06.12.1937
Neðri deild: 43. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 510 í B-deild Alþingistíðinda. (790)
104. mál, mjólkursala og rjóma o. fl.
*Frsm. minni hl. (Pétur Ottesen):
Þeir, sem voru hér áðan, þegar við fluttum okkar ræður, hv. frsm. meiri hl. og ég, hafa eflaust veitt því eftirtekt, að við hreyttum engum ónotum hvor í annan, hvorki út af fortíð þessa máls né frv., sem fyrir liggur. Við töluðum út frá einlægum vilja um að leysa þetta mál og leggja grundvöll til samstarfs um lausn þess. En það kvað við annan tón, þegar hv. 1. þm. Rang. fór að leggja orð í belg og tala um offors hjá mér og öðrum sjálfstæðismönnum og mála upp allskonar myndir til að fela á bak við eigin ávirðingar. Ég vildi láta þennan mun koma fram í framkomu okkar og hans. Það má öllum ljóst vera, hversu heppilegt það er að vera með slík hnífilyrði, þegar svo mikið veltur á góðu samkomulagi.
Ég vék að því, að frv. væri óljóst orðað, en ekki vildi hv. 1. þm. Rang. á nokkurn hátt viðurkenna það. Hinsvegar litu hv. meðflm. hans svipað á þetta og ég, enda hafa þeir talað um að bera fram brtt. Enda er svo um þetta frv., að það er fullkomin þörf á að kveða skýrar á um ákvæði þess og nota tækifærið nú til breyt. á löggjöfinni, svo að ekki sé á valdi mjólkursölun. að úrskurða um vafaatriði.
Hv. 1. þm. Rang. vildi verja ákvæðið um eyrisuppbót á sölusvæði Rvíkur og Hafnarfjarðar og færði fyrir því þau rök, að þar væru meiri erfiðleikar á ræktun en annarsstaðar. En ég sé bara eina frambærilega ástæðu fyrir þessu ákvæði, sem sé að verið sé að tryggja meira lágmarksmagn af mjólk inn á markaðinn á hverjum tíma. Meðan Mjólkurfél. Rvíkur hafði þetta með höndum, hafði það þetta fyrirkomulag til þess að tryggja meira lágmarksmagn, þegar mjólkurframleiðslan er minnst. Eins og nú er, er þetta ný uppbót til þeirra, sem eru á sölusvæði Rvíkur, fengin fyrir kröfu sósíalista um að hlynna að þeim. Það er bezt fyrir hv. 1. þm. Rang. að meðganga þetta, enda er enginn annar grundvöllur til að byggja þetta á. Hv. þm. sagði, að þeir, sem væru inni á sölusvæði Rvíkur, væru þeir einu, sem alltaf hefðu mjólk til staðar, en ég vil segja, að möguleikarnir til þess að uppfylla mjólkurþörfina í Rvík byggist á öllum þeim, sem ekki þurfa að fara fjöll og firnindi til að koma mjólkinni á markað.
Hv. 1. þm. Rang. var að kasta ónotum að okkur minnihl.mönnum fyrir, hvað málið hefði verið lengi í landbn. Ég get sagt hv. þm. það, að málið var fyrst tekið fyrir í landbn. 30. nóv. en við minnihl.menn ráðum engu um það, heldur form. þeirrar n., sem er frsm. meiri hl. og meðflm. hv. 1. þm. Rang. að þessu frv. Hv. þm. verður því að beina skeytum sínum til flokksmanna sinni í n.
Hv. 1. þm. Rang. varð mjög tíðrætt um eitt atriði, sem við töluðum mikið um, hv. frsm. meiri hl. og ég, sem sé breyt. á aðstöðu þeirra, sem búa í námunda við Rvík, og það kvað svo rammt að skilningsmuninum á milli hv. 1. þm. Rang. og hv. frsm. um þetta atriði, að hv. 1. þm. Rang. sagði, að frv. væri fyrst og fremst til hagsbóta fyrir þá, sem búa nálægt Reykjavík, en hv. þm. Mýr., sem er frsm. meiri bl., sagði, að þetta mundi kollvarpa þeirra atvinnuvegi, svo að líklega þyrfti að gera sérstakar ráðstafanir til bjargar þeim. Þessi reginmunur kom fram á skoðunum þessara tveggja samherja, og er bezt, áður en lengra er farið til þess að jafna misfellur, að þeir reyni að jafna á milli sín.
Nei, sannleikurinn er sá, að málið horfir svo við, eins og hv. frsm. hefir viðurkennt, að aðstaða manna í kringum Rvík þolir ekki verðfall. Afleiðingin af verðfalli mundi verða, að sérstakar ráðstafanir þyrfti að gera til þess að bjarga þeim.
Mér finnst að þegar löggjöf eins og þessi er sett, beri að athuga allar afleiðingar, sem af henni leiðir. Ég segi ekki, að sú athugun þurfi endilega að leiða í ljós, að ekki þyki fært að gera slíkar ráðstafanir, en það verður að gera sér ljóst fyrst, hvort vandræði af þessu verði ekki svo mikil, að ekki þyki tækilegt að framkvæma lögin. Það má ekki ganga svo nærri þessum mönnum, sem hv. þm. Mýr. taldi, að verða mundi. Það er áframhaldandi niðurstaða okkar í minni hl., að við verðum í sameiningu við hv. meiri hl. landbn. að athuga afleiðingar þessa máls og afleiðingu þess, að samþ. væri slíkt frv. sem þetta.
