15.03.1938
Neðri deild: 22. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 759 í B-deild Alþingistíðinda. (1180)

59. mál, byggingar- og landnámssjóður

*Frsm. (Jón Pálmason):

Þessar brtt., sem liggja hér fyrir á þskj. 89 frá landbn., eru í samræmi við það, sem ég boðaði hér við fyrstu umr. Í raun og veru eru þær ekki nema tvær. Önnur að fella burt kaflaskipti úr lagaflokkum um nýbýli og samvinnubyggðir. Hin er um það, að taka upp sem bráðabirgðaákvæði frv., sem liggur fyrir þinginu frá hv. 1. þm. Rang. Nefndin er sammála um þessar brtt., og sé ég ekki ástæðu til að ræða þær frekar, en vænti þess, að þær nái samþykki hv. deildar.