26.04.1938
Neðri deild: 54. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 864 í B-deild Alþingistíðinda. (1329)
95. mál, stéttarfélög og vinnudeilur
Einar Olgeirsson:
Herra forseti! Ég reyndi við 1. umr. að sýna hv. þm. fram á, hvað væri skaðlegt í þessu frv., og benti á ýmsa galla þess, m. a. lögfræðilega, fyrir utan þau atriði, sem eru hættuleg fyrir verkalýðssamtökin og brjóta í bág við allt lýðræði.
Það er auðséð á frágangi frv. frá n. hendi og því, hvernig því er skilað, að skynsamlegar fortölur hafa engin áhrif, og ég hygg, að auðu stólarnir sýni það, að ýmsir þm. vilji ekki setja sig í þá hættu að taka sönsum í þessu máli. Það væri æskilegt, þegar verið er að afgreiða frv., sem snertir svo fjölmennustu stétt þjóðfélagsins sem þetta frv. gerir, að þm. hefðu látið svo lítið að fylgjast með í því, hvað verið væri að afgreiða.
Ég ætla að byrja á því að ræða um aðalröksemdirnar, sem fram hafa komið, sérstaklega af bálfu Framsfl., síðast hæstv. forsrh. og hv. flm.
Það hefir sérstaklega verið mikið bent á það af hv. þm. Framsfl., sem næst Íhaldinu sækja þetta mál fastast, að á Norðurlöndum væri komin vinnulöggjöf viðast hvar. Ég held, að þessum mönnum sé nær að líta til þessara landa í sambandi við einhverja aðra löggjöf um vinnu og vinnuskilyrði heldur en þá, sem snertir skerðingu á verkfallsréttindum. Á Norðurlöndum er búið að koma í gegn fjölda af lögum, sem eru til mikilla hagsbóta fyrir verkalýðinn. Þau lög hefði Framsfl. mátt taka til fyrirmyndar á ýmsan hátt, ef hann hefði viljað sýna einhverja sérstaka umhyggju fyrir verkalýðnum. Sem dæmi skal ég nefna það, að nú eru tveir áratugir síðan viðast hvar á Norðurlöndum voru samþ. lög viðvíkjandi vinnutíma verkalýðsins, lög sem m. a. lögbuðu 8 tíma vinnudag. Það hafa nú í áratug verið lög á Norðurlöndum, sem leggja bann við barnavinnu og takmarka vinnu unglinga og kvenna, svo að ég tali ekki um, hve miklu fullkomnari allar alþýðutryggingar á Norðurlöndum eru heldur en hér. Ég skal bara benda á það sem dæmi, að þegar Framsfl. rausnaðist við að vera með alþýðutryggingunum, var allstór kafli í þeim, atvinnuleysistryggingar, gereyðilagður, eftir því sem upplýst hefir verið á þessu þingi, fyrir forgöngu formanns Framsfl., hv. þm. S.-Þ. Á Norðurlöndum er búið að koma á stórfelldum atvinnuleysistryggingum fyrir mörgum árum síðan, og borgar ríkið þar a. m. k. eitthvað til verkamanna, sem atvinnulausir eru. Hér er ástandið í þessu efni aftur á móti svo, sérstaklega fyrir forgöngu þess hv. þm., sem stendur þarna í dyrunum, að þegar íslenzki verkalýðurinn fær í fyrsta skipti lög afgr. á Alþ. um þessi efni, þá eru þau svo léleg, að ekkert verkalýðsfélag getur nýtt þau.
Hæstv. forsrh. minntist ofurlítið á það, að í Frakklandi væri til löggjöf um vinnu. Ég vil upplýsa hann um það, ef hann skyldi ekki vita það, að í Frakklandi er líka löggjöf um 40 tíma vinnuviku, löggjöf, sem tryggir í raun og veru næstum 7 tíma vinnudag.