Skal ég svo ekki á þessu stigi málsins fara út í fleiri en tvö atriði úr ræðu hv. 1. þm. Rang. það fyrra er það, sem hann sagði um mjólkurverðið á Akranesi. þar fór hann með rangt mál. Að vísu er verðið þar ófullnægjandi, en þó er það ekki nærri því eins aumt og hann taldi. Hitt atriðið er það, að hann sagði, að ekki væri að neinu leyti betra, að bændur sjálfir eða fulltrúar, sem þeir kysu, færu með framkvæmd mjólkurlaganna. En ég hverf ekki frá, að svo væri málinu miklu betur komið, enda litu bændur svo á, að til þess væri ætlazt, þó framkvæmdirnar hafi orðið aðrar. Það er rangt, sem hv. þm. segir, að aldrei hafi náðst samkomulag um það milli bænda. Mikill meiri hl. þeirra vildi taka málið í þeirra eigin hendur, en það atvikaðist ávallt þannig, að einn maður var á móti því, og í skjóli þeirrar afstöðu þessa eina manns hefir landbn. haldið málinu í því horfi, sem í upphafi var aðeins bráðabirgðaákvæði í lögunum, sem átti ekki að gilda nema 6 mánuði, þegar það var sett. þar var búin til trappa fyrir hæstv. atvmrh. til að standa gegn því, að þetta mál yrði fært inn á þá braut, sem lögin sjálf gera ráð fyrir, að yrði viðtekin frá öndverðu.
Ég vil beina því sérstaklega til hv. framsóknarmanna hér í hv. d., að þeir sporni heldur við því, að hv. 1. þm. Rang. sé mikið að sletta sér fram í þetta mál hér. Hann hefir farið þannig af stað, að hann fer mjög í aðra átt en við hv. þm. Mýr. óskum, og virðist hann ætla að verða sá illi andi í þessu máli hér á Alþ., eins og margir halda fram, að hann hafi verið í því frá upphafi.
Hv. þm. Mýr. beindi áðan til mín örfáum orðum. Get ég látið bíða að svara því þangað til n. ræðir um þetta mál, en hann beindi sérstaklega til mín þeirri spurningu, hvað ég sæi til bjargar þeim mönnum, sem búa í allmikilli fjarlægð frá Reykjavík, og minntist í því sambandi á okkar hérað, þar sem þau vandræði steðja að bændum, að þeir eru að missa þann hluta bústofns síns, sem drýgst hefir framfleytt þeim, sem sé sauðféð. Er því ástæða til að reyna að fylla það skarð með aukinni mjólkurframleiðslu. Spurði hv. þm. mig, hvað ég sæi til bjargar, ef slík ákvæði sem þessi yrðu ekki að lögum. Ég vil biðja hv. þm. Mýr. að athuga með mér og þeim öðrum hv. þm., sem láta þetta mál sig að nokkru skipta, hver afleiðingin verður af því að jafna verðlaginu alltaf endalaust niður á við, eftir því, sem mjólkurframleiðslan eykst. Sé ekki mikið bjargráð í því, að frv. sem þetta verði lögleitt. Því fylgja engin úrræði til styrktar bændum, að jafna mjólkurverðinu aðeins lengra og lengra niður á við eftir því, sem mjólkurframleiðslan vex. Öðru máli væri að gegna, af þetta frv. fæli í sér ákvæði lík þeim, sem voru í frv., sem flutt var á síðasta þingi af hv. þáv. 2. þm. Rang. og þm. Dal., ef ég man rétt. Ef tekið væri inn í þetta frv. ákvæði um blöndun þurrmjólkur í brauð, og þar að auki lagður einhver skattur á kjarnfóður, þá væri öðru máli að gegna. Þar væri aflað tekna, sem gætu orðið nokkuð miklar, samfara aukinni mjólkurframleiðslu. Þegar við hv. þm. Mýr. erum að athuga, hvað gera skal til að bjarga okkar kjördæmi og öðrum héruðum, sem líkt stendur á um, er sjálfsagt að líta á allt, sem gæti skapað grundvöll að byggja á, en hann finnst ekki í þessu frv., nema svipuðum ákvæðum og þessum væri bætt inn í það.
Hv. þm. Mýr. talaði um þann mikla aðstöðumun á flutningskostnaði á sölustað, sem væri milli þeirra, sem búa nálægt Reykjavík og svo hinna og vildi hv. þm. gera mikið úr þessu. Mér er kunnugt um, að þeir úr Borgarfjarðarsýslu utan Skarðsheiðar verða að borga um 5 aura á lítra fyrir flutninginn. Þegar svo í viðbót við það hefir verið tekið svo og svo mikið af útborguðu mjólkurverði í verðjöfnunarsjóð, er auðséð, hver aðstaða þessara manna verður til þess að taka á móti þeirri lækkun útborgunarverðsins, sem þessu frv. fylgir, án þess að til komi nein ívilnun. vegna aðstöðumunar með flutning mjólkurinnar á markað hér. Til þessa ber líka að taka tillit.
Fer ég svo ekki fleiriorðum um þetta mál, en bið hæstv. forseta fjarvistarleyfis það, sem eftir er af fundinum, og bið hv. þm. A.-Húnv. að taka svari mínu, ef þess gerist þörf.