15.03.1938
Efri deild: 22. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 785 í B-deild Alþingistíðinda. (1252)

57. mál, eftirlit með skipum

Ingvar Pálmason:

Mér er kunnugt um, að í sjútvn. er nokkur ágreiningur um vissar gr. þessa frv., en þar sem að sá hv. þm., sem mest hefir verið við samningu þessa frv. riðinn, hv. 3. landsk., er ekki við, þá hefði ég viljað mælast til þess við hæstv. forseta, að hann tæki málið út af dagskrá, því að ég kann ekki við að fara að ræða þær breyt., sem ég tel nauðsynlegar, án þess að hann sé við. Ég sé ekki, að frv. þurfi að líða neitt við það. þar sem sjútvn. hefir ennþá ekki tekið fullkomna afstöðu til þess, hvort sem er.