09.10.1937
Sameinað þing: 1. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 7 í B-deild Alþingistíðinda. (3)
Konungsboðskapur
Þá stóð upp Einar Olgeirsson, 5. þm. Reykv., og mælti:
„Lifi frelsisbarátta íslenzku þjóðarinnar.“ Tóku flokksmenn hans undir það með ferföldu húrrahrópi.
Forsætisráðherra kvaddi nú elzta þingmanninn, Ingvar Pálmason, 2. þm. S.-M., til að stjórna fundi þar til er kosinn væri forseti sameinaðs þings.
Aldursforseti gekk þá til forsetastóls og tók við fundarstjórn. Kvaddi hann sér til aðstoðar sem fundarskrifara þá Bjarna Bjarnason, 2. þm. Árn., og Magnús Guðmundsson, 9. landsk. þm.