15.12.1937
Neðri deild: 50. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 615 í B-deild Alþingistíðinda. (894)

140. mál, mæðiveikin

Sigurður E. Hlíðar:

Ég skal ekki þreyta menn á löngu máli, en get varla látið hjá líða að koma inn á örfá atriði hjá þeim tveimur hv. þm., sem létu svo lítið að snúa máli sínu til mín út af ummælum mínum í ræðu minni áðan. Það voru þeir hv. þm. Mýr. og hv. þm. V-Húnv. Þeir báðir tóku sig upp, og er sennilega svo að skilja, að þeir séu aðalsérfræðingar Framsfl. á þessu sviði. Enda töluðu þeir þannig, að þeir þóttust búa yfir nokkuð miklum fróðleik. Hv. þm. Mýr., eða öllu heldur frsm. landbn., fann það til foráttu, að ég hefði haldið langan fyrirlestur á þremur tungumálum, og var hann þannig að draga dár að ræðu minni, en hann kvað fyrirlestrahald ekkert þýða um þetta efni. Ég hélt nú að honum væri þetta það mikið alvörumál, að hann ætti ekki að vera á móti því, að menn reyndu að draga fram þau rök og þann fróðleik, sem finnanlegur væri. Og ég hélt ekki, sérstaklega við að líta yfir aðgerðir Alþingis í þessu máli. að það væri með öllu ástæðulaust að finna að. En á bak við þetta liggur sennilega það, að herrar eins og þessi hv. þm. og aðrir slíkir álíta, að þeir sitji inni með alla þekkingu, sem hægt er að hafa á málinu, og þeir láta ekki sannfærast. Því miður eru margir svo í þessum sölum, að þeir eru ekki komnir hingað til að láta sannfærast. Ég þóttist draga mjög ljóst fram mínar ályktanir með þeim gögnum, sem ég hafði fyrir hendi. Ennfremur sagði hv. þm., að ég ætti fremur að láta ljós mitt skina í þessu máli til að ráða niðurlögum veikinnar heldur en halda fyrirlestra um hana hér.

Hv. þm. V.-Húnv. kom inn á það sama, enda fannst mér -ræða hans meir endurhljómur af ræðu hv. þm. Mýr. Ég vildi svara þeim báðum því við þessum ásökunum, að ég hefi haft afarlitið tækifæri til að láta ljós mitt skina í þessu máli; það hélt ég að þeir vissu. Þó að mér hafi verið falið í fyrra af ríkisstj. að fara vestur í Húnavatnssýslur aðeins til að kynna mér veikina, sjá hana með eigin augum, til þess að ég gæti borið um, hvort ég hefði séð veikina áður eða ekki. Annað var mér ekki falið. Og ég kvað upp úr með það, að ég hefði séð veikina í mörgum tilfellum áður, og hélt skýrt og skorinort fram, að um gamlan sjúkdóm væri að ræða. Það eitt hefi ég gefið út, og bókstaflega ekkert annað. Og þó að ég hafi fengið aðkast og svívirðingar út af því, sem ég hefi lagt inn í málið, þá mun ég láta mér það í léttu rúmi liggja. Ég þykist bera sannleikanum vitni og hafa alveg hreinan málstað. Ég hélt líka fyrir mitt leyti, að ég hefði skilyrði til að vera einna dómbærastur um þetta, þar sem ég er elzti dýralæknir landsins og hefi því haft mjög mikið með sjúkdóma að gera. Ég hefi slegið því föstu, að það var greinilegt, að hér var um gamlan en ekki nýjan sjúkdóm að ræða. En það, sem byggt er nú á, er að þetta sé nýr, ólæknandi, bráðsmitandi sjúkdómur; og það er það, sem vakið hefir ótta hjá fólkinu, sérstaklega á sýkingarsvæðunum. — Þá hafa menn fundið upp, að ég héldi fram, að féð hryndi niður úr ímyndunarveiki. Þó að ég þekki dálítið til sálarástands fjár, þá hélt ég ekki, að rollurnar væru svo næmar á því sviði, að þær vesluðust út af af ímyndunarveiki. En ég get gengið inn á, að margt fólk er ímyndunarveikt.

