25.10.1937
Efri deild: 10. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 425 í B-deild Alþingistíðinda. (508)

13. mál, sauðfjárbaðanir

Frsm. (Páll Zóphóníasson):

Herra forseti! Eins og hv. þdm. munu sjá á nál., leggur n. til, að frv. verði samþ. með lítilfjörlegum breyt. Þessar breyt., sem er að finna á þskj. 38, eru að mestu leyti orðabreyt., en þó eru 3 smávægilegar efnisbreyt. Í 1. brtt. er það fellt niður, að skylt sé að tvíbaða, ef kláði kemur upp á einhverjum stað. Það getur staðið svo á, að ekki sé hægt að koma því við að tvíbaða, t. d. ef kláði kemur upp um sauðburð. Ég ætla hinsvegar, að ekki þurfi að taka neitt fram um þetta, þar sem gert er ráð fyrir, að þetta sé framkvæmt eftir ráðstöfun og fyrirsögn dýralæknis. Þetta mundi því verða framkvæmt þannig, að þar, sem ekki væri hægt að koma við 2 böðunum, yrði látið nægja með eina.— 4. brtt. en nánast leiðrétting. Í frv. stendur, að sektir skuli renna í sveitarsjóð. Það getur staðið svo á, að hér sé um bæjarsjóð að ræða, og renna þá sektirnar vitanlega í hann. Þá hefir n. lagt til, að það bráðabirgðaákvæði verði tekið upp í l., að landbrh. verði heimilað að endurgreiða þeim, sem tvíböðuðu fé sitt 1936–1937, verð baðlyfs í aðra þá böðun. Þarna er um litla upphæð að ræða; það er ekki nema í þremur sýslum, sem þetta mun koma til greina, en með þessu er þeim, sem ákvæði þetta nær til, gert jafnhátt undir höfði og öðrum. N. leggar sem sagt til, að þetta frv. verði samþ. með þeim breyt., sem hún leggur til, að verði gerðar á því.