14.12.1937
Sameinað þing: 14. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 666 í B-deild Alþingistíðinda. (974)
21. mál, bændaskólar
*Forsrh. (Hermann Jónasson):
Um brtt. ætla ég ekki að fara mörgum orðum vegna þess. að varla er hægt að búast við, að menn fari að skipta um skoðun á henni héðan af, eftir að frv. hefir gengið svo á milli d., sem raun er á orðin, en ég vil segja það, að í frv. elns og það liggur fyrir, án brtt., þó að ekki sé eins ákjósanlegt og verða mætti, þá felst þó í 6. gr., um skilyrði fyrir inntöku í skólana, það ákvæði í d-lið, sem tryggir mér heimild til að setja inn í reglugerðina samskonar ákvæði og tvisvar hefir verið fellt í hv. Ed., þótt þau væru ekki eins ströng og þau eru í frv. En þau myndu nægja, ef frv. yrði að l. eins og það er, og verða fyllilega viðunandi.
Ég vil vekja athygli hv. þm. á því, þótt þeir séu brtt. samþ., sem ég og er, að þá munu ekki fást 2/3 hlutar atkv. með frv. þannig breyttu en samkv. þingsköpum þarf slíkt atkv.-magn til að frv. verði samþ. í Sþ., ef brtt. nær samþykki. Þess vegna vil ég mælast til þess, þótt ég sé brtt. samþykkur, að hún yrði dregin til baka, eða ef hv. flm. vill það siður, að málið sé þá tekið út af dagskrá nú og athugað nánar áður en það kemur fyrir aftur.