15.12.1937
Efri deild: 50. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 449 í B-deild Alþingistíðinda. (614)
103. mál, verðlag á vörum
*Árni Jónsson:
Ég ætla aðeins að segja fáein orð um brtt. mína á þskj. 373. Hún er um það, að einn fulltrúinn af 5 í verðlagsnefnd skuli vera frá Félagi íslenzkra iðnrekenda, en ekki Landssambandi iðnaðarmanna. Ég hefi álitið réttara, að íslenzki iðnaðurinn ætti mann í þessari nefnd. Því að tilætlunin er vitanlega sú, að verðlagsákvæðin nái einnig til íslenzkra iðnaðarvara. í Félagi iðnrekenda held ég séu
flestir iðnrekendur hér á landi, eða 40–50 meðlimir. Það mun sannast, að það er fátt nauðsynlegra en að efla þennan litla iðnað, sem hér er orðinn innlendur, einkum ef við verðum að fara sömu leið og aðrar þjóðir, að búa að sinu. Það er kvartað um, að íslenzki iðnaðurinn sé ekki samkeppnisfær. Víst er það, að skilyrðin eru ekki mjög hentug. Það eru margir byrjendaörðugleikar til tafar. Þess vegna dugir ekki að gera þessari atvinnugrein rangt til. Því tei ég brýna nauðsyn til þess, að iðnrekendur eigi fulltrúa í verðlagsnefnd til að gæta sinna hagsmuna. — Á hinn bóginn geri ég ekki ráð fyrir, að verðlagsákvæðin snerti mikið framleiðslu félagsmanna í Landssambandinu. Í því eru félög bakara og rakara, rafvirkja, húsgagnasmiða, pípulagningarmanna og fleiri vinnuþiggjenda, og hagsmunir þeirra mjög sundurleitir, ef dæma skal um hámarksverð á vörum, enda óvíst um þekking fulltrúa þeirra á framleiðslukostnaði. — Með tilliti til þess, að allir flokkar hafa lýst yfir því óspart, að þeir vilji hlynna að iðnaðinum unga, þá geri ég mér von um, að brtt. nái samþykki hv. deildar.