12.11.1937
Efri deild: 25. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 317 í B-deild Alþingistíðinda. (291)

68. mál, lántaka fyrir ríkissjóð

*Magnús Jónsson:

Hv. 9. landsk. hefir þegar tekið fram sumt af því, sem ég ætlaði að segja. Þó að ráðstafanirnar vegna mæðiveikinnar hafi kostað mikið fé, þá er samt ekki hægt að varpa allri sökinni um hina miklu eyðslu á ríkisfénu yfir á þær. Á. m. k. ekki hinni miklu eyðslu á árinu 1935, sem hvorki er meiri eða minni en 2,6 millj. samkv. fjáraukalögunum, sem liggja fyrir þinginu. Það hlýtur óneitanlega að vera dálítið lærdómsríkt fyrir hæstv. fjmrh., að þessi útkoma skyldi verða á ríkisrekstrinum þetta ár, því að það vantaði ekki fullyrðingarnar hjá honum um það, þegar hann lagði fjárlögin fyrir þingið, að nú væri þó rétt áætlað, útkoman hlyti því að verða nokkuð önnur en að undanförnu. En sjá! Umframgreiðslurnar urðu þó hvorki meira eða minna en yfir 2½ millj. kr. Ég býst nú ekki við, að þetta sé sá eini skóli, sem hæstv. ráðh. hefir orðið að ganga í gegnum síðan hann kom í þetta virðulega embætti.

Út af því, sem ég sagði um lán ríkissjóðsins hjá Landsbankanum, sagði hæstv. ráðh., að það væri hlægileg fjarstæða, ef ríkið, sem ætti bankann, hefði ekki aðgang að honum eins og aðrir viðskiptamenn. En það er nú einu sinni svona, að það eru lög Landsbankans, sem seðlabanka, að hann má ekki lána ríkinu nema vissan hluta af stofnfé sinu, sem eru 900 þús. kr. Það er einmitt af því, að ríkið er eigandi bankans, að settar eru skorður við því, hvað mikið lán það megi taka hjá honum. Það er ekki gert ráð fyrir því, að lán þau, sem ríkið tekur í bankanum, séu yfirfærð yfir á Sparisjóðsdeildina; slíkt er talið fyrir neðan virðingu ríkissjóðs. Hinsvegar er það tekið fram í bankalögunum, að þetta ákvæði nái ekki til ríkisfyrirtækja. Þeim er að sjálfsögðu heimilt að fá lán í bankanum eins og öðrum fyrirtækjum.

Máli mínu til sönnunar, að þetta ákvæði bankalaganna sé ekki dauður bókstafur, nægir að minna á það, að ríkinu var einu sinni synjað um lán við bankann, en þá var bara farin sú krókaleið, að lánið var tekið við Búnaðarbankann, en Landsbankinn svo látinn endurkaupa víxilinn af Búnaðarbankanum. Hitt tel ég að sjálfsögðu ekki nema eðlilegt, að bankinn reyni að hliðra til og koma sem liðlegast fram við stjórnina. Annars er ekki nema gott til þess að vita, að stjórnin skuli vilja koma þessum lausu skuldum sínum í lag, koma þeim í eina heild.

Hæstv ráðh. sagði, að enda þótt ríkissjóður byrjaði með slétt borð við áramót, þá yrði hann samt að fá yfirdráttarlán við bankana. Þetta er vitanlega alveg rétt, og einmitt fyrir þær sakir er ákvæðið, sem ég minntist á, sett inn í Landsbankalögin.

Þá sagði hæstv. ráðh., að það væri ekkert við það að athuga, þó að ríkissjóður tæki innlend lán, bara að bréfin gengju vel út. Þetta er nú svona og svona rétt, því að ég býst ekki við, að hæstv. ráðh. geti neitað því, að það fé, sem fer til kaupa á ríkisskuldabréfum, sé tekið út úr viðskiptaveltu landsmanna. Lánsféð til atvinnuveganna verður minna en ella. Munurinn á þessu hér og erlendis er sá, að hér verður maður sökum fátæktarinnar að sjá eftir hverjum skilding, sem dreginn er út úr viðskiptaveltunni, en erlendis eru það gleðitíðindi, ef hægt er að binda fé á föstum vöxtum, því að það eru peningarnir, sem spyrja eftir lántakendum, en hér eru það lántakendurnir, sem spyrja eftir peningunum. Þannig er það algengt erlendis, að menn komi fé sínu til geymslu vaxtalaust. Munurinn á innlendum og erlendum lánum er því sá, að innlend lán í peningafátæku landi takmarka lánsféð til annara.

Ég mun nú að þessu sinni ekki fara út í almennar umr. um fjármál og fjármálastjórn núv. ríkisstj., enda þótt full ástæða væri til þess, þar sem lántaka þessi vottar það áþreifanlega, að fjármálunum hjá okkur hefir ekki verið stjórnað eins og vera ber á undanförnum árum. Að taka t. d. allt af lán á lán ofan til þess að greiða með lausaskuldir, sem safnast fyrir, er ekki nein sérstök fjármálaspeki.

Þá hélt hæstv. ráðh. því fram, að það væri ekkert við það að athuga, þó að tekin væru lán til þess að greiða með afborganir af föstum lánum, skuldirnar ykjust ekkert við það. Þessi fullyrðing hæstv. ráðh. er ekki rétt, því að svo framarlega sem gera má ráð fyrir, að bak við lántökur ríkissjóðs standi verðmæti, þá ber þess að gæta, að í mörgum, ef ekki flestum, tilfellum rýrnar verðmætið, verður minna virði. Minnki skuldirnar þannig ekki í hlutfalli við rýrnun þess verðmætis, sem bak við þær stendur, þá verður ei annað sagt en þær aukist í raun og veru. Hér gegnir alveg sama máli og ef maður tekur lán út á hús. Greiði hann aldrei raunverulega afborgun, jafnframt því sem húsið rýrnar sem veð, er ekki annað hægt að segja en að skuldir hans aukist sem svarar fyrningu hússins eða minnkandi verðgildi þess.

Að endingu vil ég svo undirstrika það, sem hv. 9. landsk. sagði, að sú eina heilbrigða regla, sem á að gilda í ríkishúskapnum, er vitanlega sú, að greiða hinar árlegu skuldaafborganir með tekjum hvers einstaks árs.