18.12.1937
Sameinað þing: 16. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 138 í B-deild Alþingistíðinda. (82)
1. mál, fjárlög 1938
*Jörundur Brynjólfsson:
Ég hefi leyft mér að bera fram brtt. við 22. gr. fjárlfrv., sem er á þskj. 444, og er hún þess efnis, að ríkisstj. fái heimild til þess að veita Mjólkurbúi Ölfusinga fjárhagslegan stuðning til bráðabirgða til næsta þings og athuga svo fjárhag búsins og rekstur þess. Ég vil vona, að fyrir þann tíma gefist hæstv. ríkisstj. tóm til þess að láta slíka athugun fara fram, svo að hún geti legið fyrir næsta þingi. Fjárhagur þessarar stofnunar er ákaflega erfiður og hefir verið frá fyrstu tíð. Að þessu búi hefir staðið sérstaklega ein sveit, sem sé Ölfusið, enda þótt menn úr öðrum sveitum, bæði í Árnessýslu og Rangárvallasýslu, hafi selt mjólk sína í það. Þegar Ölfusingar lögðu út í byggingu þessa fyrirtækis, þá var gert ráð fyrir, að allt mannvirkið með vélum og tækjum mundi kosta liðlega 100000 kr., en reynslan hefir orðið sú, að kostnaðurinn hefir orðið litið eitt yfir 300000 kr. Nú hefir þessi stofnun fengið allríflegan styrk eins og önnur mjólkurbú úr ríkissjóði, en samt sem áður hefir fjárhagurinn verið svo þröngur frá fyrstu tíð, að búið hefi alltaf barizt í bökkum. Það hefir reynt að greiða bændum sama verð og önnur bú, en stundum hefir verðiagið verið fyrir neðan það, vegna þess að engin tök hafa verið á því að halda til jafns við önnur samskonar fyrirtæki, svo að að því leyti hafa þeir menn, sem við þetta bú hafa skipt, borið skarðan hlut frá borði. Því hefir ekki auðnazt að standa alltaf við skuldbindingar sínar gagnvart þeim stofnunum, sem fyrirtækið hefir fengið lán hjá, og eins og búast má við, getur það ekki haldið þannig áfram til lengdar. Er þess vegna fyrir allra hluta sakir sjálfsagt að reyna að koma þessu á réttan kjöl, reyna að koma starfrækslunni fyrir á þann hátt fyrir framtíðina, að hún geti borið sig, og þeir, sem við búið skipta, verði ekki verr settir heldur en aðrir, sem skipta við önnur samskonar fyrirtæki. Mjólk sú, sem send er til vinnslu í búið, hefir minnkað mikið fyrir það, að menn úr öðrum sveitum hafa hætt að skipta við búið, svo að nú er mjólkurmagnið mjög lítið, borið saman við það, sem áður var, en bændurnir í þessari sveit vilja af eðlilegum ástæðum gera sitt ýtrasta til þess að halda starfrækslunni áfram og una illa við að sjá þetta fyrirtæki verða að hætta starfsemi sinni. Nú stendur einnig svo á, eins og kunnugt er, að mæðiveikin er komin í fé hjá bændum í þessari sveit, og þó að hún sé að vísu ennþá á byrjunarstígi, er enginn leið að segja, hversu skjótlega kann að skipta til verri vegar í því efni, og er bændum þá að sjálfsögðu enn meiri nauðsyn en nokkru sinni fyrr á því að reyna að halda starfrækslu þessarar stofnunar í lagi.
Ég vil því vona, að Alþ. taki þessari till. vel, og jafnframt vil ég vona, að hæstv. ríkisstj. sinni þessu máli og geri ráðstafanir til þess að kynna sér allan fjárhag þessarar stofnunar og geri af sinni hálfu það, sem hún telur mögulegt, stofnuninni til viðreisnar og starfrækslunni til öryggis í framtiðinni. Það á ekki við á þessu stigi málsins að vera með bollaleggingar um, hvernig bezt sé að leysa þetta mál; það kemur bezt í ljós á sínum tíma, þegar athugun fer fram á fjárhag stofnunarinnar, svo að það er tilgangslaust að fjölyrða frekar um þetta.
Ég vil svo enda mál mitt með því að vænta svo góðs af Alþ., að þar sem þetta er mjög mikið nauðsynjamál, fyrst og fremst fyrir þá menn, sem í þessari sveit búa, þá bregðist það vel við þessari málaleitun, sem borin er fram af hálfu þessara manna af fullri nauðsyn.