08.04.1938
Neðri deild: 44. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 812 í B-deild Alþingistíðinda. (1314)

95. mál, stéttarfélög og vinnudeilur

*Flm. (Gísli Guðmundsson):

Þetta frv. um stéttarfélög og vinnudeilur, sem hér liggur fyrir, er samið af mþn. í þessum málum, sem skipuð var í desembermánuði árið 1936. Hefir verið útbýtt hér meðal þm. áliti þessarar mþn., ásamt till. hennar, og get ég um margt þessu viðkomandi vísað til þessa álits. Ég tel það þó rétt, þar sem um alimikið nýmæli er að ræða, að gera hér við 1. umr. grein fyrir frv., og þá jafnframt lauslega undirbúningi þess, til þess að málið rifjist upp fyrir hv. þdm., sérstaklega þeim, sem ekki hafa haft tíma til að kynna sér nál.

n., sem unnið hefir að þessum málum, hefir aflað sér margskonar upplýsinga innanlands og erlendis, sérstaklega erlendis, viðvíkjandi málinu, og hún gerði það þegar í upphafi sins starfs. Eitt hennar fyrsta verk var að rita samtökum verkamanna og atvinnurekenda hér innanlands og óska eftir ýmsum upplýsingum viðvíkjandi starfsemi þeirra og fyrirkomulagi. Jafnframt ritaði n. svo sendiherra Íslands í Raupmannahöfn og fleiri aðiljum í því skyni að fá heimildir um slíka löggjöf og hér um ræðir víðsvegar um heim. Þá ritaði n. einnig landssamböndum verkamanna og atvinnurekenda í Danmörku, Noregi og Svíþjóð og óskaði eftir, að þau létu uppi álit sitt á gildandi löggjöf í þessum efnum í viðkomandi löndum, og ennfremur, hvaða breytingar þau teldu æskilegar á þeirri löggjöf, eins og hún lægi fyrir. Skal ég taka það strax fram, að þessi sambönd verkamanna og atvinnurekenda á Norðurlöndum hafa öll, nema eitt, svarað bréfum n., og eru svör þeirra prentuð í nál. Þegar svo að því kom, að n. færi að vinna úr þessu efni, þá hafði hún fengið í sínar hendur fyrst og fremst texta gildandi löggjafar í Danmörku, Noregi og Svíþjóð, sömuleiðis Bretlandi og Frakklandi, og textabreytingar, sem gerðar hafa verið á síðustu árum á þessari löggjöf. Ennfremur hefir n. fengið frá verkamannaskrifstofu Þjóðabandalagsins í Geneve yfirlit yfir slíka löggjöf víðsvegar um heim. Þessi skrifstofa var sett upp af Þjóðabandalaginu, til þess að fylgjast með málefnum verkalýðsins víðsvegar um heiminn. Hún vinnur að því að safna aliskonar hagfræðilegum upplýsingum viðvíkjandi þessu máli. Hún hefir m. a. gefið út tímarit, þar sem skýrt er frá öllum nýjungum á sviði löggjafar um málefni verkamanna, og jafnframt hafa frá þessari stofnun komið ýms fræðileg rit um þetta efni. Frá þessari skrifstofu fékk n. einmitt margháttaðar upplýsingar, sem hún hafði á sínum tíma til athugunar við sitt starf. Mér þykir rétt, áður en ég kem að frv., að drepa lauslega á það, sem áður hefir legið fyrir Alþingi í þessu máli. Ég hygg, að það hafi verið fyrst á þinginu 1923, sem borið var fram frv. um gerðardóm í kaupdeilum. Það frv. var aftur borið fram árið 1925. en náði í hvorugt skiptið fram að ganga. Árið 1923 var svo borið fram frv. til l. um sáttatilraunir í vinnudeilum, og þetta frv. varð að l. á því þingi. Siðar, á þinginu 1929, kom fram frv. um gerðardóm í kaupdeilum, sem náði þó ekki afgreiðslu. Á þingunum 1936 og 1937, og þingi því sem nú situr, hafa legið fyrir frv. um vinnudeilur, flutt af sjálfstæðismönnum, sem hafa heldur ekki náð afgreiðslu. Og á fyrra þinginu 1937 lágu fyrir tvö frv., annað um sáttatilraunir í vinnudellum, hitt um félagsdóm, sem voru flutt af mér. Ekkert af þessum frv. um slíka löggjöf hafa náð samþykki, nema frv. um sáttatilraunir í vinnudeilum 1925, og þau l. gilda nú hér. Þetta eru l., sem á sínum tíma voru sett aðallega eftir sænskri fyrirmynd, og hafa vafalaust gert eitthvert gagn. En hinsvegar er enginn vafi á því, að þau hefðu þurft að vera talsvert fullkomnari.

