01.11.1937
Neðri deild: 16. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 639 í B-deild Alþingistíðinda. (927)

21. mál, bændaskólar

Pétur Ottesen:

Ég get skírskotað til þess. sem hv. frsm. landbn. sagði fyrir n. hönd um þetta mál allnennt, en það er eitt atriði í brtt. á þskj. 59, sem var reifað í n., sem ég var hinum nm. ekki allskostar sammála um. Það var sá hluti brtt., er snertir framhaldsdeild við bændaskólann á Hvanneyri. Ég tek undir það, sem hv. frsm. landbn. sagði um það atriði, að þó að það yrði sett í l. nú, að þarna yrði tekin upp framhaldsdeild fyrir þá nemendur, sem óskuðu meiri búfræðiþekkingar en skólarnir nú veita, þá er ekki hægt að framkvæma það án þess að rýmkað sé mikið til um húsakost við skólann frá því, sem nú er, auk þess sem vitanlega þarf að leggja þar í ýmsan kostnað annan vegna þessa framhaldsnáms, fram yfir það, sem þyrfti vegna þeirrar almennu búnaðarfræðslu, sem nú er veitt í búnaðarskólum þessa lands. Eins og nú stendur, og mun einnig verða, ef frv. þetta verður ekki að l., sem draga úr aðsókn til bændaskólanna, þá er ekki hægt að framkvæma þá kennslu í þessum skólum samsvarandi eftirsókninni eftir þeirri fræðslu, vegna þess að ekki er hægt að taka á móti öllum, sem sækja um skólana, sem aftur stafar af þrengslum í skólunum. Að þessu leyti má segja, að löggjöfin um þetta efni nú sé að nokkru leyti ekki nema pappírsgagn, þar sem ekki er hægt að veita öllum, er þess óska, aðgang að skólanum. Mér virðist landbúnaðurinn vera svo sterkur þáttur í okkar þjóðlífi, og afkomu okkar lands, að það beri fullkomlega að stefna að því, svo sem föng eru til, að efla þekkingu manna um þá atvinnugrein. Út frá því er það, að ég hefi ákaflega mikla tilhneigingu til þess að vilja styðja að því, að þeir menn, sem vildu tileinka sér meiri fræðslu í þessum efnum heldur en fæst með þeirri almennu fræðslu, sem veitt er í bændaskólum hér á landi nú, geti hlotið slíka framhaldsfræðslu. Ég vil, að gert sé hið ýtrasta til þess að mæta þessum óskum manna, og það því fremur, sem gert er ráð fyrir í þessum l., að menn eigi kost á lengra námi en þriggja missira námi. Þessa vildi ég óska, bæði með tilliti til þeirra manna, sem standa eiga fyrir nauðsynlegum búrekstri, og ekki siður með tilliti til þeirra, sem síðar verða ráðunautar fyrir hinn margbreytta félagsskap búnaðarsamtakanna í landinu til leiðbeiningar bændum og búaliði í þeirra störfum. Ég hygg því, að með því að setja upp slíka framhaldsdeild við búnaðarskóla hér á landi, mundi verða auðið að gefa miklu fleiri mönnum kost á námi í bústörfum heldur en með því að vísa mönnum til útlanda um fræðslu í þessu efni. En það er síður en svo, að hv. flm. brtt. á þskj. 59 vilji varna því, að menn fari til útlanda til þess að leita sér fræðslu um búnaðarmál. Þvert á móti gera þeir ráð fyrir því í till. sínum, að það opinbera veiti mönnum styrk til slíkra utanferða; en þess er krafizt sem tryggingar fyrir því, að þessir menn sigli í ákveðnum tilgangi, að þeir eigi þess kost að komast að ráðunautsstarfi þegar að þeirri siglingu lokinni.

Skal ég svo ekki segja fleira um þetta. En ég hefi tilhneigingu til þess að greiða atkv. með þessum hluta brtt. þeirrar, sem flutt er á þskj. 59, þó að vítanlega sé svo ástatt, að nú sem stendur sé ekki hægt að setja á stofn þessa framhaldsdeild við Hvanneyrarskólann eins og þeir gera ráð fyrir, vegna þess að þar er of þröngur húsakostur. En það rekur mjög brátt að því, að auka verði húsakost þar, miðað við aðsókn til skólans undanfarin ár, svo framarlega sem nokkur möguleiki er fyrir hendi um fé til slíkra hluta. Fyndist mér þá, að ákaflega vel færi á því, að þegar að því væri undið að bæta úr þessari brýnu þörf um húsnæði skólans, þá væri þetta hvorttveggja haft fyrir augum, að fullnægja frekari eftirspurn eftir þeirri fræðslu, sem skólinn veitir nú, og svo líka sá hugsanleiki að setja á stofn framhaldsdeild við skólann. En hvað sem öðru líður, þá væri ekki skynsamlegt að standa á móti því, að húsakostur á Hvanneyri væri mikið endurbættur og aukinn frá því, sem nú er.

Ég skal aðeins taka beygi mig fyrir því, að þarna á að hafa með höndum verklega kennslu á miklu fleiri svið¬um heldur en á einum stað er farið inn á í algengum búrekstri. Þess vegna tel ég ekki rétt að standa á móti þeirri tilhögun á þessu, að búin verði rekin fyrir reikning ríkisins. Ég er því sammála meðnefndarmönnum mínum um þetta atriði.

Ég vænti þess, að frv. þetta nái fram að ganga. Það stefnir áreiðanlega í rétta átt, með því að það leggur meiri áherzlu á verklega námið við búnaðarskólana heldur en gert hefir verið að undanförnu. Ég hygg líka, að svo sé um hnút¬ana búið í frv., að þetta verði ekki til þess að fæla menn frá skólunum.