12.03.1938
Efri deild: 20. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 784 í B-deild Alþingistíðinda. (1250)
57. mál, eftirlit með skipum
Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):
Ég get ekki svarað þessu betur en ég áðan gerði. Alþýðusambandinn var skrifað 16. des., eins og ég gat um áðan, en vegna þess, hvernig stóð á ferðum að austan og norðan, þótti ekki fært að senda fulltrúa þaðan, og einn af mönnunum. ég held Sigurður Ólafsson, mun hafa verið tilnefndur af Alþýðusambandinu með tilliti til þeirra, sem ekki gátu sent menn.