18.12.1937
Sameinað þing: 16. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 149 í B-deild Alþingistíðinda. (90)
1. mál, fjárlög 1938
*Páll Zóphóníasson:
Það eru nokkur atriði, sem mig langaði til að tala um. En þar sem orðið er svo áliðið, skal ég ekki minnast á nema nokkuð af því. Ég hefi talað við fjvn. oftar en einu sinni um það, að það þyrfti að breyta nokkuð læknisvitjanastyrk í mínu kjördæmi. Einn hreppur, sem hefir 300 kr. læknisvitjanastyrk, þarf ekki lengur á honum að halda, vegna bráðabirgðaráðstafana landlæknis um læknisvitjanir í þeim hreppi. En vegna sömu ráðstafana hafa aðrir hreppar þessa læknishéraðs yfir langan og erfiðan fjallveg að sækja og þurfa þess vegna læknisvitjanastyrks. En ekki þótti rétt að taka upp breytingu á þessu í fjárl., þar sem ekki er vitað, hvað lengi læknirinn situr þarna. Og þess vegna hefi ég fallið frá að koma með slíka brtt., en treysti því jafnframt, að meðan þetta ástand ríkir í Hróarstungulæknishéraði, verði af hæstv. stjórn og landlækni, sem hafa með þetta mál að gera, séð um það fyrst og fremst, að sá læknisvitjanastyrkur, sem átti að fara til Borgarfjarðarhrepps, sé látinn fara til hinna hreppanna, og bætt einnig við 200–300 kr., þótt ekki sé beint tiltekið í fjárl.
Þá vil ég í öðru lagi leyfa mér að benda á, að allmargir þm. eru með brtt. til viðauka á framlögum til vega. En ég hygg, að ýmsir þeirra hafi ekki áttað sig á, hvað það er, sem þeir bera fram. Á þskj. 402 er undir 90. lið, tölul. B. b, ætlazt til, að lagðar séu fram 110000 kr. til vegagerða á mæðiveikisvæðinu. Ég hygg, að við athugun muni allir þm. sjá, að það kemur gegnum þessar ráðstafanir minna vegafé inn á þessi svæði en ella, og þess vegna sé ekki ástæða til þess að samþ. þessa till., þó að hún sé fram komin.
Í sambandi við þetta vildi ég vekja athygli á því, að í 90. lið a. er gert ráð fyrir, að varið verði í sambandi við ráðstafanir gegn mæðiveikinni 300 þús. kr. Ég vil benda á þetta af því, að maður verður var við hér í þingi, að sumir líta svo á, að þetta svokallaða mæðiveikisvæði sé ekkert sérstakt svæði á landinu. Og þá vil ég láta þessa menn vera sjálfum sér samkvæma og vera á móti því, að verið sé að takmarka þetta svæði sérstaklega. Það verður áreiðanlega eitt af verkefnum þingsins, sem kemur saman í vetur, að gera í því máli eitthvað frekar en gert er í þessum fjárl. Þess vegna er rétt fyrir menn að athuga nú, hvaða tökum þeir vilja taka þessi mál.
Ég hefi ekki flutt hér nema eina litla brtt., þá sem hv. þm. Mýr. minntist á áðan. Hann hélt, að í þeirri brtt. lægi, að vafi léki á, hvort Ásgeir Þ. Ólafsson væri rétt feðraður og ég mundi vita eitthvað um faðerni hans. Svona er þessu þó ekki varið, heldur þannig, að fyrir hv. fjvn. lágu umsóknir frá tveimur dýralæknum. Önnur var frá Ásgeiri Þ. Ólafssyni um utanfararstyrk til að kynna sér nýjungar, að ég held í lækningum á húsdýrasjúkdómum. Hin var frá Ásgeiri Einarssyni um styrk til að kynna sér loðdýralækningar. Þegar ég sá brtt. hv. þm. Mýr., hélt ég, að þar væri um misritun að ræða, því að Ásgeir Þ. Ólafsson hafði aldrei sótt um styrk til loðdýralækninga. Hér er því um leiðréttingu að ræða frá minni hendi, sem er líka í samræmi við umsókn Ásgeirs Einarssonar, því að það er hann, sem hefir sótt um styrk til loðdýralækninga, en ekki Ásgeir Þ. Ólafsson. (BÁ: Vill hv. þm. ekki taka till. aftur?). Nei, alls ekki, því að það var Ásgeir Einarsson, sem sótti um þennan styrk, en ekki hinn. Ég skal ekki dæma um þessa menn, en vil þó benda á, að á síðasta þingi voru afgr. l. um búfjársjúkdóma, sem lögðu dýralæknum þá skyldu á herðar að koma í hvern hrepp og safna skýrslum um búfjársjúkdóma, og áttu þeir að fá 500 kr. fyrir. Ég talaði ekki í þessu máli, en ég lét í ljós við marga menn, að ég teldi vafasamt, að þessu yrði framfylgt, og ég held, að á þessu ári hafi enginn nema Ásgeir Einarsson gert þetta. (SvbH: Það voru aldrei samþ. l. um þetta; frv. dagaði uppi). Þetta sýnir þó, hvaða áhuga Ásgeir Einarsson hefir. samanborið við hina dýralæknana, og því er sjálfsagt að hjálpa honum til að auka þekkingu sína.