16.12.1937
Efri deild: 51. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 471 í B-deild Alþingistíðinda. (706)
100. mál, þurrmjólk í brauð o. fl.
Frsm. (Páll Zóphóníasson):
Herra forseti! Ég get ekki séð, að þessi brtt. sé nauðsynleg. Ég er fylgjandi ákvæðum 2. gr. um, að heimildin verði látin ná til allra brauðtegunda, en ég get samt fylgt brtt. Ég vil benda á, að það er ætlazt til þess í 2. gr., að nota megi aðra mjólk í brauð en þurrmjólk, og er það breyting á frv. frá því, sem það var fyrst. Ef á að blanda þurrmjólkinni aðeins í einstöku tegundir, veit ég ekki hvernig dr. Jón Vestdal fer að því að láta þurrmjólkina einungis í það hveiti og það mjöl, sem ætlað er í þessar sérstöku tegundir brauða, — fyrir honum vakti, að þurrmjólkinni yrði blandað í allt það hveiti og allt það mjöl, sem brauðgerðarhúsin fá til þess að baka úr. Ég sé ekki, að sú leið sé fær, ef blöndunin á einungis að ná til einstakra brauðtegunda.