15.11.1937
Efri deild: 27. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 332 í B-deild Alþingistíðinda. (334)

10. mál, fasteignamat

Frsm. (Bernharð Stefánsson):

Ég sé, að hv. flm. þessa frv. er ekki viðstaddur og hefi fengið upplýsingar um, að hann hafi boðað forföll frá þessum fundi. Þykir mér viðkunnanlegra, þar sem þetta er síðasta umr. í þessari d., að honum verði gefinn kostur á að taka afstöðu til þeirra till., sem liggja fyrir, og auk þess gæti þá n. athugað till., sem liggja fyrir á þskj. 121, ef málinu er frestað nú. Af þessum tveimur ástæðum, þó einkum þeirri, að hv. flm. vantar, vil. ég stinga upp á, að umr. verði frestað að þessu sinni.