Um leið og ég fer inn á það frv., sem hér liggur fyrir, vil ég taka það fram, að n. hefir við samningu þess fyrst og fremst lagt til grundvallar þá löggjöf um slíkt efni, sem er í gildi annarsstaðar á Norðurlöndum. Með því að segja annarsstaðar á Norðurlöndum undantek ég Finnland, sem hefir talsvert öðruvísi löggjöf. En um leið og n. hefir lagt þessa löggjöf til grundvallar fyrir starfi sínu, hefir hún tekið alla hliðsjón, sem ástæða þótti til, til hinna sérstöku staðhátta Íslendinga. Ennfremur hefir n. haft það í huga, að til mála gæti komið að lögfesta viss atriði, sem tíðkazt hafa í sambandi við samninga eða orðin eru að hefð. Og loks höfum við tekið tillit til löggjafar annara landa en Norðurlanda.

Það er enginn vafi á því, að þegar hér verður sett slík heildarlöggjöf í fyrsta sinn — ég álít, að þetta sé í fyrsta sinn, þótt ákvæði um sáttatilraunir séu til áður —, þá verður hún fyrst og fremst að byggjast á erlendu fordæmi og með hliðsjón af þeirri reynslu, sem þar hefir fengizt.

Það er vitanlegt — mér er það a. m. k. ljóst —, að það má deila endalaust um mörg og kannske flest ákvæði frv., hvort þau mættu ekki vera að einhverju leyti á annan veg. Má færa fyrir því ýms rök. En það, sem ég tel rétt að hafa hliðsjón af, er löggjöf hinna sambærilegu landa, þeirra landa og þjóða, sem okkur eru líkust að staðháttum og þjóðháttum og hugsunarhætti. Ég ætlast til þess fyrir mitt leyti, að þetta frv. verði dæmt út frá því, hvernig ákvæði þess eru. samanborin við hliðstæð ákvæði í öðrum löndum.

Ég tel þá rétt að koma inn á að rekja efni frv. Ég mun að vísu gera það lauslega, því að það er ekki tími til annars, og auk þess er óþarfi að gera það nákvæmlega. En þó mun ég koma inn á helztu atriðin, sem frv. felur í sér.

Frv. skiptist í 4 aðalkafla. Fyrsti kafli er um réttindi stéttarfélaga og afstöðu þeirra til atvinnurekenda. Annar kafli er um verkföll og verkbönn. — Þriðji kafli er um sáttatilraunir í vinnudeilum. Og fjórði kafli er um félagsdóm.

