05.05.1938
Efri deild: 64. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 724 í B-deild Alþingistíðinda. (1050)

136. mál, gerðardómur í farmannakaupdeilu

*Sigurjón Á. Ólafsson:

Herra forseti: ! Út af ummælum bv. frsm., en ég heyrði ekki hvort hann sagði, að öll n. væri á þeirri skoðun, að ekki væri nein deila við Eimskipafél. Rvíkur og eimskipafélagið Ísafold, þá vil ég geta þess, að það er ekki öll n., sem er þeirrar skoðunar. Mér er kunnugt um, að samningunum við þessi félög hefir ekki verið sagt upp af hálfu Stýrimannafélags Íslands. Mér er ennfremur kunnugt um, að samninganefnd stýrimanna hefir gert ýtarlegar tilraunir til þess að ná samningum við þessi félög, sem ekki hefir tekizt. Hinsvegar skal ég ekkert um það segja, hvort sáttasemjari hefir gert ýtrustu tilraunir til sátta í málinn. En stýrimennirnir sjálfir munu annars gleggst vita þetta, því að í niðurlagi bréfs þeirra til forseta Alþýðusambands Íslands stendur, með leyfi hæstv. forseta: „Þó að lögfestur dómur sé að þessu leyti ekki nauðsynlegur gagnvart Skipaútgerð ríkisins, þá teljum vér heppilegra, að dómurinn dæmi einnig þar um, svo og út af deilu við eigendur Kötlu, Heklu og Eddu.“

Stýrimennirnir telja frá sínu sjónarmiði nauðsynlegt, að þessi dómur nái yfir alla. Ég hygg, að meiri hl. n. hafi einnig verið á þeirri skoðun, að þetta væri sjálfsagt og rétt, og þess vegna eigi að standa í frv., eins og í 1. gr. stendur, að dómurinn nái til allra eimskipafélaganna.