Þessir menn, sem mest tala um vinnulöggjöf, ættu að athuga, hvað þau lönd, sem þeir vitna til viðvíkjandi löggjöf um vinnu og vinnuskilyrði, eru búin að gera í því, að reyna að tryggja afkomu verkalýðsins, tryggja skaplegan vinnutíma fyrir hann og gefa honum þar með kost á að vera menntaðri og sterkari stétt innan þjóðfélagsins heldur en hann ella hefði a. m. k. frá löggjafans hendi haft tækifæri til. Þegar verið er að vitna í það, að verkalýðshreyfingin hér ætti að taka Norðurlönd sér til fyrirmyndar, þá er það að því leyti, sem löggjöfin á Norðurlöndum er til fyrirmyndar fyrir verkalýðinn, en það, sem verkalýðurinn þar hefir getað knúið fram af verkalýðslöggjöf, hefir hann gert með því valdi, sem felst í hans sterku samtökum. En hitt, þegar vinnulöggjöf og annað slíkt er þar samþ., þá er það ýmist fyrir hans vanmátt eða víxlspor, og þessu ber ekki að rugla saman. Árangurinn af því, sem verkalýðshreyfingin á Norðurlöndum hefir áunnið sér, birtist í þeim réttindum, sem hún hefir unnið, en ósigrarnir og afleiðingarnar af þeim birtast í þrælalöggjöfinni.
Þá hafa hv. þm. Framsfl., og sérstaklega hæstv. forsrh., talað um það af miklum móði í sambandi við alla þá löggjöf, sem hér liggur fyrir, að það nái engri átt, að verkamenn og verkalýðssamtökin geti beitt valdi, og eiga þar með sérstaklega við, að verkalýðssamtökin komi á verkföllum og bindist samtökum um að hindra verkfallsbrjóta og annað þess háttar. Ég verð að minna þessa hv. þm. á, að spursmálið um valdbeitingu innan núverandi þjóðfélags horfir allt öðru visi við. Það er ekki verkalýðurinn, sem beitir valdi; það eru fyrst og fremst atvinnurekendur, sem beita valdi, — og hvaða valdi? Því valdi, sem þeir hafa yfir atvinnu verkamanna og þar með, eins og þjóðfélaginu er háttað, yfir lífi þeirra og allri afkomu, og þessu valdi beita atvinnurekendurnir alveg miskunnarlaust, þannig að þeir segja verkamönnum upp vinnu, hvenær sem þeim þóknast, og þó að verið sé að tala um, að þetta frv., sem hér liggur fyrir, geri atvinnurekendur og verkamenn að einhverju leyti jafnréttháa, þá er það eins og hvert annað þvaður, því að það er ekkert, sem kemur til greina í því efni, eins og þjóðfélaginu er háttað. Atvinnurekandinn hefir svipað vald yfir verkamönnunum eins og þrælaeigandinn á sínum tíma hafði yfir þrælnum og jarðeigandinn yfir ánauðugum bóndanum; hann hefir atvinnu hans og líf meira og minna í hendi sér, og að hann skuli ekki eyðileggja verkalýðsstéttina líkamlega í stórum stíl, eins og raunin vildi verða á uppgangsskeiði auðvaldsskipulagsins, stafar af því, hvað harðvítuglega verkalýðurinn setur sig á móti því. Það er vitanlegt, að verkalýðssamtökin eru nauðvörn verkalýðsstéttarinnar á móti þessu valdi, sem atvinnurekendur hafa í núverandi þjóðfélagi, og ef þessi nauðvörn er að einhverju leyti takmörkuð, þá er þar með verið að rýra þá möguleika, sem verkalýðsstéttin hefir til sæmilegrar afkomu, eins og þjóðfélagið er nú. Það er þess vegna langt frá því, að með því frv., sem hér liggur fyrir, sé að einhverju leyti verið að koma í veg fyrir valdbeitingu, eins og hæstv. forsrh. vildi vera láta. Það er þvert á móti verið að auka þau réttindi og það vald, sem atvinnurekendastéttin hefir, en að sama skapi er reynt að leggja verkalýðssamtökunum fjötur um fót viðkomandi atvinnurekendastéttinni. Ég hefi áður vakið eftirtekt á því í sambandi við þetta frv., að meira að segja þegar verið er að tala um vinnustöðvun í því, þá er þar ekki nokkur greinarmunnr á gerður, sem tryggir, að atvinnurekendum sé ekki mögulegt að fara í kringum þessi lög eins og þeim þóknast. Þeim er