Í fyrsta kafla eru ákvæði, sem lúta að stéttarfélögum, og er í 1. gr. frv. fram tekið, að menn eigi rétt á að stofna stéttarfélög og stéttarfélagasambönd í þeim tilgangi, að vinna sameiginlega að hagsmunamálum verkalýðsstéttarinnar og launtaka yfirleitt. Í 2. gr. þessa kafla eru svo ákvæði um það, að stéttarfélög skuli opin öllum í hlutaðeigandi starfsgrein á félagssvæðinu, og nánari ákvæði um félagssvæði. Þá eru í 3. gr. þessa kafla ákvæði um það, að stéttarfélög ráði málefnum sínum sjálf með þeim takmörkunum, sem í 1. eru, o. s. frv. Í 4. gr. eru ákvæði um það, að atvinnurekendum sé óheimilt að reyna að hafa áhrif á stjórnmálaskoðanir verkamanna, sem hjá þeim vinna, afstöðu þeirra og afskipti af stéttar- eða stjórnmálafélögum eða vinnudeilum. Þessi ákvæði eru sett til verndar verkamanninum, sem í flestum tilfellum er veikari aðilinn, fyrir því að lagðar séu einhverjar hömlur á hans frelsi til að hafa sínar skoðanir eða vera í þeim félagsskap, sem hann hefir óskað eftir. — Þá koma ákvæði um samningsaðild. Í þessum kafla eru ákvæði um það, að allir vinnusamningar skuli vera skriflegir. En ég skal taka það fram, að þar sem talað er um „vinnusamninga“ í þessu frv., er yfirleitt átt við hina svo kölluðu „kollektívu“ samninga, þ. e. samninga, sem gerðir eru við verklýðsfélög. Þá eru ákvæði um það, að samningstími og uppsagnarfrestur skuli tilgreindur, annars skuli samningstími talinn eitt ár og uppsagnarfrestur þrír mánuðir. Þetta ákvæði er sett til þess, að samningstíminn verði ekki óhæfilega stuttur. Þá er ákvæði um það, að samningur, sem gerður sé við einstaka verkamenn og fari í bága við samning, sem gerður hafi verið við verkamannafélag á staðnum, hafi ekki gildi. Þá eru ákvæði um ábyrgð þá, sem stéttarfélög beri á samningum, sem þau gera, og hvaða ábyrgð trúnaðarmenn stéttarfélaga beri. Þá koma í þessum kafla ákvæði um þau réttindi til handa; stéttarfélögunum; að þau mega velja sér trúnaðarmenn. Á hverri vinnustöð, þar sem vinnur ákveðin tala manna, mega viðkomandi verkalýðsfélög tilnefna tvo menn, og skal atvinnurekandi samþ. annan þeirra sem trúnaðarmann stéttarfélagsins á vinnustöðinni. Það er ætlazt til þess, að þessi trúnaðarmaður gæti þess, að samningar séu í engu rofnir á verkamönnum, og treyst til að jafna þann ágreining, sem kann að rísa út af samningi, án þess að það þurfi að fara til dóms. Það er þó tekið fram í þessari grein, að þetta ákvæði nái ekki til fólks, sem vinni við landbúnað, og ekki til áhafna skipa eða báta, sem ekki sé skylt að lögskrá á. En til þess að tryggja það, að þessir trúnaðarmenn verkamanna séu ekki látnir gjalda þess að gegna þessum störfum,eru viðurlög við því, að atvinnurekendur megi ekki segja þeim upp vinnu af þeim ástæðum, að þeir séu trúnaðarmenn.

Þetta eru aðalákvæði fyrsta kafla frv. Annar kafli er um verkföll og verkbönn, og þar í 15. gr. eru nánari ákvæði um það, með hverjum hætti vinnustöðvun sé löglega ákveðin. Það er gert ráð fyrir, að það geti orðið með tvennum hætti; við leynilega almenna atkvgr. í félagi, sem standi a. m. k. í 24. klst.; að vinnustöðvun sé ákveðin af samninganefnd eða félagsstjórn, sem hafi fengið umboð sitt á sama hátt, þ. e. a. s. með leynilegri atkvgr., sem hafi staðið a. m. k. í 24 klst.; í þriðja lagi þarf ákvörðun trúnaðarmannaráðs, ef það er til, og 1. viðkomandi félags fela því slíkt vald, enda hafi þá 3/4 hlutar trúnaðarmannaráðsins samþ. vinnustöðvunina.

Þessi ákvæði lúta að því að tryggja það, að ekki sé ákveðin vinnustöðvun í skyndingu, án þess að raunverulegur vilji væri fyrir hendi hjá því félagi, sem í hlut á, heldur sé það tryggt, að umhugsunarfrestur hafi a. m. k. gefizt til slíks, og að skilyrði hafi verið til þess, að vilji hlutaðeigandi félags gæti komið fram. Ég fyrir mitt leyti tel, að ákvæðið um atkvgr. í a. m. k. 24 klst. eigi að vera mikill trygging í þessum efnum. Þá er í þessum kafla, í 16. gr., ákvæði um fresti, þ. e. a. s., ef verkfall eða verkbann á að gera, þá ber að tilkynna það þeim, sem það beinist sérstaklega að, með 7 sólarhringa fyrirvara. Svo eru í 17. gr. ákvæði um það, í hvaða tilfellum, auk þess sem áður hefir verið nefnt, sé óheimilt að hefja vinnustöðvun. Það er þá fyrst út af ágreiningsatriðum, sem samkv. 4. kafla frv. eru lögð undir félagsdóm. Í öðru lagi er það ólögmætt samkv. þessu ákvæði að gera vinnustöðvun í þeim tilgangi, að þvinga stjórnarvöldin til að framkvæma athafnir, sem þeim l. samkvæmt ekki ber að framkvæma, eða framkvæma ekki athafnir, sem þeim l. samkvæmt er skylt að framkvæma, þ. e. s., að það. sem nefnt hefir verið pólitísk verkföll, er hindrað með þessu ákvæði, enda er með því að gera pólitísk verkföll í raun og veru farið út yfir þann tilgang, sem verkföllin upphaflega hafa, og verkfallsrétturinn í sjálfu sér misnotaður. Þá er ennfremur ákvæði um það, að ekki megi hefja vinnustöðvun til styrktar félagi, sem hafi hafið ólögmæta vinnustöðvun.

