03.05.1938
Neðri deild: 60. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 806 í B-deild Alþingistíðinda. (1279)
57. mál, eftirlit með skipum
*Ísleifur Högnason:
Það, sem hv. þm. Ísaf. var að segja, að ekki sé kleift að fá aðra menn en útgerðarmenn eða eigendur skipa til eftirlitsstarfs á ýmsum stöðum, geri ég heldur lítið úr. Hv. þm. gat ekkí mælt gegn því, að betra væri að hafa ekki þann mann til skipaskoðunar, sem gæti haft löngun til að spara til viðgerðar á skipum og öryggis. En það liggur í hlutarins eðli, að slíkt yrði nokkur freisting fyrir útgerðarmenn og skipaelgendur. Vil ég þess vegna leggja áherzlu á, að þessar brtt. stefna til bóta. Ég er ekki úrkula vonar, að sjútvn. athugi þetta spursmál nánar, áður en það kemur til 3. umr., og ég legg áherzlu á, að útvegsmenn séu ekki skipaskoðunarmenn. Það gildir heldur ekki einu, hvort þagnarheiti er skilorðsbundið eða ekki, fyrir þá menn, sem kæra. Það er næg trygging að eigi megi kæra nema kæran sé á rökum byggð, til þess að menn eigi kæri að óþörfu. En eins og ég tók fram áðan, er alltaf hægt fyrir skoðunarmann, sem ljóstar upp nafni kæranda, að segja sem svo, ef hann var einn, þegar kæran kom fram, að viðkomandi sjómaður hafi ekki beðið sig að þegja. Þess vegna getur verið mjög nauðsynlegt að hafa þetta í frv. Ég mun ekki fjölyrða um þetta nú, en mun leggja fram brtt. fyrir næstu umr.