09.12.1937
Sameinað þing: 12. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 84 í B-deild Alþingistíðinda. (48)

1. mál, fjárlög 1938

*Jóhann Jósefason:

Ég hafði flutt hér þáltill. fyrr á þinginu viðvíkjandi viðbótarfjárveitingu til Vestmannaeyjahafnar, og þeirri þáltill. var. að lokinni fyrri umr. vísað til hv. fjvn. Að því loknu sendi ég skjöl og skilríki, sem fyrir lágu frá hafnarn. í Vestmannaeyjum, til hv. fjvn. með tilmælum um, að mér gæfist kostur á að ræða við þá hv. n. um þetta mál. Ég hefi nú að vísu ekki fengið kvaðningu frá hv. n. þessu viðkomandi, en treysti því, að mér muni gefast kostur á að ræða við hana um þetta, áður en endanleg afgreiðsla á fjárl. fer fram, og skal ég því fyrir mitt leyti verða við tilmælum hv. frsm. fjvn. og taka aftur þá brtt., sem ég hefi leyft mér að bera fram um þetta atriði á þskj. 290. Sama gildir um tvær aðrar brtt. á sama þskj. Önnur þeirra er viðvíkjandi styrk búnaðarfélagsins í Vestmannaeyjum til þess að hafa kunnáttumenn í dýralækningum árlangt í Vestm. Hin er um laun yfirfiskimatsmanns í Vestm., sem árum saman hefir búið við lakari kjör en aðrir fiskimatsmenn. Þessar till. tek ég einnig aftur til 3. umr.