08.04.1938
Neðri deild: 44. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 826 í B-deild Alþingistíðinda. (1319)

95. mál, stéttarfélög og vinnudeilur

Einar Olgeirsson:

Það er svo oft búið að ræða þetta frv. áður en það kom til d., að ég tel ekki þörf á að gera langa greinargerð fyrir stefnulegri afstöðu okkar kommúnista til vinnulöggjafar. Ég er búinn að gera það svo oft áður, að ég sé ekki ástæðu til að endurtaka það. En ég vil segja það, að ég er á móti þessu frv. sem heild, og ég veit, að meiri hlutinn. af hinum skipulagða íslenska verkalýð er á móti því. Og það stafar af því, að verkalýðshreyfingunni — eða meiri hluta hennar a. m. k. — er það ljóst, að allt það, sem verkalýðurinn getur knúið fram, byggist fyrst og fremst á valdi hans og samtakamætti, en ekki á neinum lagabókstaf.

Verkalýðurinn á Íslandi hefir sína reynslu af því, að þótt verið sé að setja lög, sem í nokkrum smávægilegum atriðum eru honum til hagsbóta, þá eru þessi lög þverbrotin eða svikin af löggjafarvaldinu, ef verkalýðurinn er ekki nógu sterkur til að hindra það með sínum samtakamætti. Það voru sett fyrir 35 árum l. um kaupgreiðslu í peningum, og það eru l., sem maður gæti ætlazt til, að framkvæmd væru af framkvæmdavaldinu. Þessi l. eru þverbrotin á öllum þeim stöðum á landinu, þar sem verklýðssamtökin eru ekki nógu sterk til þess að knýja þetta fram. Það, sem verkalýðurinn verður að byrja á í sambandi við l., sem sett eru honum til hagsbóta að einhverju leyti, er fyrst og fremst það, að hann eigi styrkleika og samtök til að geta framkvæmt þau. Það sést bezt, að verkalýðurinn fær ekki sitt, þar sem það er komið undir löggjafarvaldinu einu, því að þegar verklýðsflokkurinn hér á þingi semur við Framsfl. um 1. um verkamannabústaði, þá eru þessi l. öll síðustu 6 árin þverbrotin, og í raun og veru svikin, þannig að verkalýðurinn fær ekki framgengt þeim hagsmunum, sem honum voru ætlaðir með 1. Það er því til lítils fyrir þá menn, sem vilja kenna sig við verkalýðshreyfinguna og mæla með þessu frv., að ætla sér að halda því fram, að með þessu sé verið að bæta nokkuð kjör verkalýðsins. Verkalýðnum er því aðeins not að slíku, að hann geti framkvæmt það með sinum eigin samtökum, og þá væri alveg rangt að fara að kaupa það að koma inn í l. nokkrum ákvæðum, sem eru verkalýðnum kannske til hagsbóta, ef það kostar það, að fá svo inn fjölda af ákvæðum, sem eru verkalýðnum skaðleg. Þótt einhver ákvæði kæmust inn í l., sem verkalýðurinn telur sér vera hagsbót í, þá er engin trygging fyrir því, að þau verði ekki nokkru seinna afnumin og gerð þá verri þau ákvæði, sem rýra réttindi hans og eru honum til tjóns, eins og dæmi eru til um. Það kemur úr hörðustu átt, þegar Alþfl. er að tala um slíkt, sem horft hefir upp á framkvæmdina á l. um verkamannabústaði, og eftir þeirri reynslu sem Alþfl. og þm. hans og verkalýðurinn hafa haft af því máli.

Við þm. Kommfl. erum á móti þessu frv. sem heild og móti því, að það nái fram að ganga. Við erum þar í samræmi við meiri hluta hins íslenzka verkalýðs, sem tekið hefir þetta frv. til meðferðar og lýst sig andstæðan því. Ég þarf ekki sérstaklega að gera grein fyrir ástæðunum. Við erum á móti því, að sett sé löggjöf, sem verði til þess að rýra verkfallsréttinn og takmarka baráttukraft verkalýðsins í sambandi við stéttabaráttu hans og frelsisbaráttu.

Ég verð að leyfa mér í sambandi við þetta frv. að fara út í einstakar gr. þess, þótt það eigi að ræða þær við 2. umr., vegna þess, að eftir því, hvernig þetta frv. kemur úr n., kemur verkalýðurinn til með að haga sinni baráttu að miklu leyti utan þings og eftir á, ef þetta frv. verður keyrt í gegn. Það er þess vegna rétt fyrir þá menn, sem hafa með þetta mál að gera, að reyna að gera sér það ljóst, að ef ætlunin er að setja þarna þvingunarlöggjöf á móti vilja meiri hluta verkalýðsins, þá munu verkalýðssamtökin nota það vald, sem þau hafa yfir að ráða, til þess að brjóta slíka löggjöf á bak aftur. En ef meiningin er aftur á móti sú, að taka að einhverju leyti tillit til verkalýðsins. þá er tækifæri til að sýna það í verki nú strax við afgreiðslu frv. til n. og 2. umr.

Ég geng út frá því, að verkalýðurinn í Reykjavík og víðar láti afstöðu sína mjög eindregið í ljós í sambandi við þetta frv., ekki aðeins með samþykktum, sem þegar hafa verið gerðar, heldur líka með öðrum ráðum, sem hann hefir yfir að ráða. Ég vil í þessu sambandi sérstaklega skora á Framsfl.þm. að athuga sinn gang og spyrja þá að því, hvernig þeim myndi hafa líkað það, ef sett hefði verið löggjöf um samvinnufélögin, sem væri þvert á móti vilja samvinnufélaganna. Ég vil spyrja þá að því, hvort þeir hefðu ekki litið á það sem kúgun, og hvort þeir myndu þá vera slíkar liðleskjur, að berjast ekki á móti slíkri kúgun. Einhverntíma hefði það verið svo, að íslenzkir bændur hefðu ekki látið bjóða sér það að beita samtök þeirra þvingunarvaldi frá hálfu löggjafans með löggjöf, sem þeir væru andvígir. Eins er það með íslenzka verkalýðinn nú.

