02.05.1938
Neðri deild: 59. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 746 í B-deild Alþingistíðinda. (1125)

88. mál, þilplötur o. fl. úr torfi

Forseti (JörB):

Mér hefir borizt skrifl. brtt. við 1. gr. frv., sem hv. þm. N.-Ísf. hefir nú lýst, að í stað „byggingarpappa og sellulose“ komi: byggingarpappa og tréni (sellulose).

Brtt. er skrifl. og auk þess of seint fram komin, og þarf því tvennskonar afbrigði frá þingsköpum til þess, að hún verði tekin til umræðu.