12.03.1938
Efri deild: 20. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 784 í B-deild Alþingistíðinda. (1249)

57. mál, eftirlit með skipum

Brynjólfur Bjarnason:

Það verður ekki séð á þessu svari hæstv. atvmrh., hvort sjómannafélögunum í landsfjórðungunum hefir verið skrifað, og það hefir sennilega enginn verið tilnefndur frá Austfirðingafjórðungi og Norðlendingafjórðungi, og mér er ekki kunnugt um, af hverjum Sigurður Ólafsson var tilnefndur. (Atvmrh.: Hann var tilnefndur af Alþýðusambandinu vegna þeirra, sem ekki gátu sent fulltrúa). Þetta vildi ég fá fram. Þá vil ég spyrja, hvort þessum sjómannafélögum í Austfirðinga- og Norðlendingafjórðungi var skrifað og hvort þau gáfu það svar, að þau gætu ekki sent fulltrúa.