02.05.1938
Neðri deild: 59. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 745 í B-deild Alþingistíðinda. (1123)
88. mál, þilplötur o. fl. úr torfi
Sigurður Kristjánsson:
Út af því, sem hv. 7. landsk. sagði; þá vil ég taka það fram, að annar flm., sem mætti á fundi hjá okkur, taldi sig ekki geta sagt neitt um það, hvor vinnsluaðferðin yrði notuð. Mig minnir, að hann segði, að stofnkostnaðurinn gæti farið upp í 1/2 millj., ef hin dýrari aðferðin yrði notuð, en hann taldi eins líklegt, að höfð yrði ódýrari aðferðin, sem ekki myndi hafa mjög mikinn stofnkostnað í för með sér. Ef svo færi, að stofnkostnaðurinn yrði geysimikill og komið yrði upp einhverju verksmiðjubákni, þá er, eins og ég sagði áðan, alltaf opin leið fyrir löggjafarvaldið, að framlengja einkaleyfistímann. — Ég vil í þessu sambandi minna á það, að hér er ætlazt til, að gefið sé einkaleyfi til þess að vinna vörur til innanlandsnotkunar úr öllu torfi hér á landi. Það hefir þá enginn maður hér á landi leyfi til þess að framleiða slíkar vörur úr torfi, og mér finnst það vera óþarfi, ef einkaleyfið kemst í hendur útlendinga, að gefa þeim einkarétt til þess að geta haft svo hátt verð á þessari vöru sem þeir framast vildu. Slíkt gæti vel komið fyrir, að ekki væri hægt að flytja inn svona einangrunarvörur, vegna — við skulum segja gjaldeyrisskorts eða ófriðar, vegna ástands, sem er okkur ósjálfrátt eða okkar kæra ríkisstj. skapar okkur, og þá erum við seldir undir einræði þessa firma um þessi efni. Ef þeir færu vel að sínu ráði, þá væru engar líkur til annars en að þeir fengju framlengt sitt einkaleyfi. En hinu verður ekki neitað, að ef við höfum einkaleyfistímann svona langan, þá er verið að selja í hendur einstaks félags réttindi, sem gætu varðað landsmenn mjög miklu. Ég held, að það sé alger óþarfi fyrir okkur að vera að stíga þetta spor svona gleitt.