Í sambandi við afstöðu Framsfl. í þessu máli, þá vil ég geta þess, að ég býzt við, að þar hafi valdið dálitlu þær vinnudeilur, sem orðið hafa milli S. Í. S. og verkalýðssamtakanna í landinu. Ég vil láta þá skoðun í ljós, að það sé hægt að komast hjá þessum vinnudeilum, ef þar væri stjórnað á annan hátt en verið hefir til þessa. Ég álít, að milli samvinnuhreyfingarinnar og verkalýðshreyfingarinnar sé hægt að jafna þann ágreining, sem verða kann milli þeirra, þar sem S. Í. S. hefir með að gera almennan atvinnurekstur, með vinsamlegum samningum milli þessara aðilja. Ég vil benda á það, að stærsta kaupfélagið á Íslandi, Kron, gerði á síðasta aðalfundi einróma samþykkt þess efnis, að óska eftir, að komið væri á vináttusamningi milli S. Í. S. og Alþýðusambandsins, til þess að tryggja lausn kaupdeilna, sem fram komnu að koma milli þessara aðilja, á þann hátt, að ekki þurfi að verða slíkir árekstrar, sem orðið hafa undanfarið. Ég álít það mögulegt fyrir þessi stóru sambönd í landinu að finna mildari leið til þess að jafna ágreining sín á milli en að þurfa að láta lagaþvingun koma þar til. Sú umhyggja, sem Framsfl. ber fyrir S. Í. S., ætti því ekki að þurfa að hrinda honum út í það að samþ. þessa vinnulöggjöf, sem hér liggur fyrir. Það væri þá eingöngu það, að vilja vinna í þágu einkaatvinnurekendastéttarinnar. Hv. frsm. sagði í framsöguræðu sinni, að það myndi koma óánægja með þetta frv. frá hálfu atvinnurekenda. Hann hefir nú heyrt, hvað einn aðalfulltrúi atvinnurekenda, hv. þm. Snæf., hefir sagt um þetta. Hann sagðist ganga inn á þetta frv., því að í því væru aðalatriðin úr frv. sjálfstæðismanna. Þessi sami þm. margendurtók ánægju sína með, að þetta frv. væri komið fram. Og þótt hann í einstökum atriðum óskaði eftir því, að það væri dálitið öðruvísi, þá hefir hann sjálfsagt aldrei látið sig dreyma um það, að nokkurntíma væri farið eftir hverjum einasta bókstaf, sem Eggert Claessen hafði fyrirskrifað. Hv. þm. hefir þess vegna orðið fyrir algerðum vonbrigðum, ef hann hefir búizt við því, að atvinnurekendur væru óánægðir með þetta frv. Óánægjan með þetta frv. er fyrst og fremst frá hálfu verkalýðsins, þar sem meiri hluti hans er andstæður því. Þessum hv. þm. og þeim, sem með honum standa, er bezt að gera sér það ljóst, að með þessu er verið að setja löggjöf fyrir atvinnurekendastéttina í landinu móti vilja verklýðssamtakanna.

Viðvíkjandi afstöðu Alþfl.fulltrúanna, sem sæti eiga hér á þingi, hægrimannanna, en einn úr þeirra hópi var að ljúka máli sinu hér áðan, þá vil ég, áður en ég fer sérstaklega í þann kafla, sem hv. þm. Ísaf. gerði hér að umtalsefni, vekja eftirtekt þeirra á því, að ég er hræddur um, að þeir séu hér að láta hafa sig út í slæman skollaleik með því að fá þá til að vera með í því að samþ. þetta frv. Atvinnurekendastéttin veit það vel, að það er ekki hægt að byrja að setja vinnulöggjöf nema að fá part úr verkalýðshreyfingunni með sér. Hún þorir það ekki. Hún hefir áður haft meiri hluta hér á þingi, þar sem Íhaldsflokkurinn var í hreinum meiri hluta, en hún hefir samt ekki þorað að setja slík ákvæði. Fyrir atvinnurekendastéttina hér á landi var því um að gera að reyna að bíða eftir tækifæri, þegar hægt væri að fá hluta úr verkalýðshreyfingunni með sér, og reyna að kljúfa verkýðshreyfinguna í bili og veikja mótspyrnukraft hennar með því að hafa sambandsstjórnina í Alþýðusambandinu að einhverju leyti með sér, þótt félögin vilji það ekki. Það er þess vegna hið hættulegasta í sambandi við vinnulöggjöf, að láta koma henni á í fyrsta skipti í hvað saklausu formi sem hún er í. Það er auðvelt fyrir atvinnurekendur, þegar einu sinn er búið að koma á vinnulöggjöf, að gera hana mjög svo bölvaða smátt og smátt eða að hreinum og beinum þrælalögum með breyt. á hverju þingi. Það er þá hægt að rýra þau smáu réttindi, sem eru veitt, en gera þau ákvæði, sem eru til tjóns, enn verri. Það er þess vegna aðalatriðið fyrir verklýðshreyfinguna sem heild, að henni takist að hindra það, að vinnulöggjöf komist á. Og hvað er verið að fá meiri hluta alþýðusambandsstjórnarinnar út í og hina 7 þm. hennar með þessu móti? Það er verið að fá þá til þess að samþ. þessa vinnulöggjöf, sem hér liggur fyrir, án þess að það sé nokkuð á þeirra valdi, hvað bölvaða er hægt að gera hana eftir á. Það er hægt að nota þá til að koma þessu í gegn og hafa samvinnu við þá á þessu þingi, en svo er hægt að sparka þeim, þegar búið er að vinna þetta og gera vinnulöggöfina þá margfalt verri heldur en hún var. Ég vil alvarlega vara þessa 7 þm. við því að láta hafa sig til þessa. Með þessu er verið að smeygja fjötri á verkalýðinn, sem erfitt mun reynast að hrista af á eftir, og þá ráða þessir þm. ekki neitt við það, þegar búið er að hjálpa til að koma þessu á. Þegar búið er að setja vinnulöggjöf, þá mun vissum mönnum í Framsfl. og Sjálfstfl. finnast kominn tími til að slíta samvinnunni til vinstri. Þá eru þeir búnir að ná því, sem þeir þurfa að ná. „Þegar þrællinn er búinn að vinna sitt hlutverk, þá má hann fara“, segir þýzkt máltæki.