Í 18. gr. er ákvæði um það, að ef vinnustöðvun hafi verið löglega hafin, þá sé óheimilt að reyna að afstýra henni með aðstoð einstakra meðlima þeirra félaga eða sambanda, sem að vinnustöðvuninni standa, þ. e. a. s., ef t. d. verklýðsfélag hefir lýst yfir verkfalli á löglegan hátt, þá er hlutaðeigandi atvinnurekanda ekki heimilt að taka í vinnu menn úr því félagi, sem lýst hefir verkfallinu yfir.

Í raun og veru er með þessu ákvæði verið að staðfesta það, sem oftast hefir tíðkazt, að hinir svokölluðu verkfallsbrjótar hafa ekki verið látnir vinna, enda verður undir flestum kringumstæðum að telja óheppilegt, að svo sé gert, en það verður oft til þess, að óeirðir hljótast af, en ekki til þess, að deilan leysist.

Ég tel rétt í sambandi við ákvæði þessa kafla að minnast aðeins á það, hvernig tilsvarandi aðalákvæði í honum eru annarsstaðar á Norðurlöndum. Og það er þá fyrst og fremst ákvæðið í 16. gr., um þann frest, sem þarf að líða, áður en vinnustöðvun sé hafin.

Í Noregi getur orðið skylt að veita slíkan frest í hér um bil 16 daga, og veitist hann þá í raun og veru í þrennu lagi, þ. e. a. s., að fyrst er tilkynningarfrestur, áður en sáttasemjari tekur málið í sínar hendur, síðan er annar frestur fyrir sáttasemjara til að undirbúa málið, og loks þriðji fresturinn, sem líður frá því, að aðili hefir krafizt þess, að sáttaumleitunum sé lokið, og þangað til þeim er lokið.

Í Svíþjóð eru í l. samskonar ákvæði og hér, að það ber að tilkynna vinnustöðvun með viku fyrirvara.

Í Danmörku er þetta þannig, að í hinni svo nefndu „septembersætt“, sem eru samningsákvæði milli verkamanna og atvinnurekenda, eru ákvæði um, að tilkynna beri gagnaðilja það, ef till. um vinnustöðvun eigi að leggja fyrir félagsfund; og í öðru lagi eigi að tilkynna það, ef slík till. hafi verið samþ. í félaginu. Getur hér orðið um 14 daga frest að ræða. En í dönsku sáttasemjaralögunum eru ákvæði um það, að sáttasemjari geti gert það að skilyrði fyrir því, að leita um sættir, að aðili fallist á að gera ekki vinnustöðvun í vikutíma, meðan verið er að leita um sættir. — Ákvæðin, sem eru í 15. gr., um það, hversu vinnustöðvun skuli ákveðin, eru hliðstæð við þau ákvæði, sem helzt er að finna í áðurnefndri septembersætt í Danmörku.

Þá er þriðji kafli frv., sáttatilraunir í vinnudeilum. Samkv. 19. gr. á að skipta landinu í 4 sáttaumdæmi, sem þar eru nánar tilgreind, og skipar ráðh. 4 sáttasemjara, einn í hverju sáttaumdæmi, og sé einn þeirra yfirmaður hinna, eða ríkissáttasemjari. Þetta ákvæði er sett til þess, að sáttavaldið geti fylgzt betur með vinnudeilunum í landinu og sérstaklega aðdraganda þeirra. Reynslan er sú, að á seinni tímum, þegar deilur hafa risið úti á landi, hefir sáttasemjari hvað eftir annað orðið að setja annan mann þar á staðnum í sinn stað til að leita sátta.

