14.12.1937
Efri deild: 49. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 557 í B-deild Alþingistíðinda. (829)

104. mál, mjólkursala og rjóma o. fl.

Frsm. 2. minni hl. (Þorsteinn Þorsteinsson):

Eins og hv. 1. þm. N.-M. tók fram, klofnaði n. um málið, og er þríklofin í raun og veru.

Ég get ekki gengið að þessu frv. óbreyttu og hefi því gert tvær brtt. við það. Að ég hefi ekki farið lengra út í málið, orsakast af því, að ég hefi ekki sökum anna haft nógu góðan tíma til að athuga það, enda barst mönnum það til eyrna, að samkomulag hefði orðið um það milli stjórnarflokkanna að láta þetta mál ganga í gegn á þessu þingi, og það fljótlega. Geri ég því ekki ráð fyrir, að þeir menn séu hingað komnir til að láta sannfærast af rökum eða fara eftir brtt., sem fram koma, en það mun sýna sig í kvöld, hvort nokkur fótur er fyrir þessu.

Ég ætla ekki að vera margorður um þetta mál, enda er svo ástatt fyrir mér, að fjvn. situr nú á rökstólum, og er hún einmitt komin saman til atkvgr., svo ég geri ráð fyrir, að ég taki ekki mikinn þátt í umr. nú.

Þetta mjólkurmál er í raun og veru mikið randamál. Ég játa, að full þörf var á löggjöf um það. En ef vel hefði átt að vera, þá hefði hún þurft að geta komizt á án þess að pólitík hefði verið hleypt í málið, en því miður hefir það komizt inn í straumkast stjórnmálanna, því varla hefir staðið meiri styr um önnur mál heldur en mjólkurmálið í seinni tíð, og þó hlé hafi verið í bili, þá virðist hann vera að vakna upp aftur. Ég hefi litið tekið þátt í þessum deilum, enda hefir mín aðstaða verið þannig, að hérað það, sem ég á heima í, hefir ekki haft þar nein sérstök réttindi eða kvaðir, en ég hefi jafnan reynt að líta hlutdrægnislaust á allar málsástæður.

Það eru, eins og ég sagði áðan, aðallega 2 till., sem liggja fyrir frá minni bendi. Þær eru að mestu leyti teknar upp eftir brtt., sem komu fram við málið í hv. Nd.

Fyrri brtt. er um það, að við ákvarðanir um greiðslu verðjöfnunargjaldsins verði tekið hæfilegt tillit til hins mismunandi kostnaðar, sem er við framleiðslu þessarar vöru á verðjöfnunarsvæðinu. Eins og nú standa sakir er öllum það vitanlegt, að á þessum stóru svæðum, sem hér er um að ræða, er feiknamikill munur á því, hvað framleiðsla vörunnar kostar. Við vitum, að það er nokkuð dýrara að framleiða mjólk í grennd við Reykjavík, þar sem menn verða að brjóta holt og urðir til þess að vinna þar ræktuð lönd og geta haft mjólkurframleiðslu, heldur en þar, sem löndin liggja svo að segja fullbúin til heyvinnslu með vélum, svo að það þarf ekki nema áburðinn. til þess að þau séu töðugæf. Vinnan er líka hér miklu dýrari heldur en lengra úti á landi, og það verður að taka tillit til þess. Yfirleitt á sú skoðun að ríkja, að þeir menn, sem eiga erfiðari aðstöðu, fái heldur betri kjör til þess að geta haldið við byggðinni. Hér hafa menn í góðri trú á betri markað en annarsstaðar lagt út í að rækta lönd umhverfis Reykjavík með ærnum kostnaði. Ef svo fer, að söluverð vörunnar er ekki fyrir framleiðslukostnaði á einum stað, en greitt ef til vill miklu meira en framleiðslukostnaður á öðrum stað, þá mun fólkið dragast að þeim stað, þar sem það hefir meiri gróða af sinni atvinnu. Það getur því farið svo, að það dragi úr framkvæmdum hér, og það getur orðið til þess, að fólk, sem býr hér nálægt, fari beint inn í bæina, þegar það getur ekki alið önn fyrir sér á sínum löndum. Ég hefi tekið upp þessa till. vegna þess, að hún hjálpar mönnum til þess að fá sem næst framleiðslukostnaði. Ég sé ekki annað en sá heppilegasti aðili til þess að reikna út, hver hinn raunverulegi framleiðslukostnaður er, sé Búnaðarfélag Íslands.

Um hina aðalbrtt. mína get ég verið fáorður. Það er almennt viðurkennt, að sú breyt. hafi í raun og veru fullkominn rétt á sér og það er talið að hún hljóti að koma bráðlega. En í bili er tregðazt við að láta þessi fyrirmæli koma fram. Ég sé ekki ástæðu til að draga að lögfesta þetta atriði, úr því gera má ráð fyrir, að það verði fyrr eða síðar.

Ég ætla svo ekki að lengja umr. að þessu sinni meira. Ég vænti þess, að menn líti með sanngirni á þessar till. og fylgi þeim, ef ekki er allt bundið fyrirfram.