24.11.1937
Efri deild: 34. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 456 í B-deild Alþingistíðinda. (636)
14. mál, Búnaðarbanki Íslands
Frsm. meiri hl. (Páll Zóphóníasson) :
Eins og menn muna, var umr. frestað um þetta mál að tilhlutun landbn., sem óskaði eftir því, að á meðan á frestun umr. stæði fengi milliþn. sú, sem nú situr til að athuga og gera till. um löggjöf um bankamál, málið til umsagnar. Í tilefni af þessu skrifaði landbn. milliþn. og óskaði umsagnar hennar um málið, og sú umsögn liggur nú fyrir. Ég vil lesa hana upp, með leyfi hæstv. forseta. Hún hljóðar þannig:
„Í tilefni af bréfi landbúnaðarnefndar efri deildar, dags. 28. f. m., um frv. til )aga um breyting á lögum nr. 31 14. júní 1929, um Búnaðarbanka Íslands, hefir milliþinganefnd í bankamálum á fundi í dag gert svofellda ályktun:
Milliþinganefnd í bankamálum mun væntanlega á sínum tíma gera tillögur um starfsmannahald og skipulag bankanna, og sér ekki ástæðu til að mæla með smábreytingum að svo stöddu.
Virðingarfyllst.
Bernh. Stefánsson. Ásg. Ásgeirsson.
Þetta bréf er dagsett 8. nóv. 1937.
Eins og hv. þdm. sjá af þessu, virðist milliþn. líta svo á, að hér sé um smábreyt. að ræða — sem þetta líka er — sem hún ekki vill mæla með og ekki heldur mæla á móti, m. ö. o. vill láta liggja á milli hluta, en getur í skyn, að hún muni seinna gera till. um breyt. á starfsmannahaldi bankanna yfirleitt, og þess vegna sennilega þessa banka líka. Það hefir þess vegna hvorki fengizt upp úr þessu meðmæli eða mótmæli viðkomandi þessari breyt. í frv. Hér er ekkert um frv. sagt.
Eins og haldið hefir verið fram áður, tel ég, að hér sé um svo lítilfjörlega breyt. að ræða á því fyrirkomulagi, sem nú er í bönkunum, þar sem ekkert er talað um annað en að spara dálítið rekstrarfé hjá einum banka með því að hafa einn bankastjóra og gæzlustjóra í stað þriggja bankastjóra. Það er engin ástæða til þess að bíða með samþykkt þessarar lagabreyt. eftir því. að einhverntíma — trúlega þó ekki fyrr en á Alþ. 1939 — geti legið fyrir breyt. um fyrirkomulag bankanna yfirleitt. Þess vegna mæli ég með því að frv. verði samþ. nú, en rökst. dagskráin á þskj. 53, frá minni hl. landbn., verði felld.
Til viðbótar skal ég geta þess, að mér var sjálfum ekki ljóst sem utanþingsmanni, á hverju það byggðist á sínum tíma, að þrír bankastjórar voru settir þarna við Búnaðarbankann. Mér var kunnugt um, að leitað var álits margra manna víðsvegar um land af Tryggva heitnum Þórhallssyni um frv. um stofnun Búnaðarbanka Íslands. Og ég hygg, að af 60–70 umsögnum manna, sem sumir eru nú á Alþ., hafi enginn ætlazt til, að bankastjórarnir væru hafðir þrír. Þvert á móti lögðu margir til, að það væri aðeins hafður einn bankastjóri. Þessi breyt., sem felst í frv., er því í fullu samræmi víð vilja þann, sem kom fram vegna þeirrar fyrirspurnar, sem Tryggvi heitinn Þórhallsson lét gera, er hann óskaði, að menn gerðu sínar aths. við frv. Ég hygg, að það sé vilji alþjóðar, að víðar en við þennan banka sé reynt að spara fé til starfsmannahalds við bankana. og þá ekki sízt á bankastjórum. Enda virðist ekki mikil ástæða til að hafa þá eins marga og 1. gera ráð fyrir nú að þeir séu.
Mæli ég því með, að rökst. dagskráin verði felld, en frv. samþ. óbreytt.