Í 21. gr. eru ákvæði um það, hvernig sáttasemjarar skuli valdir, og er það ráðh., sem skipar þá samkv. tilnefningu frá félagsdómi. Þá eru ákvæði sett um það, að í sérstaklega alvarlegum vinnudeilum sé hægt að skipa sérstaka sáttanefnd, sem taki við hlutverki sáttasemjara. Þesskonar fyrirkomulag er í sænsku l. Um sáttasemjaraskilyrðin er það tekið fram, að sáttasemjarar megi ekki hafa þá aðstöðu, að líklegt megi telja, að þeir séu vilhallir í málefnum verkamanna og atvinnurekenda. Þær skyldur eru lagðar þeim á herðar, að fylgjast með horfum og ástandi atvinnulífsins í umdæmum sínum, og sérstaklega, hvort horfur séu á, að til vinnudeilu muni draga. — Þá er ákvæði um það, að öllum verklýðsfélögum og atvinnurekendum, sem ekki eru í atvinnurekendafélagi, sé skylt að senda sáttasemjara afrit af gildandi kaupsamningum og töxtum, svo að sáttasemjari geti jafnan vitað, hvernig þau mál standa; og sömuleiðis er lögð sú skylda á þessa aðilja, að senda sáttasemjara afrit af uppsögn á vinnusamningi, þar sem grein sé gerð fyrir því, hvers vegna uppsögnin hafi verið gerð, og þeim kröfum, sem aðili ætlar sér að gera, þegar þær kröfur hafi verið endanlega ákveðnar.

Þá eru ákvæði um skyldu sáttasemjara til að hefja sáttatilraunir og taka þær upp aftur, ef þær hafa mistekizt, og er það allt miðað við það, að ekki standi á sáttasemjara að gera sitt til, að deilan megi leysast, og að honum sé jafnan skylt að gera það ýtrasta, sem hægt er, til að leiða aðilja til sátta. Aðiljum er gert að skyldu að mæta á fundum, sem sáttasemjari boðar til, og sáttasemjara er heimilt að krefjast vitnaleiðslu af dómara um atriði, sem hann telur máli skipta fyrir deiluna. Loks er gert ráð fyrir því, ef ekki tekst að fá aðilja eða samninganefndir til að sættast, þá beri sáttasemjari fram miðlunartill., og sé sú miðlunartill. lögð fyrir aðiljana og henni svarað játandi eða neitandi. Sáttasemjari ákveður svo í samráði við aðilja, hvenær og hvernig atkvgr. fari fram, og talning atkv. fari fram hjá sáttasemjara, að viðstöddum umboðsmönnum aðilja.

Í 32. gr. eru nánari ákvæði um atkvgr. um miðlunartill. sáttasemjara. Þar er sett sérstök regla um þátttöku í atkvgr. og hvaða úrslit þurfi að verða í atkvgr., til þess að samþ. eða fella miðlunartill., og sú regla er á þá leið, að miðlunartill. sé felld, ef minnst 50% greiddra atkv. eru á móti henni, enda hafi 35% atkvæðisbærra manna greitt atkv., þ. e. a. s., að einfaldur meiri hl. gildir því aðeins, að 35% atkvæðisbærra manna hafi tekið þátt í atkvgr.; ef færri en 35% atkvæðisbærra manna taka þátt í atkvgr., þá er svo ákveðið, að meiri hlutinn þurfi að hækka til að fella till., um einn af hundraði á móti hverjum einum af hundraði, sem þáttakan minnkar um; og ef færri en 20% hafa tekið þátt í atkvgr., telst miðlunartill. samþ., hvernig sem atkv. að öðru leyti hafa fallið, af því að þá er litið svo á, að sá áhugi fyrir deilunni hafi ekki verið til staðar, sem réttlæti það, að ekki sé gengið til sátta á þeim grundvelli, sem fyrir liggur. Þessi regla, sem hér er tekin upp, er tekin eftir ákvæðum dönsku l. um þetta efni, sem voru sett með dönsku sáttasemjaralögunum 1934. Að vísu er ekki tekin upp sama reglan og í Danmörku, heldur hefir n. búið til aðra reglu, sem gerir minni kröfur um þátttöku og meiri hl. heldur en gert er í dönsku 1. En þau rök, sem fram voru færð fyrir því, að setja dönsku regluna, voru þau, að þegar um svo stóra ákvörðun væri að ræða sem það. að fella till. til sátta, sem borin hefði verið fram af umboðsmanni þjóðfélagsins, þá yrði að tryggja. að það kæmi fram, að nokkurnveginn hefði verið vilji fyrir því hjá hlutaðeigandi félagi að fella slíka sáttatill.

