16.12.1937
Neðri deild: 52. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 620 í B-deild Alþingistíðinda. (899)
140. mál, mæðiveikin
*Einar Olgeirsson:
Þetta er mjög mikilvægt spor til að bæta bændum eitthvað upp það mikla tjón, sem þeir hafa orðið fyrir. Ég álít, að það riði mjög mikið á, að málið komist sem allra fyrst í gegnum þingið. Þó að ég hafi mikla tilhneigingu til að vera sammála hv. þm. Ak. viðvíkjandi hans gagnrýni á ýmsar aðgerðir í þessu máli, þá álít ég, að umræður um það eigi alls ekki heima í sambandi við þetta frv., og væri miklu nær að bera fram út af því máli sérstaka þáltill. til að skora á ríkisstj. að kosta kapps um þær aðgerðir, sem virkilega gætu að haldi komið til að hindra útbreiðslu veikinnar. Þess vegna álít ég, að menn ættu að koma sér saman um að tefja ekki að óþörfu fyrir þessu máli, sem allir eru sammála um. Það væri mjög leitt, ef þau mál skyldu þurfa mesta umræðu og lengsta töf, sem allir eru mest sammála um, að riði hvað almest á fyrir bændastéttina.