15.12.1937
Efri deild: 50. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 450 í B-deild Alþingistíðinda. (615)

103. mál, verðlag á vörum

*Frsm. (Sigurjón Á. Ólafsson) :

Það má vel vera, að íslenzkar iðnaðarvörur komi til með að falla undir ákvæði verðlagsnefndar. Því að mjög mikill hluti af því, sem flest heimili þurfa að nota, er nú að verða innlend framleiðsla, og er vel farið. Það er rétt, að mörg þau fyrirtæki mæta örðugleikum. En á sömu sviðum blómgast iðnaðurinn vel. Þá hefir stundum staðið samkeppni um verðlækkun nokkurt skeið, eins og t. d. milli smjörlíkisgerðanna, en nú hygg ég, að samtök séu komin á um að halda verðinn uppi á ýmsum slíkum nauðsynjavörum almennings. Vitanlega þarf að sjá um, að það verð sé ekki úr hófi hátt. — Það er alls ekki mín meining, að það eigi að þrengja svo að kosti fyrirtækjanna, að þau geti ekki þrifizt. Og ég hygg, að atvinnurekendur séu svo sterkir í Landssambandinn og stjórn þess — man að vísu ekki nákvæmlega um stjórn þetta árið — svo sterk, að líklega má treysta því, að í verðlagsnefnd yrði valinn maður með hugsunarhátt atvinnurekandans. En um leið ætla ég, að hann mundi taka til greina sjónarmið neytendanna, sem eru fjölmennir meðal iðnaðarmanna. Og það er sjónarmið, sem þarf til að tryggja rétta stefnu.