Hv. þm. Ísaf. talaði um það hér áðan, að meiri hlutinn af verkalýðsfélögunum hefði lýst sig fylgjandi þessu. Það er ekki rétt. Ég vil skora á hv. þm. að leggja fram fyrir hv. d. skýrslu um afstöðu verklýðssamtakanna, innan Alþýðusambandsins og utan, í þessu máli. Ég vil leyfa mér að minna hv. þm. á það, að eftirfarandi félög í landinu hafa samþ. mótmæli gegn þessu frv.: Dagsbrún, Iðja, Þvottakvennafélagið Freyja, Sveinafélag múrara, Bakarasveinafélag Íslands, Hlíf í Hafnarfirði, Þróttur á Siglufirði, Drífandi í Vestmannaeyjum, Verklýðsfélag Norðfjarðar, Verkamannafélag Húsavíkur, verklýðsfélagið Hvöt á Hvammstanga, verkakvennafélagið Snót Vestmannaeyjum, Verklýðsfélag Eskifjarðar, Bjarmi á Stokkseyri, Vélstjórafélag Akureyrar, Bílstjórafélag Akureyrar, verkakvennafélagið Eining á Akureyri, A. S. B. Öll þessi félög hafa mótmælt vinnulöggjöfinni eða krafizt stórfelldra breytinga á henni. Í þessum félögum eru 5–6 þús. manns, en það er meiri hlutinn af meðlimum Alþýðusambandsins, og hefir hann því lýst sig mótfallinn eða a. m. k. óskað það stórra breyt. á frv., að það mundi eyðileggja það, sem er skaðlegt fyrir verkalýðinn í þessu frv. Það liggur þess vegna hér fyrir, að meiri hlutinn af hinum íslenzka verkalýð hefir tekið afstöðu á móti frv., og ef það væri borið undir félög, sem enn hafa ekki tekið afstöðu til þess, eins og, t. d. Sjómannafélag Reykjavíkur, sem er eitt af stærstu félögunum, þá myndu þau líka mótmæla því.

Það, sem sérstaklega vekur eftirtekt í sambandi við þessi félög, er, að þetta eru sterkustu félögin í landinu og þau félög, sem eru vald. Það þýðir lítið, þótt það komi samþykki með vinnulöggjöf frá verklýðsfélagi á Hrútafirði, Blönduósi eða Fáskrúðsfirði. Slík félög hafa ekki neitt verulegt að segja. En þegar það félag, sem er sterkasta félagið á Íslandi, Dagsbrún, sem er hornsteinninn undir valdi Alþýðusambandsins og allt gildi þess sem fagsambands byggist á, er á móti þessu, þá er það nokkuð, sem skynsamlegt er að taka tillit til. Sama er að segja um félögin á Siglufirði og í Vestmannaeyjum, eða önnur þau félög, sem hafa mikið að segja í sambandi við atvinnulífið. Þessi félög eru það valdið, sem rétt er fyrir þá aðilja, sem ætla sér að samþ. vinnulöggjöfina, að taka tillit til.

Það er rétt hjá hv. þm. Ísaf., að nokkur félög, sérstaklega hin smærri, hafa mælt með frv. Það eru hin smærri og veikari félög, sem mælt hafa með frv. Þetta er nokkuð, sem hefir sína stóru þýðingu í sambandi við þá baráttu, sem átt hefir sér stað og kemur til með að eiga sér stað í sambandi við þá frelsisbaráttu, sem háð er gegn þessu þrælafrv.

Þá ætla ég að fara inn á einstaka kafla frv. Fyrsti kaflinn á að vera til hagnaðar fyrir verkalýðinn, og það er sá kafli, sem hv. þm. Ísaf. leggur sérstaklega mikið upp úr. Hann er líka það agn, sem alþýðusambandsstjórnin ætlar að fá menn til að ganga inn á þetta frv. með, og er honum sérstaklega. veifað framan í verkalýðinn í sambandi við væntanlega samþykkt þessa frv. Í þessum kafla eru engin réttindi, sem. verkalýðurinn hefir ekki þegar gert að veruleika, þar sem hann er nógu sterkur: Það er langt frá því, að þarna séu öll þau réttindi, sem hann hefir gert að veruleika, þar sem hann er nógu sterkur. Það er hinsvegar vitanlegt, að þau ákvæði í þessum kafla, sem veita verkamönnum réttindi, verða hrein og bein pappírsákvæði, þar sem verkalýðurinn er ekki nógu sterkur til að framkvæma þau. Hv. þm. Ísaf. tekur í því sambandi 5. gr., sem er um það, að stéttarfélög séu lögformlegur samningsaðili. Verklýðsfélögin íslensku hafa barizt fyrir því, að þau væru viðurkennd sem samningsaðifjar gagnvart atvinnurekendum. Þau hafa háð harðvítuga baráttu um þetta, en þau hafa knúið þetta fram, þar sem þau hafa verið nægilega sterk til þess. Þar sem þau eru búin að knýja þetta fram, þá hafa þau þessi réttindi, og þau verða ekki af þeim tekin. En þar sem þau eru veik og hafa ekki. knúið þetta fram, — hvað hjálpar þá þetta pappírsgagn slíkum félögum? Atvinnurekandi á þeim stað, þar sem er veikt verklýðsfélag, getur sagt, að hann semji ekkert við það og ákvæði ekkert kaup. Þangað til þetta félag er orðið nógu sterkt til þess að geta gert verkfall og stöðvað vinnu með þeim ráðum, sem það hefir yfir að ráða til þess, hefir það sitt mál ekki í gegn, þótt það standi í l., að það sé viðurkennt sem samningsaðili. Atvinnurekandinn er samt ekki skyldugur til að semja við það. Hann getur jafnt eftir sem áður ákveðið kaupið, sem hann vill greiða, og neitað að tala við verklýðsfélagið. Það er ekkert, sem fyrirskipar, að það megi ekki greiða kaup á neinum stað á Íslandi nema eftir samningi, sem gerður hafi verið milli atvinnunekanda og verklýðsfélags annarsvegar. Ef verklýðsfélagið á viðkomandi stað er ekki nógu sterkt, þá er þetta pappírsákvæði, en ef það er nógu sterkt til að knýja þetta fram, þá. er það einskisvirði líka.

