06.12.1937
Efri deild: 43. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 339 í B-deild Alþingistíðinda. (363)
90. mál, útflutningsgjald af síld o. fl.
*Frsm. (Ingvar Pálmason) :
Þetta frv. fer fram á, að þeim, sem sykursalta hrogn og þorsk, verði veitt sömu fríðindi og þeim, sem sykursalta síld, þannig, að þeir fái endurgreiddan þann toll af sykrinum, sem þeir nota til þessarar sérverkunar. Sjútvn. hefir athugað frv. og lítur svo á, að þetta sé mjög sanngjarnt og sjálfsagt, af því að þetta stefnir í þá átt að létta heldur fyrir nýbreytni í verkun bæði á hrognum og þó sérstaklega á þorski. Það mun vera ný tilraun, sem gerð er til þess að linsalta og sykursalta þorsk; það hefir ekki þekkzt hér á landi áður, og þó að ekki hafi fengizt reynsla fyrir því, hvernig þetta muni gefast, þá álítur sjútvn. sjálfsagt að reyna heldur að greiða fyrir því heldur en að setja nokkurn stein í götu slíkrar tilraunar, og þess vegna leggur n. til, að frv. verði samþ. eins og það liggur fyrir.