18.12.1937
Sameinað þing: 16. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 157 í B-deild Alþingistíðinda. (95)
1. mál, fjárlög 1938
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Ég vil hér með færa hv. fjvn. þökk fyrir starf hennar. Mér hefir oft, síðan ég tók við ráðherraembættinu, fundizt fjvn. starfa vel, en þó aldrei betur en nú. Ég er ánægður með þær niðurstöður, er hún hefir komizt að, og vil ég færa henni þakkir fyrir.