09.12.1937
Neðri deild: 45. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 547 í B-deild Alþingistíðinda. (816)
104. mál, mjólkursala og rjóma o. fl.
*Ólafur Thors:
Það er nú orðið svo áliðið dags og fáir hv. þdm. viðstaddir, að ég tel ekki þýða að gera máli þessu þau skil, sem annars málsins sjálfs vegna væri full ástæða til að gera, og einnig með hliðsjón af þeim rökum, sem hv. flokksbræður mínir hafa fært fram í þessu máli, þá mun ég að þessu sinni láta nægja aðeins örfá orð. Ég ætla ekki að blanda mér inn í þær almennu umr., sem hér hafa farið fram. Allra sízt ætla ég að gera tilraun til að sannprófa það, hve mikið sannleiksgildi hafa hin einstöku spakmæli, sem hér hafa verið tilfærð eftir Framsfl., og hvað þau hafa auðgað vísindi heimsins. En út af því spakmæli, sem hv. 7. landsk. síðast tilfærði eftir Framsfl. á sínum tíma. „allt er betra en íhaldið“, vil ég benda þessum hv. þm. á það, að það er nú hálfleiðinlegt fyrir hann og hans flokk að lifa á því eina náðarbrauði í kjöltu Framsfl., að allt sé betra en íhaldið, eftir að þeir flúðu til baka frá fótum kommúnista, vitandi það, að máske flýgur nú um hug sjálfra framsóknarmanna, að til muni vera það sem er verra en íhaldið. Það er alkunnugt, að hið þjóðfræga hægra bros breiðist nú ört út í þeim flokki af þeirri ástæðu, að flokkurinn er að skilja, að til er það, sem er verra en íhaldið. Og ég get óskað þessum hv. þm. til hamingju með það, að sú forna speki Framsfl. er nú að falla úr gildi.
Um þetta frv. er margt misjafnt, en fátt gott að seg,ja. Ég er hræddur um, að sú verði raunin síðar, að það verði til lítillar blessunar þeim bændum, sem ætlað er að ívilna með því, og ennfremur að neytendur á þessu sölusvæði kenni þess brátt, að ekki heldur verður það þeim til framdráttar. Það er örugg vissa fyrir því, að nokkur hópur bænda, sem við l. þessi á að búa, mun vegna beinna fyrirmæla frv. verða fyrir miklum þrengingum, hversu sem að lokum kann að takast að ráða fram úr þeim örðugleikum. Það er alveg augljóst, að með ákvæðum frv. er fyrst og fremst stefnt að því að ívilna bændunum austanfjalls á sölusvæðum hér, sem l. er aðallega ætlað að ná til. Sjálfsögð afleiðing af frv., ef samþ. verður, er ný hvatning til þessara bænda um aukna framleiðslu. Við því er ekkert að segja, ef ekki væri með þessu verið að gefa bændunum tyllivonir, en ég veit, að margir hv. þm. óttast í hjarta sínu þá örðugleika, sem stafa munu af þeim framleiðsluauka, er siglir í kjölfar þessarar löggjafar. Örðugleikarnir hafa þegar gert vart við sig, en það vita allir, að þeir munu vaxa, og ég er ekki í minnsta efa um það, að þeir verða svo miklir. að þessir bændur, sem nú á að hjálpa, fá að reyna það, að þær vonir, sem þeim nú eru gefnar með þessu frv., eru tyllivonir.
