11.12.1937
Neðri deild: 47. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 429 í B-deild Alþingistíðinda. (518)

13. mál, sauðfjárbaðanir

*Frsm. minni hl. (Jón Pálmason) :

Eins og sést á nál. landbn., hefir n. ekki orðið sammála um þetta frv. Ég og hv. 7. landsk. teljum enga þörf á nýrri löggjöf um þetta mál eins og sakir standa. Það er kunnugt, að þetta atriði er gamalt deilumál hér á Alþingi og snýst um það, hvort gerlegt sé að hugsa til að útrýma fjárkláðanum með öllu. Ég skal ekki fara langt út í þá deilu, þó hv. frsm. meiri hl. gæfi nokkuð tilefni til þess, því sá skoðunarmunur er svo glöggur, að þess gerist ekki þörf.

Eins og tekið er fram í áliti okkar hv. 7. landsk., eru til l. um þrifaböðun frá 1914, og þau eru nægileg, því að svo miklu leyti, sem þörf er á að auka við þau l., hefir ríkisstj. heimild til að setja reglugerð um þau atriði þessa máls, er l. ná ekki yfir. Einnig hefir ríkisstj. heimild til að veita undanþágu frá böðun á þeim svæðum, sem þörf krefur, eins og nú er á sýkta svæðinu. Vonandi er, að það ástand, sem á því svæði er nú, verði aðeins bráðabirgðaástand, en á meðan það varir verður ekki hægt að framkvæma baðanir á því svæði, hvorki eftir l. frá 1914 eða þessu frv., en svo framarlega sem þörf krefur að vikið sé frá l. frá 1914, þá hefir ráðh. heimild til að gera það með reglugerð. Enda munu þess dæmi, að gefin sé undanþága frá l. hér á landi, þegar sérstaklega stendur á. Hv. þm. sagði, að. í frv. væru sameinuð öll nauðsynleg ákvæði um þrifabaðanir og kláðabaðanir. Þetta er ekki rétt, því í frv. sjálfu er vísað til l. frá 1933 um kláðabaðanir, svo á því sést, að þau lög verða þó að gilda eftirleiðis. Annars er það í raun og veru aðeins eitt atriði, sem færa mætti fram til sönnunar á nauðsyn á samþ. frv., en það er, að það felur í sér ákvæði um, að ríkissjóður skuli borga baðlyf til þeirra sauðfjáreigenda, sem þurfa að láta fara fram tvöfalda böðun. Þetta hefir lengi verið í l. og ætíð verið á því hin mesta óreiða. Í fyrsta lagi hefir það verið svo, að þau baðlyf, sem stj. hefir úthlutað, hafa yfirleitt verið þau verstu, sem völ er á, en það er „Hreins kreolin“ og „Barrattssápa“, og þar að auki er vafasamt, að heppilegt sé að eyða úr ríkissjóði þessum 10–12 þús. kr. á ári í þetta kák, sem kemur ekki að neinu verulegu gagni. Og þó að ég sjái ekki ástæðu til að mæla því í gegn, að bændur fái þennan styrk til þess að kaupa baðlyf, þá er ég þeirrar skoðunar, að betra sé að verja þeim krónum meira til þeirra manna, sem fyrir mestu tjóni hafa orðið af völdum fjárpestarinnar, en láta þetta niður falla, og það er eitt af því, sem gerir það að verkum, að ég legg til, að frv. sé frestað eins og nú standa sakir.