Hvað snertir það, sem hv. þm. Ísaf. var að halda. fram, að væri sérstaklega þýðingarmikið, að þetta mundi spara verklýðsflélögum úti á landi þá 6 ára baráttu, sem Baldur á Ísafirði hefði orðið að heyja til þess að fá þetta fram, þá er hægt að segja, að það eina, sem geti komið að gagni, sé, að verklýðsfélögin annarsstaðar hjálpi nógu rösklega. Með því er hægt að hjálpa, þar sem þetta lagaákvæði í 5. gr. hjálpar ekki neitt.

Þá er það viðkomandi gr. um það, að menn eigi rétt á að stofna stéttarfélög í þeim tilgangi, að vinna sameiginlega að hagsmunamálum verkalýðsstéttarinnar. Þetta gerir frekar að rýra þann rétt, sem verklýðsfélög hafa samkvæmt stjskr: Hvers vegna er verið að takmarka þetta: við hagsmunamál verkalýðsins? Verkalýðurinn berst fyrir meiru en sinum hagsmunum í sambandi við kanpgreiðslur. Það kom líka greinilega fram hjá hv. flm. frv., að það er verið að reyna að banna verklýðsfélögunum að nota sitt samtakavald é sambandi við það, sem kallað er pólitík. Nú er allt það, sem kallað er venjuleg pólitík, jafnskylt hvort sem um er að ræða eitthvert atriði, sem varðar að meira eða minna leyti löggjafarmál eða kaupgjaldsmál. Það er sama valdið, sem ákveður um það, hvort hægt er að koma því í gegn, vald verklýðssamtakanna í þessu sambandi. Og takmörkun á þeim tilgangi sem verklýðsfélögin þannig hafa, nær vitanlega engri átt.

Þá en það. 3. gr., en þar eru ákvarðanir viðvíkjandi stéttarfélögum og viðvíkjandi réttindum stéttamsambanda. Ég vil segja það í sambandi við þessa gr., að með tilliti til ástandsins, sem ríkir í hinum skipulagða íslenska verkalýð, þá vanta í þessa gr. ákvæði um það, eigi félög og einstaklíngar í þeim að vera eins skuldbundin samþykktum eins stéttarsambands eins og þar er ákveðið, að viðkomandi samband eigi að vera byggt á lýðræðisgrundvelli og að meðlimir í viðkomandi félögum séu jafnréttháir, og ekki sé leyfilegt að hafa í sambandi við þær ákvarðanir, sem teknar eru í slíkum samböndum, neinar útilokanir. Það verður að gilda fullt jafnrétti á venjulegum lýðræðisgrundvelli. Það verður að koma þarna fram í setningu löggjafar um verklýðfélög, sem eiga að veita mönnum réttindi og leggja jafnframt á þá skyldur, að menn hafi jafnrétti í þessum félögum.

Það er ennfremur nauðsynlegt í sambandi við það, sem tekið er fram í 2. gr., að þessi félög skuli vera opin öll m í hlutaðeigandi starfsgrein, að ekki megi banna mönnum af pólitískum ástæðum að ganga í þau. En ástandið er þannig nú, að víða er verkamönnum bannað að ganga inn í þau félög, sem fyrir eru í Alþýðusambandinu, af pólitískum ástæðum. Þetta atriði verður að athuga, því að Alþ. getur ekki verið þekkt fyrir að setja löggjöf, sem beinist vísvitandi að því, að gera þegnum þjóðfélagsins mismunandi hátt undir höfði.