Í 34. gr. þessa kafla eru svo ákvæði um það, að ef sáttatilraunum hafi verið slitið án árangurs, þá geti ríkissáttasemjari birt skýrslu um málið, til þess að almenningur geti fengið rétta hugmynd um deiluna. Þetta ákvæði er tekið eftir brezkri löggjöf, en í Bretlandi er mikið lagt upp úr því, að almenningur eigi kost á því að fylgjast með vinnudeilum og rökum deiluaðilja, til þess að almenningsálitið hafi þau áhrif, að aðiljarnir séu fúsari til sátta. Sumsstaðar á Norðurlöndum eru ekki ósvipuð ákvæði í sáttasemjaralögum og þetta.

Þá er fjórði og síðasti aðalkafli frv., um félagsdóm. Þar er gert ráð fyrir, að stofnaður verði sérstakur dómstóll, sem hafi aðsetur sitt í höfuðstað landsins og nefnist félagsdómur. Verkefni hans á að vera það, að dæma, eins og segir í 44. gr., í málum, sem rísa út af kærum um brot á l. þessum og tjóni, sem orðið hefir vegna ólögmætra vinnustöðvana; í öðru lagi að dæma í málum, sem rísa út af kærum um brot á vinnusamningi, eða út af ágreiningi um skilning á vinnusamningi, eða gildi hans; og í þriðja lagi á hann að dæma í öðrum málum milli verkamanna og atvinnurekenda, sem að iljar hafa samið um að leggja fyrir dóminn. enda séu a. m. k. þrír af dómendunum því meðmæltir; þ. e. a. s., að þessi dómstóll, sem þarna er gert ráð fyrir að setja á stofn, á að dæma um það, sem kallað er réttarágreiningur. Hann á ekki að vera dómstóll, sem ákveði kaup og kjör verkamanna. Hann á að vera dómur, sem skeri úr um það, ef fram kemur mismunandi skilningur af hálfu aðilja á þeim ákvæðum, sem gerður samningur hefir inni að halda, eða ef annarhvor aðili er kærður fyrir það að hafa brotið samningsákvæði, sem hann hefir gengizt undir, og ef aðili er kærður fyrir það að hafa brotið ákvæði þessara l. Þessi dómstóll er algerlega hliðstæður þeim vinnudómstólum, sem settir hafa verið upp í Danmörku, Noregi, Svíþjóð og víðar, en hann er allt annars eðlis en t. d. sá vinnudómstóll, sem settur var upp á sínum tíma í Ástralíu, eða þeir föstu gerðardómar, sem stungið hefir verið upp á í frv., sem áður hafa verið lögð fram á Alþ., t. d. 1923 og 1929.

Það er gert ráð fyrir því, að dómurinn sé þannig skipaður, að í honum eigi sæti fimm menn, og séu þeir þannig tilnefndir í dóminn, að Alþýðusamband Íslands tilnefni einn og Vinnuveitendafélag Íslands annan, þó þannig, að ef .atvinnurekandi, sem er málsaðili, er ekki í Vinnuveitendafélaginu, þá viki fulltrúi Vinnuveitendafélagsins sæti, en fulltrúi frá atvinnurekandanum komi í hans stað. Tveir af dómurunum séu tilnefndir af hæstarétti, en einn sé tilnefndur af atvmrh. úr hópi 3 manna, sem tilnefndir eru af hæstarétti, þannig að valdinu til þess að skipa í dóminn er skipt á milli aðiljanna sjálfra, hæstaréttar og viðkomandi ráðh., þó þannig, að vald ráðh. er minnst.

