10.11.1937
Efri deild: 24. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 329 í B-deild Alþingistíðinda. (328)

10. mál, fasteignamat

Frsm. (Bernharð Stefánsson):

Eins og sjá má á nefndaráliti fjárhagsnefndar á þskj. 97, þá ber n. fram allmargar brtt. við þetta frv. En þó að brtt. séu nokkuð margar, þá gera þær ekki verulega efnisbreyt. á frv. En orðalag frv. var að ýmsu leyti þannig, að n. taldi nauðsynlegt að orða allflestar gr. tipp. Það hefir ekki verið venja hér á Alþ. að gera sérstaklega grein fyrir orðabreyt. á frv., og ætla ég því ekki að fara nánar út í að ræða þessar till, eða gera samanburð á þeim og frv. Sumt kann vitanlega að orka tvímælis, og ræður smekkur manna þar nokkru um. D. verður að gera það upp við sig, hvort hún vill frekar aðhyllast brtt. eða frv. Það er aðeins ein brtt. n., sem felur í sér nokkra efnisbreyt. Það er 19. brtt. Í frv. var svo ákveðið, að þegar endurmat fer fram samkv. kröfu, þá skuli kostnaður við það greiðast úr ríkissjóði, nema ef aðili óskaði matsins og endurmatið leiddi til þess, að mat fasteignarinnar lækki, þá á aðili að greiða kostnaðinn sjálfur. Nú mun það vera undantekningarlítið, að endurmats er krafizt af því að aðilja þykir matið of hátt, en ekki of lágt. Það er því ekki hægt að skilja frv. öðruvísi en að það sé ætlazt til, að aðili greiði kostnaðinn sjálfur, ef krafa hans er tekin til greina. En það mun koma í bága við allar venjur, að sá, sem vinnur mál, sé látinn greiða málskostnað. N. hefir því lagt til, að um þetta yrðu höfð óbreytt ákvæði gildandi l.

Fjhn. leggur til, að frv. gangi til 3. umr. með þessum breyt., sem liggja fyrir á þskj. 97. En með því er ekki sagt, að n. mæli með því, að frv. gangi út úr d. þannig breytt, heldur hefir n. og einstakir nm. áskilið sér rétt til að koma fram með brtt. við 3. umr., eða að vera með þeim brtt., sem fram kunna að koma. Ég skal þegar geta þess, að um einstök atriði þessa frv. varð nokkur ágreiningur innan n., þó það komi ekki fram í nál., en ég geri ráð fyrir, að það komi allt fram við 3. umr.