18.12.1937
Efri deild: 52. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 627 í B-deild Alþingistíðinda. (909)

140. mál, mæðiveikin

*Jón Baldvinsson:

Það má vera, að sumt af því, sem gert hefir verið til að hindra útbreiðslu mæðiveikinnar, hafi verið gert út í loftið. Menn hafa ekki haft hugmynd um það, hverjar ráðstafanir mættu að gagni koma. Og þá verður mönnum að fara svipað að og þegar einhver veikist og ekki næst í lækni, þá er leitað allra bragða, og verður vitanlega sumt fálm út í loftið, þegar þekkinguna vantar. Pest þessi er svo alvarlegur hlutur, að sjálfsagt er, að ríkissjóður leggi fram fé til að berjast gegn henni, en leiðinlegt er til þess að vita, ef fénu er hent í ráðstafanir, sem verða svo að engu gagni. — Hv. þm. hafa yfirleitt ekki vit á því, hvað hér er um að ræða, menn vita það eitt, að það geisar óskapleg fjárpest, og sérfræðingar þeir og dýralæknar, sem fengnir hafa verið til að rannsaka veikina, eru ósammála um, hvaða veiki þetta sé. Þetta villir okkur leikmennina; við vitum ekki, hverjum ber að trúa. Helzt virðist það ráðlegt að fá nú enn sérfræðinga í húsdýrasjúkdómum til að rannsaka veikina, — menn, sem ekki hefðu tekið neina afstöðu með dýralæknunum eða með þeim háskólamönnum öðrum, sem um málið hafa fjallað. Það er von, að trú manna fari að bila á þá sérfræðinga, sem nú hafa kákað lengi við þetta mál án nokkurs árangurs. Þeir hafa lýst því yfir við og við, að nú hefðu þeir fundið öruggt meðal við pestinni, en þegar á hefir reynt, hefir það sýnt sig að vera haldlaust. Það hefir verið mesta fálm við þær ráðstafanir, sem gerðar hafa verið til að hefta útbreiðslu veikinnar, og ég er hræddur um, að ekki hafi verið lögð sú áherzla á það sem skyldi, að fa beztu erlenda sérfræðinga til að rannsaka veikina.

Mér fyndist eðlilegra, að n. sú, sem ráðh. á að skipa, verði kosin af Alþ., en ekki eftir till. þingnefndar. Bezt væri, að þingið kysi þriggja manna nefnd, en það væri ekki lagt alveg á vald landbúnaðarráðh., hvernig nefndin verði skipuð — og felst þó í þessum orðum mínum ekkert vantraust á hæstv. landbúnaðarráðh.

Það má ekki heldur taka þessi orð mín svo, að ég leggi á móti þessu máli. Það er óhjákvæmilegt að veita fé til varnar veikinni, þó að ég sé ekki fyrirfram sannfærður um gagn þeirra ráðstafana, sem gerðar verða. Ég sé engu ástæðu til að fara að þvæla frv. í nefnd; það er ekki hugsanlegt, að við nefndarmennirnir finnum nokkur betri form á framkvæmd þessa máls á þeim stutta tíma, sem við gætum haft til að athuga málið. Ég vil skjóta því til hæstv. landbrh., hvort ekki væri hægt að breyta svo ákvæðinu um kosningu nefndar þeirrar, sem á að hafa yfirstjórn þessara mála, að hún verði kosin í Sþ. Það er engin hætta á, að málið dagi uppi þess vegna. Þingið skilst ekki svo, að það afgreiði ekki þetta frv., og það tekur ekki mikinn tíma, þó að málið fari milli d., þar sem allir flokkar eru sammála um það.