Þá er 4. gr. Þar eiga að vera ákvæði, sem koma í veg fyrir pólitískar ofsóknir á hendur verkamönnum af hálfu atvinnurekanda. Þessi grein er blátt áfram hlægileg, þegar athugað er ástandið, sem ríkir á Íslendi í þessu efni. Það er vitað, að skipulagðar njósnir eru reknar af hálfu Vinnuveitendafélags Íslands í þeim tilgangi, að útiloka vissa menn frá því að fá vinnu vegna pólítískra skoðana þeirra. Þessi skrifstofa Vinnuveitendafélagsins sendir svarta lista út meðal vinnuveitenda til að spilla fyrir því, að menn með ákveðnar stjórnmálaskoðanir geti fengið vinnu til að lifa af. Hvað hæft er í frásögnum um þessar ofsóknir fékk ég síðast að heyra í gær. Ungum manni, sem hrakinn var úr einum skóla landsins í fyrra vetur fyrir pólitískar ofsóknir vissra þm. Framsfl., var nú neitað um vinnu af manni, sem búinn var að gefa honum ádrátt um hana, vegna þess að hann hafði sósíalistískar skoðanir. Þannig hefir líka komið fyrir, að verkamenn, sem kosnir hafa verið í atvinnuleysisnefnd í verkamannaskýlinu við höfnina, fá t. d. aldrei eftir það atvinnu hjá Kveldúlfi. Þetta ákvæði er engin trygging fyrir verkamenn. Það eina, sem nokkurt gagn væri að lögleiða, er, að verkalýðsfélögin ráði, hvaða verkamenn eru teknir í vinnu á hverjum stað. Þá fyrst væri hægt að tala um réttindi. Hitt er aðeins blekking. — Þá er ákvæðið í 9. gr. viðvíkjandi trúnaðarmönnunum; það á ekki að ná til landbúnaðarverkamanna. Tilgangur þessarar gr. á að vera, að trúnaðarmenn verði ekki reknir úr vinnu vegna þess starfs sins. Í sumum löndum, þar sem slíkir trúnaðarmenn tíðkast, eru lagaákvæði um það, að atvinnurekendur skuli segja trúnaðarmönnunum síðast upp allra verkamanna sinna, ef þeir fækka mönnum. Þetta eru nokkur réttindi, þótt hægt sé að fara í kringum þetta ákvæði með því að segja öllum verkamönnum upp og taka aðra nýja í staðinn. Í þessu frv. segir aðeins, að atvinnurekendum sé óheimilt að segja trúnaðarmönnum upp vegna starfa þeirra sem trúnaðarmanna. Það er alltaf hægt að finna átyllur annarsstaðar.

En því má þetta ekki ná til landbúnaðarverkafólks? Hvers vegna á að undanskilja Korpúlfsstaði og ríkisbúin? Mér finnst, að vel mætti taka þau með, og ég held jafnvel, að verkamenn hafi haft sína trúnaðarmenn á þessum stöðum. Hvers vegna á að svipta þá þeim rétti með 1.? Þessu finnst mér, að ætti að breyta.

Þá er ákvæðið í lok 9. gr., að Alþýðusamband Íslands skuli skipa trúnaðarmenn, ef ágreiningur verður milli stéttarfélaga um, hvert þeirra skuli skipa hann. Ég vil benda á, að með núverandi skipulagi Alþýðusambandsins er þetta mjög varhugavert, t. d. að taka byggingaverkamenn, sem hafa mörg fagfélög, en fæst þeirra eru í Alþýðusambandinn. Ætti Alþýðusambandið að fara að skera úr ágreiningi milli þessara félaga, væri það raunverulega ekki réttur hlutaðeigandi. Ég vil leggja til, að þessum hluta 9. gr. verði breytt.

Þá er atriðið um gengisbreytingar etc. Eins og það var upphaflega í áliti n., var það að vísu tvíeggjað, en þó betra en þetta. Í þeirri mynd hefði það orðið atvinnurekendum skeinuhættara vegna afleiðinga þess. Það væri óheppilegt fyrir þá, sem eru að hugsa um krónulækkun. Fyrir verkamenn er lítil von um, að krónan hækki, svo að ég geri ráð fyrir, að það hafi verið numið burt vegna atvinnurekenda.

Þá kem ég að breytingum þeim, sem ég tel, að eigi að gera á öðrum kafla frv. Þar er byrjað í 14. gr. að takmarka verkfalisréttinn, sem Alþýðusamband Íslands samþ., að það óskaði eftir, að yrði ekki skertur, en á verkfallsréttindum byggist aðallega möguleiki þess til að vernda réttindi verkamanna. Í gr. er sagt, að félögunum sé heimilt að gera verkföll eða verkbönn til að vinna að framgangs krafna sinna í vinnudeilum og vernda rétt sinn. Það er hægt að toga og teygja þetta ákvæði í það óendanlega. Eg vil t. d. spyrja hv. flm., hvort eigi að skilja þetta svo, að öll önnur verkföll séu óheimil, eða hvort öll önnur verkföll séu líka heimil. Ef svo er, þá er þetta aðeins vitleysa. Þetta er nokkuð, sem verður að fást svar við. Sé það meiningin, að aðeins þessi verkföll eigi að vera heimil, þá er þarna verið að takmarka verkfallsréttinn ógurlega. Þess vegna vil ég óska eftir, að hv. flm. gefi sína skýringu á þessu í sambandi við 14. gr.

Svo kem ég að 15. gr. Þar er talað um réttinn til að hefja vinnustöðvun. Langar mig til að koma með eina fyrirspurn í sambandi við það.

Hvernig á að skilja þetta orð, vinnustöðvun? Hve víðtækt á það að vera í þessu sambandi? Það eru fleiri vinnustöðvanir til en verkföll og verkbönn. Það eru til vinnustöðvanir, þótt þær séu ekki til að gera kaupkröfur. Ef togaraeigendur stöðva togaraflotann, án þess að samningum um kaup sé sagt upp, þá er það vinnustöðvun. Er það þá óheimilt samkvæmt lögum þessum? Þetta langar mig til að fá skýrt. Þegar verið er að setja lög um það, sem engin lög hafa áður verið um, þarf margt að athuga, og það verður að koma glöggt fram, hvern skilning á að leggja í fyrirmælin. Það er ekki viðunandi fyrir verkalýðinn að eiga það undir einhverjum dómstólum, hvernig skilja beri l. — Í 16. gr. er verið að svipta verkalýðinn réttinum til að gera skyndiverkfall. Hv. þm. Ísaf. talaði um, að það væri ekki skertur réttur verkamanna til að gera skyndiverkfall, ef þeir vildu fá kaup sitt greitt vikulega eða knýja atvinnurekendur til að greiða út laun þeirra. Þessu er þannig háttað, að til eru lög, samþ. af Alþ., um það, hvernig kaupgreiðslum skuli háttað. Ef þetta atriði er sett inn í samning milli verkamanna og atvinnurekenda, þá heyrir það undir félagsdóm og ekki hægt að gera verkfall út af því. Ef því verkamenn setja þessi ákvæði í samning, þá eru þeir sviptir réttinum til að gera verkfall.

