20.12.1937
Efri deild: 53. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 591 í B-deild Alþingistíðinda. (844)
104. mál, mjólkursala og rjóma o. fl.
Guðrún Lárusdóttir:
Hv. 1. þm. N.-M. sagði, að það væri réttarbót fyrir bændur að fá að undanskilja ½ mjólkurlítra á dag handa hverjum heimilismanni. Það er raunar einkennilegt að tala um réttarbætur í þessu sambandi, þar sem skammta á bændum þeirra eigin vöru og svipta þá þannig að nokkru umráðarétti yfir vöru sinni, en það er þó óneitanlega meiri réttarbót að fá heilan lítra til daglegra umráða heimafyrir heldur en hálfan lítra, og get ég því hugsað mér, að hv. þm. vilji fallast á þá breytingu, einmitt með málstað bændanna fyrir augum.