20.10.1937
Efri deild: 6. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 451 í B-deild Alþingistíðinda. (622)
14. mál, Búnaðarbanki Íslands
Flm. (Páll Hermannsson) :
Það er eins og með frv. um sauðfjárbaðanir, sem var til umr. næst á undan, að það lá einnig í fyrra fyrir hv. þd. Aðalefni þess er, að bankastjórum Búnaðarbankans skuli fækkað úr þremur í einn. Ég geri ráð fyrir, að hv. þdm. geti fallizt á þær till., m. a. af sparnaðarástæðum. Ég legg til, að málinu verði vísað til 2. umr. og landbn.