Þá má heldur ekki gera verkfall í mótmælaskyni. Ef verkamenn, sem stunda vinnu á hafnarbakkanum, álíta, að aðbúnaður á vinnustaðnum við uppskipun og annað sé ekki öruggur og ekki samkvæmt samningi þeim, sem Dagsbrún hefir gert við vinnuveitendur, þá geta þeir ekki gert verkfall. Atvinnurekendur geta látið halda áfram að nota þessi tæki, sem verkamenn telja ekki örugg, þangað til að slys hlýt af, eins og oft hefir komið fyrir, og verkamenn geta ekkert aðhafzt. Þar með er beinlínis verið að auka slysahættu fyrir verkamenn, og þeir verða að líða aðgerðarlausir, eftir að mál þeirra komi fyrir félagsdóm, án þess að geta mótmælt með verkfalli.

Það er einkennilegt, að hv. þm. Ísaf. skyldi koma með einmitt þetta atriði til að byrja með sem dæmi um, að vinnulöggjöfin rýrði ekki rétt verkamanna til að gera skyndiverkföll, en óánægjan hjá verkamönnum með vinnulöggjöfina byggist einmitt á því, að þeir geta ekki knúð fram það kaupgjald með verkföllum, sem þeim ber réttur til. eftir að frv. væri orðið að l. Þar, sem sett hafa áður verið hliðstæð l., t. d. í Svíþjóð, er, eins og sérstaklega er tekið fram í bréfi verkamannasambandsins til n., reynslan af þessum þætti l. mjög slæm fyrir verkamenn. Því er alleinkennilegt. að hv. n. skuli koma fram með einmitt þetta ákvæði.

Þá er það viðvíkjandi frestinum, áður en verkföll eru hafin. Fyrir vissan hluta verkamanna er hann afarslæmur. Að vísu kemur hann ekki svo mikið við þá verkamenn, sem hafa fasta vinnu, sem segja verður upp með löngum fyrirvara. en fyrir daglaunamennina, sem eru tiltölulega fleiri hér á landi en víðast hvar annarsstaðar, þá er þetta réttindaskerðing.

Samkvæmt 17. gr. þessa frv. er verið að banna pólitísk verkföll. Ég vil strax gera athugasemd við hina lagalegu skýringu hv. flm. á þessu atriði og mótmæla henni, þótt ég með því virðist ef til vill vera að mæla með því, sem hann sagði. Ef verkamenn vilja gera verkfall til að hefta afgreiðslu skipa, sem eru með farm til aðilja, sem þeir vilja ekki, að fái hann, séu þau t. d. með hergögn og aðrar vörur, sem fara eiga til þjóða, sem eru „boycotteraðar“, eða ef skip kemur með einhverjar vissar vörur, sem verkamenn vilja ekki skipa upp, — er þeim þá óheimilt að gera verkfall samkv. 17. gr.? Ég spyr hv. flm., hvort hann skilji 14. gr. svo, að samkv. henni væru þessi verkföll ólögleg. Þetta verður að koma skýrt fram, því að samkv. 17. gr. getur verið opin leið fyrir slík pólitísk verkföll. Það er með þessi ákvæði eins og yfirleitt allt í frv., það er svo ógreinilegt, að hægt er að teygja það á ýmsa vegu, svo að þess vegna þarf skilningurinn, sem liggur á bak við það, að koma skýrt fram við umr. og meðferð málsins í n., svo að menn viti, að hverju þeir eru að ganga. — Í 17. gr. er verið að banna ákveðna grein pólitískra verkfalla, sem sé verkföll gegn stjórnarvöldunum. Nú verður að koma skýrt fram, hvað við sé átt með stjórnarvöld í þessu sambandi. Ég skil það svo, að átt sé við ríkisstjórnina, löggjafarvaldið og framkvæmdarvaldið. En þá vil ég spyrja, hvort einnig sé átt við bæjarstjórn í þessu sambandi. Sé svo, er hvert einasta verkfall ólöglegt, sem gert er til að mótmæla framkvæmdum bæjarstjórnarinnar hér í Reykjavík. Mótmælaverkfall eins og gert var 1932 væri ólöglegt o. s. frv. Því verður að koma skýrt fram, hve orðið „stjórnarvöld“ sé víðtækt í þessu sambandi.

