. til umsagnar. Hafa þær verið ræddar í n., án þess þó, að samkomulag gæti orðið um afgreiðslu þeirra.