Þá vildi hv. frsm. landbn. halda fram, að mín ræða hefði farið fyrir ofan garð og neðan, en aldrei komið inn á frv. Þetta er rangt, því að ég tók greinilega fram, að ég vildi ekki beita mér á móti frv., vegna þess að ég héldi, að úr því sem komið væri, þar er þingmenn væru búnir að segja A, þá yrðu þeir líka að segja B. Þetta fannst mér skýr afstaða í málinu, þó að ég gangi ekki inn á hvern lið fyrir sig. Hitt var mér í muna, að gefa þingmönnum yfirlit yfir þetta mál skoðað frá mínum bæjardyrum, og hélt ég, að það væri engin goðgá. Ég var í þeirri burnalegu einfeldni að halda, að ég ætti við leikmenn, en ekki sprenglærða menn, eins og þessa hv. þm. Þá var það algerlega misskilningur eða ranghermi hjá hv. þm. Mýr., að ég haldi fram, að það hafi drepizt fátt fé úr þessari veiki. Ég sagði, að það hefði drepizt fátt úr mæðiveiki. En það drapst fjöldi úr fjárpest, sem gengur hér. En það er ekki mæðiveiki, og þessu má ekki blanda saman. En helztu ráðamennirnir blanda þessu saman. Þeir játa sjálfir, að hér sé lungnapest eða lungnadrep, sem gengur jafnt og þétt. Og þetta drepur allan þorrann. En svo drepst eitthvað úr mæðiveiki. En það er fátt. Ég mótmæli ekki, að drepist margt fé. En viðvíkjandi ásökunum í garð dýralækna fyrir að kveða ekki fjárpestina niður, — ja, með hverju þá? Ég bið menn að athuga t. d. farsóttir í mönnum. af hverju eru ekki þær stóru kröfur uppi, þegar farsóttir geisa, gagnvart læknastétt landsins, þeirri góðu og stoltu stétt, að þeir lækni hvert tilfelli? Tökum veikina, sem kom hingað 1918 og óð um part af landinu. Af því að læknum tókst ekki að lækna fjölda tilfella þar, þá væri álíka fjarstætt að ásaka þá fyrir það eins og að ásaka dýralækna nú. Það gegnir þarna sama um skepnur og menn, og kannske öllu frekar, því að við höfum ekki á valdi okkar húsakynni og meðferð fjárins eins nákvæmlega eins og að því er menn snertir. Ég bið þm. að athuga þetta í því ljósi, hverja aðstoð hvorir tveggja læknarnir hafa, en þarna eru samsvarandi dæmi um farsóttir í mönnum og skepnum.

Þá sögðu báðir þessir hv. þm., að það væri aukaatriði, hvað sjúkdómurinn héti, hver hann væri; það kom ekki svo mikið málinu við, skildist mér. Aðalatriðið væri það, að veikin dræpi ákaflega mikið. Þetta er ákaflega vel sagt. Það er aðalatriðið, að það drepst fjöldi fjár. En hvernig á að ráða niðurlögum einnar veiki, sem menn hafa ekki hugmynd um, hver er? Ég hélt, að undirstaðan væri sú, að finna eitthvað ákveðið í því fyrst. Það var tilraun af minni hálfu með þessum fyrirlestri, sem ég flutti á grísku, latínu og þýzku, auk íslenzkunnar, að ég var að að reyna að koma mönnum í skilning um, að hér hafi verið skakkt að farið.

Svo kom skáldið upp í hv. þm. Mýr. Hann kvaðst hafa séð, að þegar við dýralæknar vorum á fundi út af þessu máli í fyrravetur, höfum við verið sammála um, að ekki væri nýr sjúkdómur á ferð, heldur sérstakt form annars sjúkdóms. við fórum þarna með íslenzku, en hefðum líklega átt að nota grískuna og segja „symptom“ í öðru formi, úr því að íslenzkan hefir líka hneykslað. En sumum mönnum er svo tamt að hnjóða í vísindin, og læt ég mér það í léttu rúmi liggja. Þá gat ég þess, að dýralæknar hefðu verið fótum troðnir. Ég vil endurtaka, að við dýralæknar á Íslandi höfum verið meira og minna fótum troðnir og ýtt til hliðar, þegar um heilbrigði alidýra hefir verið að ræða. Þetta er ekki í fyrsta skiptið. Það var í kláðavörnunum frá upphafi til enda, þar sem þeim var algerlega ýtt út við dyrastafinn, og öðrum mönnum og ólærðum bændum var fengið alræðisvald í þeirri baráttu. Svona er þetta á hverju sviði næstum því. Ég vil segja, að mér þykir hart. þar sem skipaður er maður í bænum til þess að vera ráðunautur stj., að hann er ekki einu sinni kvaddur til skrafs og ráðagerða í þessu mikla máli, sem snertir svo mjög landbúnaðinn og alla framtíð hans. Hann er ekki spurður til ráða, en teknir menn, sem hafa bókstaflega ekkert vit á málinu, og gefið alræðisvald til að fyrirbyggja útbreiðslu veikinnar. Það er háðung, að við dýralæknar skulum þurfa að búa við svona kost. Það myndi hvergi geta gengið nema á Íslandi.

Þá endaði hv. þm. Mýr. á því sér til stuðnings, að nú hefði hann heyrt, að þýzkir sérfræðingar kunnu ekki skil á þessari Jaagziekte-veiki, en í Þýzkalandi gangi veiki í sauðfé, sem mjög líkist þessari veiki, og hver sé kominn til að segja, að það sé ekki einmitt Jaagziekte-veikin, sem Þjóðverjar gefi bara annað nafn. Þetta eru alveg ný vísindi, sem hvergi þróast nema á Íslandi. Annars læt ég þess getið, að sérfræðingar í alidýrasjúkdómum í Þýzkalandi eru viðurkenndir um allan heim sem í fremstu röð. Og ekki aðeins þar, heldur og í flestum löndum veraldar eru menn komnir að fastri niðurstöðu um þetta mál í flestum höfuðatriðum.