Í 45. gr. er það ákvæði, að sambönd verkalýðsfélaga og atvinnurekenda skuli reka mál fyrir bönd meðlima sinna til þess að tryggja, að ekki sé komið með mjög smá og ómerkileg mál fyrir dóminn. Í 46.–69. gr. frv. eru ýmis ákvæði um meðferð mála og réttargang fyrir þessum dómstóli, og skal ég ekki fara nánar út í að rekja það hér. Yfirleitt er gert ráð fyrir munnlegum málflutningi, og ef mál er flutt munnlega, skuli kveða upp dóm innan sólarhrings eftir dómtöku. Hinsvegar er gert ráð fyrir, að komið geti fyrir, að mál séu flutt skriflega, og um það eru sérstök ákvæði. Yfirleitt eru ákvæði þessa kafla miðuð við að hægt sé að fá sem allra fljótast úrskurð þessa dómstóls. — Í 67. gr. er ákvæði um, að dómi, sem félagsdómur kveður upp, verði ekki áfrýjað, og er það venjulegt annarsstaðar um úrskurði slíkra dómstóla, og sömuleiðis að þau mál, sem heyra undir félagsdóm, verði ekki tekin til meðferðar af öðrum dómstólum.

Ég hefi þá nefnt hina 4 aðalkafla frv., en í síðasta kafla frv. — en þar er prentvilla, það stendur „4. kafli“ fyrir: 5. kafli — þar eru niðurlagsákvæði um sektir og um það, að nema úr gildi sáttasemjaralögin frá 1925.

Ég hefi þá með þessum orðum rakið aðalefni þessa frv., og ég hefi í upphafi míns máls gert grein fyrir þeim sjónarmiðum, sem fyrir mér hafa vakað, og ég hygg fyrir allri n., við samningu þessa frv., þ. e. a. s., að hafa hliðsjón af löggjöf þeirra þjóða, sem okkur eru líkastar, og þó jafnframt að taka tillit til íslenzkra staðhátta, þar sem við átti. Það má sjálfsagt um þetta frv. deila; ég mun ekki halda því fram, að það hafi ekki að einhverju leyti mátt vera betur úr garði gert. Ég geri ráð fyrir. og veit það raunar, að andmæli gegn því muni koma úr tveimur áttum. Því hefir verið haldið fram af hálfu einhverra aðilja verkamannamegin, að þau ákvæði, sem hér eru sett, gætu verið til hindrunar fyrir verkamenn í vinnudeilum og þau séu of ströng, og hinsvegar, að þau ákvæði, sem verkalýðnum eru til hagsbóta, séu ekki mikils virði. Hinsvegar mun því vera haldið fram af einhverjum aðiljum atvinnurekendamegin, að ákvæðin gagnvart verkalýðnum séu of væg, og honum gefinn þarna einhver réttur, sem ekki er þörf á. Ég er því alveg viðbúinn, að slíkar aths. komi úr þessum tveimur áttum, og ef það verður, þá hygg ég, að megi telja þær nokkra tryggingu fyrir, að við samningu þessa frv. hafi nokkurnveginn verið hitt á meðalveginn, og það er enginn vafi, að ef á að tryggja heilbrigðan vinnufrið í landinu og heilbrigða meðferð þessara mála, þá er vænlegast að reyna að þræða meðalveginn milli þeirra krafna, sem uppi kunna að vera frá báðum aðiljum, því að við þá millileið er líklegast að flestir sætti sig. Yfirleitt hefir reynslan orðið sú á Norðurlöndum um vinnulöggjöf, sem þetta frv. er samið með hliðsjón af, að eftir að reynsla hefir verið komin á hana, hefir hún orðið vinsæl, og þar er svo með báða aðilja, að þeir munu fremur vilja hafa hana en hún væri ekki.

Það er ómótmælanlegt, að viðskipti verkamanna og atvinnurekenda og þeirra félagslegu samningar eru orðinn svo stór liður í þjóðfélaginu, að það er óforsvaranlegt, að eigi sé til löggjöf um slíkt eins og aðra hliðstæða þætti þjóðlífsins.

Eg vil svo leggja til, að frv. verði, að lokinni þessari umr., vísað til 2. umr. og allshn.