05.05.1938
Efri deild: 63. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 723 í B-deild Alþingistíðinda. (1044)

136. mál, gerðardómur í farmannakaupdeilu

*Magnús Jónsson:

Eins og hæstv. forsrh. sagði, og eins og ég hefi lýst yfir í minni ræðu og yfirlýsingar liggja fyrir um, þá mun vera samkomulag um málið. Ég vil aðeins benda á, að til þess að sýna, að það er ekki nein hótfyndni í þessari till. minni, að við fljótlegan yfirlestur hefi ég rekizt á eina villu í frv. Þar er nefnt eimskipafélagið Edda h/f, sem er ekki til í landinu. Það mun vera eimskipafélagið Ísafold h!f, sem átt er við, en það gerir út skipið Eddu. Það mætti kannske túlka þetta þannig, að það næði til þessa eimskipafélags. En það er óeðlilegt, og mér datt í hug, hvort ekki gæti verið um fleiri smávegis villur að ræða. Það mætti náttúrlega leiðrétta þetta með brtt. En það hefir vaknað sá grunur hjá mér, að það gæti verið fleira, því að ég hefi aðeins lesið frv. mjög fljótlega yfir.