24.11.1937
Efri deild: 34. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 652 í B-deild Alþingistíðinda. (944)

21. mál, bændaskólar

*Forsrh. (Hermann Jónasson):

Um þessa skrifl. brtl., sem liggur hér fyrir, vil ég segja það, að ég tel ekki, að hún skipti verulegu máli. En mér finnst þó ekki óeðlilegt, að það sé gengið frá frv. eins og landbn. hefir lagt til. Það var dálítið um það rætt, þegar frv. var í undirbúningi, hvort þetta ákvæði skyldi vera í frv. eða ekki, og það var talið eðlilegt, að svo væri, fyrir þá sök, að hér er um að ræða sérnám, og sú regla er yfirleitt látin gilda í l., að menn hafi með verklegum störfum búið sig undir það sérnám, sem þeir ætla að stunda. Og þó að það geti náttúrlega komið fyrir, að menn, sem aldrei hafa stundað landbúnað, verði góðir námsmenn við þetta nám, þá er þó ekki hægt að neita því, að það gildir sama reglan um þetta nám og annað sérnám, að það er ekki líklegt, að maður sé vel undir það búinn að nema búfræði, ef hann hefir aldrei skipt sér af landbúnaðarmálum. Þess vegna er það ekki óeðlilegt, að aðalreglan verði 2 ár, en að skólastjóri hafi undanþáguheimild gagnvart þeim nemendum, er líklegir sýnast, þó þeir hafi ekki fullan undirbúningstíma.

Um fyrirspurn hv. 10. landsk. til mín um það, hver muni verða kostnaðarauki af frv., ef að l. verður, vil ég segja það, að þegar frv. var í undirbúningi, var þetta rannsakað gaumgæfilega. Vegna breytinga á skólanum var gert ráð fyrir, að bæta þyrfti við einum kennara og jafnframt að hækka eitthvað laun þeirra kennara, sem fyrir eru, vegna þess, að skólaárið verður lengt, þannig að það nær yfir allt árið samkv. frv.; einnig mun verða eitthvað lítilsháttar betur búið að skólunum en verið hefir. Miðað við þessar breyt. frv. verður kostnaðaraukinn um 10 þús. kr. á ári.