22.03.1938
Efri deild: 31. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 800 í B-deild Alþingistíðinda. (1266)
57. mál, eftirlit með skipum
Sigurjón Á. Ólafsson:
Brtt., sem hér liggur fyrir, er leiðrétting á brtt., sem borin var fram hér í gær á sama þskj., og er breyt. í því falin, að niður hafði fallið uppbót á launum aðstoðarmanns skipaskoðunarstjóra úr 4800 kr. upp í 6000 kr. Ég þarf ekki að fara fleiri orðum um þetta. Það er aðeins bein afleiðing af því, sem í frv. er. Það er samskonar till., sem hér er um að ræða, og mér skilst, að n. í heild geti nokkurn veginn verið sammála um það. Um brtt. að öðru leyti sé ég ekki ástæðu til að fjölyrða. Ég gerði grein fyrir því í gær, en um kostnaðarhliðinu almennt vil ég aðeins bæta því við, hv. þdm. til athugunar, að ég vitnaði í álit fiskiþingsins í gær, og með leyfi hæstv. forseta vil ég aðeins mega lesa upp eina málsgr. í nál. allshn. fiskiþingsins, sem lýsir nokkurnveginn skoðun þessa þings og þessarar stofnunar um viðhorf hennar til þessa máls:
„Ekki verður hjá því komizt, að skipaskoðunin kosti talsvert meira fé með þannig bættu fyrirkomulagi, og teljum við, að ekki megi í það horfa, til þess að sem beztur árangur náist í þessu efni. Komist slík skipan á, sem hér er ráðgert. verður að treysta því, að bætt verði úr þeim ágöllum, sem óneitanlega hafa verið á skipaskoðuninni undanfarið. Eftirlit skoðunarinnar mun og stórum batna með hinum fyrirhuguðu eftirlitsmönnum fjórðunganna, svo með aðstoðarmanni skipaskoðunarstjóra“.
Þetta er nú umsögn þessarar nefndar og fiskiþingsins í heild um það frv., sem hér liggur fyrir, eins og það var óbreytt, og vil ég, mínu máli til stuðnings, benda á það, að hér eru fulltrúar sjávarútvegsins að verki í þessu máli, og þeir lýsa einmitt viðhorfi sínu til frv. eins og það var, þegar það lá óbreytt fyrir sjútv.
Ég tel óþarft að fjölyrða frekar um hina fjárhagslegu hlið málsins. Ég gerði það að umtalsefni í gær, og ég vænti þess, hvað sem afstöðu hv. meðnefndarmanna minna viðkemur, að hv. þd. sjái, að ekki verður hjá því komizt, að verja þeirri upphæð, sem gert er ráð fyrir, 10000 kr., til þess að l. verði framfylgt eins og tilætlunin er með breyt. á l. um skipaeftirlit.