15.12.1937
Neðri deild: 50. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 189 í D-deild Alþingistíðinda. (2497)
84. mál, raforka frá Soginu til almenningsþarfa
Einar Olgeirsson:
Það er eitt atriði, sem ég vil benda hæstv. ráðh. á í sambandi við fyrirhugaða línu til Eyrarbakka og Stokkseyrar, sem sé að nokkur ótti er um það, að í ráði sé af hálfu nokkurra manna á Selfossi að setja upp virkjun þar, sem tvímælalaust mundi hafa slæm áhrif á línuna til Eyrarbakka og Stokkseyrar, þannig að sú lina mundi síður borga sig, et af þessu yrði. Þó hér sé ekki nema um orðróm að ræða, held ég að rétt væri, að ríkisstjórnin kynnti sér málið og hefði hönd í bagga með, svo að þarna eigi sér engin mistök stað.