Nú veit ég það, að örlög þessa máls eru hér ákveðin, svo að ræðuhöld þess vegna fá engu raskað. Eigi að síður vil ég vekja athygli á því, að hægt er að gera á frv. nokkrar breyt. sem yrðu tvímælalaust til bóta, án þess þó að vikið sé frá höfuðtilgangi frv., og sem jafnvel gefur vonir um, að hægt væri að sjá sæmilega borgið hag þeirra manna, er falla eiga undir l. Ég vil í því sambandi sérstaklega leggja áherzlu á tvö atriði. Annarsvegar að bændur sjálfir fái yfirráð yfir þessum málum, eins og lagt er til í brtt. sjálfstæðismanna í landbn. Það er of augljóst mál til þess, að ég ætli að látast vera að opna augu hv. þdm. fyrir því, að hér er náttúrlega um mikið hagsmunamál að ræða fyrir alla bændur, en jafnframt mál, sem felur í sér nokkra innbyrðis togstreitu milli þeirra sjálfra. Ég hefi enga trú á, að þeirri togstreitu verði ráðið til lykta á annan hátt en helzt að bændurnir sjálfir leysi málið. Ég er sannfærður um. að heppilegra er að láta þann bóndann, sem á að missa, deila við hinn bóndann, sem á að hreppa, heldur en að leggja deiluna í hendur mönnum eins og hv. 1. þm. Rang., fim. þessa frv. Ég hefi náttúrlega mikla löngun til að deila á hann persónulega, þó ég ekki geri það hér, en það er mín skoðun, að maður með hans aðstöðu eigi öruggra með að ná réttlátri og farsælli lausn í málinu heldur en bændurnir sjálfir. Menn eru þannig gerðir, að þegar þeir halda á umboði fyrir aðra menn, eru þeir djarfari og ófeimnari í frekum kröfum heldur en þegar þeir berjast fyrir sínu eigin máli. Hv. þm. veit, að við erum svona allir. Ég er t. d. ekki viss um það, ef hann, sem er þm. Rang., væri að bera fram kröfur á hendur mér, þm. G.-K., að hann með jafnköldu blóði gengi á minn hag eins og hann nú, að því er virtist, tiltölulega rólegur gengur á rétt bændanna í G.-K. Þetta er þáttur í mannlegu eðli. Þess vegna tel ég betra, að valdið verði lagt í hendur bændunum sjálfum, í stað þess að nú á að auka þetta vald í höndum þeirrar framkvæmdarstjórnar, er sjálf stendur utan við málið.
Þetta er nú annar þáttur þessa máls, hinn er sá, að ég tel, að tæplega sé hægt fyrir hv. þd. að neita þeim tilmælum fulltrúa sjálfstæðismanna í hv. landbn., sem koma fram í a-lið 1. brtt. þeirra víð 1. gr., um að við ákvörðun verðjöfnunargjaldsins sé tekið hæfilegt tillit til mismunandi kostnaðar við mjólkurframleiðsluna á hinum ýmsu stöðum innan verðjöfnunarsvæðisins, og má aldrei hækka það svo, að ofboðið sé með því greiðslugetu framleiðenda í nokkru byggðarlagi á verðjöfnunarsvæðinu.
Ég viðurkenni fúslega það, sem komið hefir fram í umr., að þetta er teygjanlegt ákvæði, en það lýsir góðvilja Alþingis í garð þeirra bænda, sem ástæða er til að ætla, að l. setji í voða og bindur að vissu marki hendur þeirra manna. sem framkvæmdarvaldið hafa. Ég veit að vísu, ef þessi till. verður samþ., að nokkur hætta er á því, að mjólkin hækki fyrr eða síðar, en ég álít þessa hættu ekki mikla, því ekki verði gripið til þess að hækka mjólkina fyrr en til verulegra þrenginga er komið fyrir bændur hér í grennd.
Það liggur í hlutarins eðli, að fyrir hönd bændanna í Gullbr.- og Kjósarsýslu hefði ég ástæðu til að gera margt fleira í frv. að umræðuefni, en ég geri það ekki að þessu sinni af þeim ástæðum, sem ég þegar hefi tilgreint. Ég þori ekki að segja, að ég hafi fullkomna trú á því, að tekið verði tillit til óska minni hl. í þessu máli, en þó hefi ég nokkra von um, að svo mikil sanngirni og sómatilfinning finnist hjá andstæðingunum, að sýnd verði nokkur tilhneiging til að verða við óskum þeirra. Ég get svo lokið máli mínu með því að endurtaka það, sem ég sagði í öndverðu mínu máli, að ég hefi margt misjafnt að segja um þetta frv., en fátt gott, og hvað formshlið þess snertir þykir mér verst að sjá hv. þm. Mýr. sem meðflm. frv., því um hann má áreiðanlega segja, að „þar heggur sá, er hlífa skyldi“. Því hann veit eins og hver annar — og í raun og veru betur en aðrir hv. flm. frv., — hvernig þeir bændur standa að vígi, sem nú eiga að mæta hinu nýja böli. Læt ég svo þetta nægja að svo komnu máli.