03.05.1938
Sameinað þing: 24. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 294 í B-deild Alþingistíðinda. (127)

1. mál, fjárlög 1939

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Því hefir verið haldið fram hér af stjórnarandstæðingum, að mjög hafi verið þyngdir skattar og tollar undanfarið. Ég hefi látið gera um þetta samanburð, þar sem þetta var borið saman, miðað við upphæðina á hvern mann að meðaltali, frá því 1925. Kemur þá í ljós. að meðaltal áranna 19251934 er kr. 100.48, en 1934, næsta ár áður en núv. ríkisstj. tók við, kr. 103.22. Undanfarin 3 ár, 1935–1937, er þetta meðaltal kr. 109.74. M. ö. o. er hækkunin á mann 9 kr. miðað við 1925 —1934, eða 9%, en 61/2 kr. miðað við 1934, eða 51/2%. Ef athugað er, hvað gert hefir verið á þessum sama tíma til aukinnar fyrirgreiðslu fyrir almenning, og að sauðfjárpestin ein hefir kostað ca. 5 kr. á hvert mannsbarn, þá sést, hvað áþjánin er mikil. Þetta eru staðreyndir, sem svara betur en nokkuð annað gífuryrðum hv. andstæðinga. Á þessum sama tíma hafa skattar í Rvík aukizt á hvern mann úr 88 kr. upp í 123 kr., eða um 40%.

Hér hefir mikið verið rætt um umframgreiðslu úr ríkissjóði. Við skulum nú athuga sannleikann í þeim efnum. Árið 1934 voru þær 5263000 kr., 1935 2300000 kr., 1936 1500000 kr. og 1937 2300000 kr. Þar af voru um 650 þús. kr. vegna fjárpestarinnar. Ég skal geta þess hv. sjálfstæðismönnum til samanburðar, að þau 2 ár, sem Jón Þorláksson fór með fjármálastjórn, var þetta 24% og 40% á móti 10–15% undanfarin 3 ár.

Þessum eldhúsdegi er að lykta. Hann hefir verið með nokkrum öðrum hætti en undanfarið. Það hefir minna verið rætt um meginstefnurnar, en verið meir um útúrsnúninga og rangfærslur um fjármálin. Þetta ber vott um þróttleysi andstæðinganna í að halda fram sinni stefnu.

Ég vil að lokum segja það, að þrátt fyrir lokun Spánarmarkaðarins og þrátt fyrir það, að fjárpestin geisar í 7 sýslum, hefir það tekizt á undanförnum 3 árum að auka hjálp til atvinnuveganna án þess að hækka tolla og skatta nema um 4½%. Skuldir ríkissjóðs hafa ekki aukizt og hagur hans ekki versnað. Síðan Spánarmarkaðurinn lokaðist, hefir verzlunarjöfnuðurinn verið hálfu hagstæðari. 1936 og 1937 hefir skuldasöfnunin við útlönd stöðvazt, þó að lausaskuldir hafi safnazt. Þrátt fyrir allt var atvinnuleysi minna síðastl. sumar en undanfarin 5 ár. Við eigum við að stríða ægilega fjárpest, en samt er ekki ástæða til að örvænta. Við skulum komast fram úr örðugleikunum, ekki með því að ljúga skuldum upp á landið, heldur með því að horfast í augu við erfiðleikana eins og þeir eru og láta ráðstafanir gegn þeim sitja í fyrirrúmi fyrir öllu öðru.