Það er vitanlegt, að vald það, er verkalýðurinn hefir. er að mestu innifalið í möguleika hans til að gera verkfall, og hann byggist á því, að verkalýðurinn er sá aðili, sem heldur þjóðfélaginu uppi, skapar verðmætin og leggur til vinnuna. Hjá verkamönnum er sterkasta valdið til að berjast á móti afturhaldi og brotum á lýðræði og þingræði. og með þessu er verið að skerða þetta vald þeirra. Það er vitað, að hvað eftir annað hefir verkalýðurinn orðið að beita þessu valdi með því að gera allsherjarverkföll, til að hindra framkvæmdir af hálfu stjórnarvaldanna, sem annaðhvort hafa verið beinlinis ólöglegar eða þá fordæmanlegar út frá, lýðræðinu. Í Þýzkalandi var Kruppstjórnin felld 1921 með allsherjarverkfalli. Þar kom það vald, sem dugði. Ég vil minna á það, er kom fyrir hér á Alþ. árið 1931, þegar það var skoðun ýmsra manna, að mynduð hefði verið í raun og veru einræðisstjórn. Morgunblaðið hafði í þetta eina sinn á æfi sinni svo mikið við, að það tók auglýsingarnar af fremstu síðunni, og þar stóð með feitu letri yfirskrift: einræðisstjórn. Þá tróð meiri hl. þm. lýðræðið undir fótum, og þá var Alþýðusambandið farið að athuga möguleika fyrir alisherjarverkfalli. Vegna þess að þá var álit manna, að stjórn sú, er fór með völd, væri ekki rétt skipuð lýðræðisstjórn, þá þarf að taka skýrt fram, hver afstaða þessara l. á að verða í slíkum tilfellum; hvað þá eru talin hin réttu stjórnarvöld, hvort það er meiri hl. hér á þingi eða konungur. Samkv. stjórnarskrá okkar hefir konungurinn víðtækt vald. Í sambandi við það verður að kveða skýrt á um það í svona l., hvort verkföll gegn þingi eða gegn konungi séu ólögleg. Verkalýðurinn hefir oft gripið til allsherjarverkfalls til að vernda lýðræðið. Það var t. d. gert í Danmörku 1921, þegar konungurinn misbeitti valdi sínu. Það er rétt að athuga alla slíka möguleika, þegar setja á lög sem þessi.

Í 18. gr. er verið að reyna að koma því að, að verkafólkið sem er í samtökum, megi ekki gerast verkfallsbrjótar. Því eru þeir ekki bannaðir? Það er verið að tala um, að þarna sé verið að lögleiða nokkuð, sem sé orðin hefð. Það er orðin svo mikil hefð, að Guðmundur Ásbjörnsson, fulltrúi sjálfstæðismanna í bæjarstjórn, sagði á fundi, er hv. þm. Seyðf., þáverandi atvmrh., var boðinn á og haldinn var í barnaskólaportinu út af símanjósnum, og þar sem rætt var um benzínverkfallið, að það væri orðin hefð, að verkfallsbrjóta mætti hindra með valdi. Ég spyr fulltrúa Alþfl., því þeir reyni ekki að fá inn í l. ákvæði um, að verkfallsbrjótar skuli bannaðir?

Þá kem ég að þriðja kafla frv., um sáttatilraunir. Ákvæðið um atkvgr. er ófært. Það er búið að ræða þetta atriði svo, að óþarft er að fara sérstaklega út í það, en ég er „principielt“ á móti því. Ákvæðið um atkvæðagreiðslu félaganna er brot á öllum lýðræðisreglum. Þegar það væri fært út í veruleikann, yrði útkoman sú, að ef verkamenn eru að vinna á ýmsum stöðum, þegar atkvæðagreiðsla á að fara fram um, hvort verkfall eigi að hefjast, þá er ómögulegt að koma á löglegri atkvgr. og þar með tekinn rétturinn af þeim félagsmönnum, sem sérstaklega láta hagsmunamál félaganna til sín taka. Þetta fyrirkomulag er sérstaklega slæmt hér, þar sem svo tiltölulega lítið er um fagfélög og menn úr mörgum starfsgreinum eru í sama félagi. Í Dagsbrún eru t. d. bæði byggingariðnaðarmenn og hafnarverkamenn. Sé verið að greiða atkv. um tillögu sáttasemjara í kaupdeilum byggingariðnaðarmanna, þá hirða hafnarverkamenn ekki um að mæta á fundinum, þar sem málið kemur þeim ekkert við, og þá verður útkoman sú, að ef t. d. tæp 20% greiða atkv. um till., þótt þeir greiði allir atkv. á móti henni, þá verður hún samþ.

Viðvíkjandi ákvæðunum um sáttasemjara í 34. gr., er aðeins eitt atriði, sem ég vil minnast á. Það er ákvæðið um réttinn til að birta skýrslu. Það er dálítið vafasamt, að ríkið fari að gefa út skýrslur á sinn kostnað um þetta, án þess að verkalýðssamtökunum sé gefið nokkurt tækifæri til að koma fram með sitt álit.

Þá er síðasti kafli frv. Ég álit, að hann sé gersamlega ófær og gefi hvað mest til kynna, hvernig þessi l. eru hugsuð á móti verkalýðssamtökunum. Ég álít, að samsetningin á dóminum sé alveg ófær. Ef dómurinn væri þannig skipaður, þá ætti verkalýðurinn í bezta falli einn fulltrúa' í dóminum. Hinir eru allir útnefndir ýmist af beinum andstæðingum verkalýðsins eða því borgaralega ríkisvaldi, sem yfirleitt er andstætt verkalýðnum, og ennfremur er stærsti atvinnurekandi landsins og þar af leiðandi stórkostlega interesseraður. Það er þess vegna ekkert spursmál, að það er um ekkert hlutleysi að ræða. Það væri þolanlegra að hugsa sér, að verkalýðurinn útnefndi 2, atvinnurekendur 2 og svo einhver stofnun, í versta tilfelli hæstiréttur, einn.

