08.04.1938
Neðri deild: 44. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 821 í B-deild Alþingistíðinda. (1317)
95. mál, stéttarfélög og vinnudeilur
*Héðinn Valdimarsson:
Þetta mál, vinnulöggjöf, hefir verið mikið umdeilt mál, fyrst og fremst milli verkalýðsfélaganna og atvinnurekendanna, og svo seinna hér á þingi. Eins og kunnugt er, hefir Vinnuveitendafélagið látið bera fram frv. hvað eftir annað til þess að koma á föstum reglum frá þess sjónarmiði, en það frv. hefir ávallt sætt mótmælum frá verkalýðsfélögunum. Nú er komið annað frv. af hálfu Framsfl., sem undirbúið hefir verið af mþn., þar sem fulltrúar hafa verið frá Alþfl. og Framsfl. Á síðasta sambandsþingi Alþfl. var tekin sú afstaða til vinnulöggjafar yfirleitt, að verkalýðsfélögin óskuðu ekki eftir vinnulöggjöf, nema samfara því væru tryggð og aukin þeirra réttindi. Var þá ætlazt til, að í þeirri vinnulöggjöf væru ekki eingöngu tekin deilumálin milli atvinnurekenda og verkalýðsfélaga, heldur hin ýmsu mál, sem snerta vinnuna í landinu og frekari rétt verkalýðsins, svo sem tryggingarmál, vinnutíma o. fl. Þetta er ekki gert í frv. því, sem hér liggur fyrir, heldur eingöngu haldið sér við stéttarfélög og vinnudeilur, og það er ekki hægt að neita því, að meginhluti verkalýðsins telur, að svo miklu leyti sem hann hefir enn látið álit sitt í ljós, að þetta frv. sé alls ekki fullnægjandi. Þar fyrir er ég ekki að segja, að ekki sé hægt að gera þær hreyt. á því, að hann geti sætt sig við það. Sum félög, sem látið hafa uppi álit sitt, hafa talið, að hægt væri að nota það sem grundvöll, en flest hafa talið, að gera þyrfti á því stórfelldar breyt., sérstaklega stærstu félögin.
Það er mikil áherzla lögð á það af þeirri n., sem unnið hefir að þessu frv., sérstaklega framsóknarmönnum, og elns hv. þm. Snæf., hvernig þessum málum er hagað í okkar nágrannalöndum, og sjálfsagt er það líka rétt að hafa hliðsjón af því, hvernig þeim málum er skipað þar. En mönnum hættir mjög við að vilja apa allt eftir okkar nágrannaþjóðum, án þess að skilja þann mun, sem er á öllum landshögum hér frá því, sem er í öðrum löndum, sérstaklega á Norðurlöndum, sérstaklega ef maður tekur vinnuskilyrðin þar og á hinum Norðurlöndunum, því að þar er kominn upp mikill iðnaður, svo að vinnulöggjöfin þar snertir mikið iðnaðarfólk og verksmiðjufólk. Hér er aftur á móti mjög mikið af verkafólki, sem gengur að lausavinnu, og þess vegna kemur löggjöf eins og þessi miklu harðara niður á því en verksmiðjufólki. Mörg af þessum verkamannafélögum álíta, að hér sé algerlega gengið á sinn rétt, en aftur á móti snertir þetta lítið þau stéttarfélög, sem vinna fasta vinnu, en þó álita sumir þar, að gengið sé á þeirra rétt.
Þá er annað, sem mikið hefir verið fundið að þessari vinnulöggjöf, sem hér er borin fram, en það er, að hún sé borin fram með svo stuttum fyrirvara. Það er ekki nema einn mánuður, sem verkalýðsfélögin hafa haft málið til meðferðar, og ýmis þeirra hafa látið í ljós, að þau gæti ekki á svo stuttum tíma gefið fullnægjandi umsögn. Það er ekki heldur nein ástæða fyrir Framsfl. til að knýja slík l. fram, þó að hinsvegar sé ljóst, að Sjálfstfl. vill hvenær sem er koma slíkri löggjöf á.
Ég mun ekki fara mikið út í einstök atriði þessa frv.; til þess gefst tækifæri við bæði 2. og 3. umr. Ég mun flytja allmargar brtt. við frv. f. h. verkamannafélagsins Dagsbrúnar, þar sem þetta mál hefir verið tekið til umr., og þar sem þessar brtt. hafa verið samþ. í mörgum félögum eða a. m. k. m. í þá átt, sumsstaðar þó ekki eins víðtækar, en í aðalatriðunum hafa aðfinnslurnar verið í þá átt sem ræðir um í þessum brtt., og ég vænti þess, að þingið taki tillit til þeirra atriða, sem þar koma fram. Ég segi ekki, að hver einasta brtt. hafi verið samþ., en í höfuðdráttunum hafa þær verið samþ., svo að verkalýðsfélögin sem heild ættu að gera sætt sig við það.
