20.12.1937
Efri deild: 53. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 631 í B-deild Alþingistíðinda. (914)
140. mál, mæðiveikin
Forsrh. (Hermann Jónasson):
Ég ætla nú ekki að fara að ræða þetta mál sérstaklega, bæði vegna þess, að ekki er tími til þess, og að búið er að undirbúa það allrækilega af báðum landbn. og góð samvinna hefir verið milli allra aðilja, sem þar áttu hlut að máli.
Ég tel eðlilegast, að allir flokkar hér á Alþ. eigi fulltrúa í þessari nefnd, sem á að sjá um þessar framkvæmdir, er frv. gerir ráð fyrir, og þess vegna vildi ég heldur, að þessi till., sem hér liggur fyrir um það, að nefndin verði kosin í Sþ., yrði dregin til baka, því að ég tel líklegt, að hægt sé að ná samkomulagi í landbn. um þá menn, sem í þessi störf verði valdir, og að það sé öllu betra, að valið fari þannig fram.
Ég lýsi því þess vegna yfir, að ég mun beita mér fyrir því, að allir þrír stærstu þingflokkarnir taki sæti í þessari nefnd og útbýti þessu fé og geri þær aðrar ráðstafanir, sem ætlazt er til, að gerðar verði, því að mér finnst það eðlilegast og réttast, eins og málið hefir verið rekið hingað til.