En svo er það eitt, sem ég vildi vekja athygli á. Það er það, að í frv-. eru ákvæði um, að ef atvinnurekandi er utan Vinnuveitendafélagsins, þá hefir hann rétt til að skipa fulltrúa í dóminn, en þó að verkalýðsfélag sé utan við Alþýðusambandið, þá hefir það ekki sama rétt. Nú væri ekkert við þessu að segja, svo framarlega sem Alþýðusamband Íslands væri opið öllum verkalýðsfélögum til inngöngu, en nú er það ekki svo. Meðan fyrirkomulagið er þannig, að nokkur hluti af verkalýðsfélögunum er utan Alþýðusambandsins, annaðhvort af því, að þau fá ekki inngöngu í það, eða af því að þau fást ekki til að ganga í það, þá er þetta misrétti gagnvart þeim þegnum þjóðfélagsins, sem hafa kosið að vera í verkalýðssamtökunum, en utan verkalýðssambandsins. Það virðist engin ástæða til, að þeir hafi ekki sama rétt í þessu efni og atvinnurekendurnir. Nú skyldi ég sízt setja mig upp á móti því, að Alþýðusambandið fengi einhverja vernd í 1., svo framarlega sem það væri öruggt, að ekki væri hægt að nota slíkt í þágu pólitískrar klíku. En svo lengi sem möguleikar eru fyrir því, að pólitísk klíka geti rekið úr Alþýðusambandinu hverja sem henni þóknast, án þess að þeir geti nokkurntíma náð rétti sínum, þá er þetta ákvæði ófært. Það er þess vegna svo, að annaðhvort verður að breyta þessu ákvæði frv. eða að það verður að liggja fyrir, að Alþýðusambandið ætli að breyta þeirra afstöðu, sem hingað til hefir ráðið í verklýðsmálunum, sem sé óþolandi samkrull pólitísks flokks og verkalýðssambands. Ég er áður búinn að koma inn á þetta atriði, svo að ég skal ekki fara nánar út í það.

Í 65. gr. ræðir um, að hægt sé að dæma aðilja í skaðabætur, og í 70. gr. eru ákvæði um hæð sektar. Ég verð að segja það, að þetta er e. t. v. eitt af harðvitugustu ákvæðum þessa frv. Það eru ekki sett nein takmörk fyrir skaðabótum og sektir gerðar allvíðtækar. Ennfremur er ekki í þessu gerðar neinar undanþágur um það, hvað sé hægt að taka af verkalýðsfélögunum upp í slíkar skaðabætur. Nú er það vitanlegt, að allt öðru máli gegnir um samtök verkamanna annarsvegar og atvinnurekenda hinsvegar, þar sem atvinnurekendasamtökin eru samtök hinna ríku í þessu þjóðfélagi, en verkamennirnir eiga ekkert til. Það er vitað, að Vinnuveitendafélagið leggur há gjöld á sina meðlimi og geysileg sektarákvæði til þess að knýja það fram að fá sterka sjóði. Verkamannasamtökin hinsvegar hafa ekki neina aðra peninga en þá, sem verkamennirnir sjálfir af sinni litlu getu leggja fram til sinna samtaka. Þeir hafa ekki bankana til þess að sækja sparifé þjóðarinnar í. Og verkamenn þurfa að leggja í marga aðra sjóði en verkfallssjóði. Þau eru um leið að reyna að koma sér upp tryggingum, og flest öll verkalýðsfélög hér á landi hafa komið sér upp sjúkrasjóðum. Ennfremur hafa þau reynt að koma sér upp byggingarsjóðum til að byggja hús yfir samtökin. Víða hafa þau líka getað komið upp fundahúsum. Víða hafa þau líka getað komið sér upp bókasöfnum til að reyna að auka menningu félagsmanna sinna. Og því meira sem samtökin eflast, því meira er af þesskonar sjóðum, sem styðja að menningarstarfsemi verkalýðsins. Allt þetta, sem verkalýðsfélögin eiga, er hægt að taka af þeim upp í skaðabætur samkvæmt þessu frv.

Ég hefi sýnt fram á, hve ólíka aðstöðu verkamenn og atvinnurekendur hafa í þessu efni. Það er augljóst mál, að þessum ákvæðum er beint gegn verkalýðnum. Við vitum það, að auk þess sem atvinnurekendur standa betur að vígi um greiðslu skaðabóta, þá eru sára lítil líkindi til að þeir verði dæmdir samkvæmt l. Þeir framkvæma ekki sín verkbönn með þeim hætti, að það mundi koma til með að heyra undir þessi l.

Það er annars dálítið einkennilegt að fara að taka það upp nú að setja sérstök sektarákvæði í löggjöf, sem snertir verkalýðinn. Ég man ekki betur en í öll þau l., sem sett hafa verið verkalýðnum til hagsbóta, hafi því alltaf verið gleymt, að setja sekarákvæði. Hvar eru sektarákvæðin viðvíkjandi banni kjallaraíbúða og viðvíkjandi l. um kaupgreiðslu í peningum. Þau l., sem sett eru í hagsmunaskyni fyrir verkalýðinn, má brjóta, án þess að hægt sé að dæma atvinnurekendur fyrir það, en ef á að setja l., sem snerta baráttu verkalýðsins, þá eru ekki spöruð sektarákvæðin. Ég held, að þetta ætti að vera öfugt. Það ætti að sekta þá menn, sem brjóta l. um kjallaraíbúðir, en sleppa heldur sektarákvæðunum þarna.

Ég verð að biðja hæstv. forseta afsökunar á því, að ég hefi farið svona út í einstakar gr. frv., en ég hefi gert það með tilliti til þess, að frv. muni nú fara til allshn., og er mikið undir því komið, hvernig n. tekur á þessu máli. Ef gerðar væru stórfelldar breyt. á frv., er náttúrulega hugsanlegt að afnema af því stærstu agnúana. Það er vitanlegt, að eins og frv. er nú, þá er meiri hl. verkalýðsins á móti því. Það er sá hluti verkalýðsins, sem treystir sér til að heyja baráttu. Ég álít sérstaklega nauðsynlegt, að n., sem fær frv. hér til meðferðar, geri sér það ljóst, hverskonar mál hún fær hér til meðferðar. Og að hún geri sér það jafnframt ljóst, að hér er um að ræða löggjöf, sem sá aðili, sem þessi löggjöf snertir aðallega, er mótfallinn.

Ég er á móti frv. sem heild, en mun hinsvegar, þegar það kemur úr n., reyna að bera fram við það brtt. eftir því sem fært þykir.