Ég vil geta þess í sambandi við það, sem hv. þm. Snæf. sagði viðvíkjandi kaflanum um rétt verkalýðsfélaga, að ég er þar svipaðrar skoðunar og hann, að ég álit, að í þessu frv. sé ekki mikið um aukinn rétt að ræða fyrir þau, vegna þess, að þar, sem getið er um verulega aukinn rétt, þurfi í raun og veru ekki að vera um neinn aukinn rétt að ræða. T. d. er það tekið fram, að menn eigi rétt á að stofna stéttarfélög. Það var óþarft að taka slíkt fram, því að það er heimilt eftir stjórnarskránni, enda hafa verið hér stéttarfélög í 40 ár. Hinsvegar er ekkert tekið fram í þessu frv. um margviðurkenndan rétt, sem verkalýðsfélögin hafa. Frv. er því að þessu leyti haft á þann rétt, sem verkalýðsfélögin hafa aflað sér með langri baráttu og var fyrst ekki viðurkenndur af atvinnurekendum, en hefir svo smámsaman verið viðurkenndur af þeim. Mér finnst, að það minnsta, sem hægt var að gera fyrir verkalýðinn í löggjöf eins og þessari, sé að girða ekki fyrir þann rétt, sem þau nú hafa, svo að þau séu verr sett en áður.
Því verður ekki neitað, að í kaflanum um verkföll og verkbönn eru ýmis ákvæði, sem binda á margan hátt verkalýðsfélögin frá því, sem verið hefir. Sérstaklega taka þau valdið af félagsfundum til að gera ákvarðanir um ýmis efni. Atkvgr. á að vera leynileg, og í fjölmennum félögum, eins og Dagsbrún, mundi slík atkvgr. taka marga daga, og auk þess er tekinn réttur af félagsstjórnum til að skipa ýmsum málum, sem ekki eru samningsbundin.
Þetta frv. er lítið eitt öðruvísi en frv. það, sem fyrst var lagt fram af hálfu mþn., og eru þær breyt. ekki að öllu leyti til bóta. T. d. var það svo í fyrra frv., að verkamenn höfðu rétt til að kjósa einn trúnaðarmann, sem atvinnurekendur skyldu taka gildan, en samkvæmt þessu frv. eiga verkamenn að kjósa tvo menn, en atvinnurekendur velja um þá. Það er engin ástæða til að láta atvinnurekendur hafa áhrif á, hvaða trúnaðarmenn verkalýðsfélögin kjósa.
Eins eru hér einstök atriði, þar sem þetta er lakara frá sjónarmiði verkalýðsins en jafnvel í frv. Vinnuveitendafélagsins. Vil ég sérstakIega benda á, að ekki er viðurkenndur taxti á sama hátt og í frv. Vinnuveitendafélagsins, eftir því sem ég bezt man, heldur er gert ráð fyrir eingöngu skriflegum samningum. Hér hefir oft tíðkazt taxti, og er engin ástæða til að taka þennan rétt af félögunum, ef engin sérstök mótmæli koma frá atvinnurekendunum.
Hér eru auðvitað mörg fleiri atriði, sem ég mun síðar minnast á í sambandi við þær brtt., sem ég mun bera fram, en ég vil sérstaklega geta þess nú. að mér finnst ekki eiga heima í frv. eins og þessu að banna verkföll, ef þau geta á einhvern hátt kallast pólitísk. Því verður ekki neitað, að pólitísk verkföll hafa fullkominn rétt á sér, og hjá verkamannafélögunum og verkamannastéttinni í nágrannalöndunum hafa þau verið notuð til mikilla hagsmuna fyrir þá stétt. Sósíaldemókratarnir dönsku hafa einmitt notað pólitísk verkföll í baráttu sinni. Ég vona því, að Framsfl. viðurkenni nauðsyn þess, að þeirri leið sé ekki lokað, ef hann vill halda sér að þeim leiðum, sem sósíaldemókratarnir í nágrannalöndunum hafa farið.
Viðvíkjandi félagsdómnum vil ég segja það, að honum hefir ekki verið fundið annað verulegt til foráttu en skipun hans. Verklýðsfélögin eru skiljanlega óánægð yfir því, að hæstarétti er tryggður þar alger meiri hl. Og við sáttatilraunaákvæðin verður að fá fram breytingar, því að eins og þau eru nú, virðist sáttasemjari geta hagað atkvgr. eftir vild, gagnstætt vilja félaganna. Mínar brtt. skera úr um allan vafa, að því er þetta atriði snertir. En eins og eðlilegt er, þykir mönnum það ekki ná nokkurri átt að láta sáttasemjara hafa viðtækara úrskurðarvald en meðlimina sjálfa.
Ég get að lokum lýst yfir því, að þó að ég sé frv. mótfallinn, eins og það liggur fyrir, þá myndi ég geta samþ. það, ef brtt. minar yrðu teknar til greina. En sé það samþ., eins og það liggur nú fyrir, er það allt annað en velgerningur við verkalýðinn, og aðeins til þess að binda hendur hans í kaupdeilum.