18.12.1937
Sameinað þing: 16. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 157 í B-deild Alþingistíðinda. (94)
1. mál, fjárlög 1938
*Frsm. (Bjarni Bjarnasson):
Þó að það kynni að hafa þýðingu að tala nokkuð um brtt. þær, sem hér liggja fyrir, eru tvær ástæður til þess, að ég læt það hjá líða. Önnur er sú, að áliðið er nætur, en hin þó veigameiri, sú, að ég hefi ekki getað haldið fund í fjvn., svo að það, sem ég segði, myndi ekki vera álit fjvn. allrar. En ég mun gera till. um það við mína flokksmenn, hverjar till. beri að samþ. og hverjum að hafna. Annars hefir ekki gefizt tilefni þess, að ég tæki hér til máls, af því að fjvn. hafi verið áreitt. Hv. þm. hafa þvert á móti talað mjög hlýlega um störf n., og við 2. umr. var aðeins af einum hv. þm. deilt á n. vegna nokkurra atriða. Ég fyrir mitt leyti get því vel við unað.
Flestar af till. til útgjalda, er hér hafa verið lagðar fram, eru frá Kommfl., og þá öllum þm. hans í sameiningu. Ég ámæli þeim ekki, þó að þeir beri fram slíkar till. Það gera flestir flokkar, sem fámennir eru á þingi. Tel ég flestar þessar till. bera almenningsheill fyrir brjósti, og væru þær góðar í sjálfum sér, af fjármunir væru fyrir hendi til að fullnægja þeim. — Upphæðirnar nema alls um 1½ millj. kr., þegar búið er að draga frá lækkunartill., er fram hafa komið. Sjá væntanlega allir hv. þm., hver fjarstæða væri að samþykkja þær og afgreiða þannig fjárl. með 1½ millj. kr. greiðsluhalla. Af þessari 1½ millj. kr. upphæð hafa kommúnistar borið fram till. um 1,2 millj. kr. útgjöld. Þá hafa kommúnistar komið með till. um 700 þús. kr. ríkisábyrgð, en aðrir flokkar 250 þús. kr. Að því athuguðu, að Kommfl. er lítill á þingi, er eðlilegt, að hann láti í ljós skoðun sína með fjárkröfum. En þessar kröfur eru yfirleitt tiltölulega hógværar, eins og kröfur annara hv. þm., og sýnir það, að álit manna á störfum fjvn. muni vera það, að hún hafi gert sitt bezta.