22.11.1937
Neðri deild: 32. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 484 í B-deild Alþingistíðinda. (774)
104. mál, mjólkursala og rjóma o. fl.
*Ólafur Thors:
Hæstv. forsrh. lét sem það hefði verið aðalefnið í fyrirspurnum mínum, að mér hefði komið á óvart að þetta mál kæmi fram, en í minni ræðu var ekkert, sem gaf tilefni til að álykta á þá leið. Hitt var aðalefnið, að óviðfelldið væri, að við alþm. yrðum dag frá degi að láta úthluta okkur í blöðum í smáskömmtum einstökum atriðum í stjórnarsamningunum, úr því búið er að gera þá, þegar þessu til viðbótar kemur það, að frásögnum í blöðum framsóknarmanna og blöðum sósíalista ber ekki einu sinni saman. Svo til viðbótar þessum beinu umsögnum blaðanna bætast þær upplýsingar, sem maður fær frá frá flokkanna um þessa samninga, og þá skilst mér, að ekki liggi skýrt fyrir, hvað það raunverulega er. (Forsrh.: Hvað er það, sem hv. þm. er í vafa um?). T. d. hvort eigi að gefa 150 eða 180 þús. kr. í einn togara eða tvo. Einn af framsóknarmönnum sagði, að það yrði kannske enginn, en Alþbl. sagði, að þeir væru tveir. Í blaði hæstv. forsrh. var ekki hægt að sjá, hvað það væri mikið, sem framsóknarmenn þyrftu að eyða til þess að kaupa vinfengi sósíalista, og það er ýmislegt fleira, sem bæði ég og aðrir eru í vafa um. Annars væri langbezt að fá þessa samninga skýrt fram hér í þinginu, og það hefir þó áunnizt með þessum fyrirspurnum mínum, að hæstv. forsh. hefir viðurkennt, að rétt væri að tilkynna samninginn og ræða opinberlega á Alþingi, heldur en að verða, eins og ég sagði, að snapa einstök atriði hans saman í blöðum, sérstaklega þegar blöðunum ber ekki saman, heldur segir eitt þetta og annað hitt. Hæstv. ráðh. sagði, að þessir samningar hefðu átt erindi til fleiri en þm. Þeir hefðu líka snert hagsmuni fólksins! Eins og það sé nú eitthvert aðalatriði fyrir hæstv. ráðh.
Ég vil leiða athygli hæstv. ráðh. að því, að það lá ekki heldur neitt fyrir síðasta þingi um, að þetta mál ætti greiðan gang í gegnum þingið. Hæstv. ráðh. segist hafa verið með því, en það segir ekkert um, hvort framsóknarmenn almennt hafa verið með því, eða jafnaðarmenn. Ég man ekki betur en að einn jafnaðarmaður a. m. k. lýsti sig tregan. Hitt er hressilegt að heyra af vörum hæstv. ráðh., að þar sem hann sé með því, skuli það ganga hér fram. Það er ánægjulegt fyrir hv. jafnaðarmenn í d. að heyra þessa yfirlýsingu hæstv. ráðh. En hvort jafnaðarmenn geta talað eins hressilega, er mikið vafamál. Það væri gaman fyrir okkur dm. að heyra hv. þm. N.-Ísf. standa upp og segja, að það, sem Alþfl. heimtaði fyrir kosningar, skuli verða.