Þá sný ég mér að hv. þm. V.-Húnv. Hann tók upp ýmislegt úr minni ræðu. Nú verð ég að taka fram fyrst og fremst, að ég talaði faglega um málið, eftir því sem hægt var. Auðvitað varð ég að koma með markalínu til að styðjast við. Og ég gat um það m. a., að það hefði verið gert meira úr þessari veiki en hún í rauninni er. Þar með er ekki sagt, að ekki drepist fjöldi af fé í landinu úr vissri veiki. En ég mótmæli, að það drepist svo margt úr þessari veiki. Það er úr öðrum sjúkdómi nefnilega „hæmorrhagisk septicæmi“. Þessi mæðiveiki, sem kölluð er, er ekki nema einn þáttur úr þeirri veiki. En það fer ekki nema örfátt úr þeirri veiki ef á að aðskilja hana og gera þetta að tveimur sjúkdómum. Það er harla einkennilegt orðalag, að ég læði því inn í fólkið, að ráðstafanir séu óþarfar. Ég hefi aldrei reynt að læða neinu inn í fólkið. Ég hefi vanalega fengið orð fyrir að vera hreinskilinn — og kannske heldur hreinskilinn — og kann ekki að læðast. Og það hefir allra sízt verið minn háttur í þessu máli. Ég geng hér á móti öllu Alþingi Íslendinga og ætti von á að standa þar einn, og hika ekki við það. Hinsvegar hefi ég gert hreint fyrir mínum dyrum og látið skoðun mína í ljós. Þess vegna frábið ég mér þá ásökun, að ég læðist hér á þingi. Ég gat þess, að ég hefði ekki trú á þessum ráðstöfunum. Og ég hefi séð og heyrt. og jafnvel kom hv. frsm. landbn. inn á, að ráðstafanirnar muni ekki hafa komið að tilætluðum notum eins og þær voru gerðar. Ef hann er að „læða“ því inn, að þessar ráðstafanir hafi verið skakkar, þá geri ég ráð fyrir, að það eigi ekki að falla á mitt bak heldur andstæðings míns. Þá mótmælti hv. þm., að það væri um trú að ræða hjá fólkinu. Ég vil bara mótmæla því aftur. Það er trú hjá fólkinu, að það sé nýr, ólæknandi sjúkdómur og bráðsmitandi. Á þessu eru allar rannsóknir og ráðstafanir byggðar. Það er trú, af því að það veit ekki sjálft enn í dag, hvað þetta er. Þess vegna er það að berjast við draug. Draugurinn er vera, sem menn ekki vita hvað er.

Loks klykkti hv. þm. út með almennum ásökunum á mig, af því að ég á að heita dýralæknir í Húnavatnssýslu, og hefir svo verið í 28 ár. Ég skal þó geta þess, að kjósendur þessa hv. þm. hafa látið svo lítið að hringja hingað og biðja um ráðleggingar og resept, svo að einhverjir eru ennþá þar, sem álita, að eitthvert vit sé í að leita til mín, og mætti kannske finna slíka menn hingað og þangað um byggðarlagið. En út af þessari afstöðu minni, að ég þorði á móti öllum að kveða það upp, að hér væri gamall sjúkdómur, en ekki nýr, þá hefi ég verið svívirtur út um byggðir landsins, — fyrir það, að ég vogaði að halda fram, að þetta væri gamall sjúkdómur, sem ég hefi sjálfur þreifað á um tugi ára svo að segja á hverju einasta ári. Slík goðgá er það talin, að ég dansa ekki eftir pípu þeirra, sem minna vit hafa á málinu. Hv. þm. kvaðst undrast, að ég skyldi ekki fara út um byggðir landsins og kveða niður þessa veiki. Og í örlæti sinnar náðar býðst hann til að láta mig hafa fé til tilrauna í sínu héraði. Ég er ákaflega þakkiátur fyrir tilboðið. En ég get ekki þegið tilboðið vegna þess, að ég hefi ákaflega lítil efni á því sjálfur að leggja út í það, og það er öðru nær en að menn hafi viljað styrkja mig til þeirra starfa. Því á ég að finna hvöt hjá mér til að fara og gera tilraunir og kosta til að kaupa allt það marga, sem til þess þarf, þegar stjórnarvöldin vilja ekki láta gera það? Væri mér falið þetta, þá stendur ekki á mér, og þá þigg ég boð hv. þm. V.-Húnv.

Það, sem ég í þessu máli vildi minna á, er það, að þrátt fyrir vísindalegar rannsóknir á þessu sviði, er enn svo mikið eftir, — og að mínum dómi er allt eftir, sérstaklega að gera bólusetningu með „bipoiar immuserum“, svo að ég hneyksli hv. þm. Mýr. með latínunni, til þess að skera úr, hvort um þennan sjúkdóm sé að ræða, sem ég talaði um, og hvort ekki sé hægt að lækna þessa veiki. Þetta er þungamiðjan, þetta á að gera. En með niðurskurði og girðingum og öðrum ráðstöfunum komast menn aldrei lengra en þetta.