13.12.1937
Neðri deild: 48. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 595 í B-deild Alþingistíðinda. (853)
126. mál, raforkuveita á Akureyri
*Frsm. (Ólafur Thors):
Ég var ekki viðstaddur, þegar 2. umr. þessa máls fór fram, en af því að ég er frsm. n., þá þykir mér viðkunnanlegra að láta nokkur orð fylgja málinu úr deildinni. Það er kunnugt, að allir samþ. í fyrra lög um virkjun Laxár. Það þótti ekki tímabært að hafa í þeim lántökuheimild með ríkisábyrgð, þó nokkur þingvilji kæmi samt í þá átt. Á sama hátt hefir náðst samkomulag um þetta mál á milli a. m. k. Framsfl. og Sjálfstfl. Áður en það kom fram, og auk þess var það sýnt við flutning málsins, að Alþfl. og Bændafl. eru málinu samþykkir, — ég veit ekki um Kommfl. Í n. voru allir nm. sammála um að mæla með frv., eins og fram kemur í nál., og má því að sjálfsögðu líta þannig á, að þessu máli sé tryggður framgangur, og þess vegna óþarfi að ræða það frekar.