17.12.1937
Sameinað þing: 15. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 103 í B-deild Alþingistíðinda. (62)

1. mál, fjárlög 1938

*Ísleifur Högnason:

Ég hafði ætlað mér að bíða með að mæla fyrir þeim brtt., sem ég er 1. flm. að, þar til þær væru allar komnar, en til þess að umr. slitni ekki, vil ég aðeins drepa á þær till., sem við kommúnistar fluttum að vísu við 2. umr., en teknar voru aftur til 3. Hefir hv. 5. þm. Reykv. áður mælt fyrir þeim, svo að ég þarf ekki að vera margorður.

Í fyrsta lagi vil ég ítreka það sem okkar skoðun, að þessar 60 þús. kr., sem greiddar eru til konungsins, sé ósanngjarnlega mikið, sérstaklega með tilliti til þess, að Danir greiða konungi sínum eina milljón kr., sem ekki mun nema meiru en 30 aurum á hvern íbúa Danmerkur, en við borgum tvöfalt hærra. Auk þess er konungurinn ekki skattskyldur til ríkisins hér og þar að auki ábyrgðarlaus, svo að við álítum, að sjálfsagt sé í þessari miklu fjárþröng, sem við eigum við að búa, að lækka þennan lið, enda teljum við konunginn fullsæmdan með 15 þús. kr. árslaunum.

Þá er það undir III. lið, að við höfum gert brtt. um það, að þær 50 þús. kr., sem nú eru greiddar til lögreglunnar í Reyjavík, falli niður. Við álítum, að lögreglan hér í Reykjavík sé allt of mannmörg samanborið við fólksfjölda, og ekki nema sanngjarnt, að Reykvíkingar greiði sinni lögreglu eins og aðrir kaupstaðir. Það mun vera heimild fyrir þessari fjárveitingu, en ekki meir, svo að það mundi ekki vera hrot á lögum, þó að þessi liður væri felldur niður.

Þá er það næst brtt. undir XII. lið, um að styrkurinn til Eimskipafélags Íslands falli niður. Ég sé, að í brtt. n. er þessi liður lækkaður úr 180 þús. niður í 162 þús. Það er mála sannast, að afkoma Eimskipafélagsins er ágæt. Eimskipin hafa verið afskrifuð ár frá ári niður í það lágt verð, að þau eru miklu meira virði heldur en þau eru skráð. Auk þess hafa reikningar félagsins sýnt, að það á stórfé í sjóði um hver áramót. Sýnist því ekki, eins og ástandið er, ástæða til að vera að ausa fé í stórgróðafyrirtæki, og virðist því öll sanngirni mæla með því, að þessi liður verði felldur burt af fjárl.

Þá er það nýr liður undir XVII. lið, sem við hv. þm. Vestm. flytjum, um að veita Bjarna Guðjónssyni 1800 kr. til þess að fullkomna sig í myndskurði. Fjvn. mun hafa átt þess kost að kynna sér listaverk þessa manns, sem er illa efnum búinn, en hefir áhuga fyrir sinni list og vill fullkomna sig í henni. Þau verk, sem ég hefi séð eftir hann, eru fögur og lofa góðu um hans framtíð. Þetta er eina fjárveitingin, sem ég fer fram á til einstakra manna, og vona ég að Alþ. liti með sanngirni á þessa till. og styrki þennan unga listamann til náms. Hann hafði sjálfur farið fram á 2500 kr., en við förum ekki hærra en upp í 1800 kr., og til vara 1500 kr., ef vera kynni, að einhverjir léðu till. þá frekar fylgi sitt.

Fleiri till., sem ég er 1. flm. að, liggja enn ekki fyrir, og mun ég geyma mér að tala fyrir þeim brtt., sem nú eru í prentun, þar til þær eru fram komnar.