09.12.1937
Neðri deild: 45. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 521 í B-deild Alþingistíðinda. (804)
104. mál, mjólkursala og rjóma o. fl.
Frsm. minni hl. (Pétur Ottesen) [frh.]:
Ég var kominn að því áðan, þegar fundi var frestað, að minnast hér á brtt., sem við minni hl. landbn. berum fram, að eftir 3. gr. mjólkurlaganna komi ný gr., sem felur í sér að afla verðjöfnunarsjóði nokkurra tekna fram yfir það, sem honum ber gegnum verðjöfnunarsjóðsgjaldið af mjólkinni. Og er það með tvennum hætti, sem við viljum auka tekjur hans, sem sé með því að leggja innflutningsgjald, sem nemi allt að 5 aurum á hvert kg. af innfluttu kjarnfóðri, þ. e. a. s. kjarnfóðri, sem flutt er inn, á verðjöfnunarsvæðið. Í öðru lagi með því að afla verðjöfnunarsjóði tekna með því að komið sé á fót þurrmjólkurvinnslu, og að það verði gert að skyldu að blanda mjólk í öll brauð í brauðgerðarhúsum á verðjöfnunarsvæðinu. Með þessum hætti ætti að mega afla verðjöfnunarsjóði nokkurra viðbótartekna, og þá líka hamla nokkuð upp á móti því, að af þessu fyrirkomulagi leiði það, að verðið jafnist svo mikið niður á við, ef mikil aukning yrði á mjólkurframleiðslunni, að lítt yrði við hlítandi fyrir þá, sem eiga að byggja sína búskaparafkomu á mjólkurframleiðslunni. Ég hefi náttúrlega engar tölur um þetta, hvað mikilla tekna sé hægt að afla verðjöfnunarsjóði með þessum hætti, en hinsvegar má fullkomlega gera ráð fyrir því, að með þessum ákvæðum mundi vera létt allmikið undir með það, að hægt væri að bæta verð mjólkurinnar allmikið meir en hægt yrði að gera án þess að miður færi á öðrum stöðum, með því ákvæði einu, að verðjöfnunarsjóður fái ekki aðrar tekjur en verðjöfnunarsjóðsgjaldið af mjólkinni. Við höfum í þessari brtt. einungis gert ráð fyrir innflutningsgjaldi af því kjarnfóðri, sem flutt er inn á verðjöfnunarsvæðið, svo að aðrir en þeir, sem hafa einhverra hagsmuna að gæta, verða ekki skattlagðir í þessu augnamiði, svo að neinu verulegu nemi. Jafnframt þessu höfum við reynt að búa svo um þá hnúta, að það þurfi ekki að verða neinn árekstur á framkvæmd þessara ákvæða, með þeim ákvæðum, sem við höfum sett inn í okkar brtt. að þessu lútandi. Ennfremur er gert ráð fyrir því, að um innflutningsgjald sé einungis að ræða á þeim svæðum, þar sem verðjöfnunarsjóður er. En á hinum falli það niður, t. d. eins og ég ætla, að muni vera á verðjöfnunarsvæði Akureyrar. Og ætti þetta þá ekki að rekast á við skiptingu verðjöfnunarsvæða.
Um hitt ákvæðið, um þurrmjólkurvinnslu og að blanda þurrmjólk í brauð, liggur nú fyrir alþingi, og það einmitt fyrir þessari hv. deild, till. um það, að komið sé á fót þurrmjólkurvinnslu í landinu, án þess að nokkuð sé tekið fram um það, eða hað sé nokkuð tengt við mjólkurlögin, sem nú eru í gildi hjá okkur. Að farið verði að nota mjólk í brauð, er náttúrlega til mikilla bóta, og hagnýta þannig svo og svo mikinn hluta af mjólk, sem annars er lítið verðmæti, eins og t. d. undanrennan. Hinsvegar virtist okkur flm. þessara brtt., að þá væri rétt að tengja þetta nokkuð nánar við mjólkurlögin eða framkvæmd þeirra, þannig, að gert yrði ráð fyrir í þessu sambandi, að stofna til þess að vinna þurrmjólk, jafnframt því sem fyrirskipað er að nota mjólk í brauð í öllum brauðgerðarhúsum á verðlagssvæðinu, og að það væri skýrt tekið fram, að allar tekjur, sem af þessu hlytust, rynnu einmitt í verðjöfnunarsjóð. En í frv., sem liggur fyrir, er ekkert ráð fyrir þessu gert, heldur alveg óákveðið um þetta, og virtist okkur því réttara að tengja þetta mál einmitt með þessum hætti við mjólkurlögin, eins og við höfum gert í brtt. Það getur ekki verið álitamál, að hér sé að ræða um mikinn ávinning fyrir framleiðendur, að það verði tekið upp að blanda mjólk í brauð og á með þessum hætti að vera hægt að afla aukins markaðar fyrir mjólk og koma á þennan hátt þessari kjarngóðu fæðu einmitt til notkunar í nokkuð verulega stærri mæli heldur en nú er, með því að þetta sé upp tekið. Þá er ennfremur í okkar brtt. ákvæði um það, að kveða alveg skýrt á um það í lögum, að framleiðendur fái í sínar hendur alla framkvæmd, er snertir sölu mjólkur, og þeir ráði beinlínis, hvaða menn það eru, er skipa þá stjórn, sem hefir með höndum sölu og dreifingu mjólkurinnar.
Eins og tekið var fram við 2. umr. þessa máls, er framkvæmd þessara mála í höndum mjólkursölun., og er bráðabirgðaákvæði í lögum, og við teljum rétt, úr því að það liggur fyrir að breyta lögunum, að taka upp ákvæði um þetta efni. Hefir verið um tilhögun á stjórn og framkvæmd mjólkursölunar farið eftir þeim till., sem komið hafa frá fulltrúum mjólkurbúanna, og verið samþ. á fundum þeirra um þetta efni, þannig, að mjólkurbúin tilnefni þessa menn, og að það sé tilnefndur einn maður frá hverju mjólkurbúi, með þeim undantekningum þó, að 2 mjólkurbú, sem langsamlega hafa yfir mestu mjólkurmagni að ráða, tilnefni hvort fyrir sig 2 menn í stjórn samsölunnar.
Í sambandi við þessar till. höfum við gert brtt. um það, að niður falli e-liður í 9. gr. Það er bein afleiðing af þessari breyt., og sömuleiðis ákvæði um stundarsakir, sem þá er alveg óþarft, þegar búið ec að slá föstu, hvernig stjórnin skuli skipuð.
Ég vil nú vænta þess að hv. d. ljái þessum till. okkar fylgi sitt og þær verði samþ. Skal ég svo ekki fara fleiri orðum um þetta mál að svo stöddu, fyrr en þá ef tilefni gefst til þess síðar.