í raun og veru heimil hvaða vinnustöðvun sem þeir vilja, því að þeir geta alltaf framkvæmt hana á þann hátt, að segja verkamönnum upp, því að það er ekkert í þessum lögum, sem takmarkar þennan rétt. Það hefir þó þótt viðeigandi í hverju einasta siðuðu landi, þar sem vinnulöggjöf hefir að einhverju leyti verið sett, að tryggja a. m. k. að einhverju leyti, að verkamenn hefðu rétt til þess að dæma um og segja eitthvað um það, hvort uppsagnir atvinnurekenda hefðu við rök að styðjast. Í þessari löggjöf er vald atvinnurekendanna látið vera alveg óskorað og ótakmarkað eftir sem áður; það er einungis gegn verkalýðsstéttinni, sem takmörkuninni er beint. Þegar hæstv. forsrh. talar af miklum þjósti, eins og hann gerði við 1. umr., um það, að það væru svík við verkalýðinn, að vera að mæla á móti svona vinnulöggjöf. þá ætti hann að stinga hendinni í eigin barm og athuga, hverjir það eru, sem svíkja. — Hæstv. forsrh. talaði í þessu sambandi líka um það, hvort sá smáskæruhernaður, sem nú ætti sér stað í þjóðfélaginn, ætti að fá að halda áfram ótakmarkað, hvort verkföll, utan við lög og rétt ættu að halda áfram. Ég verð að segja það um þennan smáskæruhernað. að hann er háður jafnt eftir sem áður, að því leyti, að sú barátta, sem er háð á vinnustöðvunum, er háð af atvinnurekendunum til þess að geta hagnýtt vinnukraft verkamannanna sem bezt, keypt hann sem ódýrast og notað hann líka stjórnmálalega, eins og þeim er frekast mögulegt, ef þeir komast upp með það. Þessi smáskæruhernaður verður til yfirleitt á meðan hagsmunamótsetningar eru til á milli atvinnurekenda og verkamanna, og Framsfl., sem allt þykist geta læknað með sinni afstöðu á milli stétta og flokka, verður ef hann ætlar sér að gera eitthvað í þessu máli, að þora að taka á þessu meini við rætur þess, sem liggja í stéttaskiptingunni sjálfri og í eignarrétti einstakra atvinnurekenda á framleiðslutækjunum, og þora að afnema hann. Meðan hann helzt, helzt stéttabaráttan og smáskæruhernaðurinn, sem hæstv. forsrh., var að barma sér yfir.
Það kom fram við 1. umr., í sambandi við umræður um skaðabótaskyldu verkalýðsfélaganna, sérstaklega af hálfu hv. frsm., að það næði ekki nokkurri átt að setja lög, sem hefðu engin ákvæði um skaðabætur og sektarákvæði. En það vill gleymast nokkuð auðveldlega að setja ákvæði um skaðabætur og sektarákvæði, ef um lög er að ræða, sem að einhverju leyti eru verkalýðnum til góðs. Ég hefði gaman af að spyrja þessa ágætu lögfræðinga, sem að þessu frv. standa, hvar sé að finna sektarákvæði og skaðabætur í sambandi við lögin um kjallaraíbúðir eða lögin um greiðslu kaupgjalds. Eg man ekki hvort það er í sambandi við togaravökulögin. Ég sé því ekki frekar ástæðu til að hafa ákvæði um skaðabætur og sektir í þessum lögum, sem þingið ætlar að fara að afgreiða, heldur en í öðrum lögum, sem þessir herrar segjast setja fyrir verkalýðinn.
Viðvíkjandi þeim spurningum, sem ég kom fram með við 1. umr., um það, hvernig ætti að skilja ýmislegt í frv., hefir fáu eða engu verið svarað, og það hafa heldur ekki komið frá n. neinar þær brtt., sem gæfu til kynna, að hún hafi reynt að setja sig inn í ýms af þeim vandamálum, sem eru í sambandi við þetta frv. Ég nefndi í sambandi við spursmálið um pólitísk verkföll allmörg dæmi um verkföll, sem ég álit vera leyfð, þó að þau séu pólitísk, þrátt fyrir þetta, og benti á, hversu nauðsynlegt það væri að gera viðkomandi gr. a. m. k. skýrari. En það liggur engin brtt. fyrir frá hv. n. viðvíkjandi því. — Ég kom ennfremur með spurningu í sambandi við 14. gr., um það, hvort öll önnur verkföll væru heimil. Um þetta hefir ekkert svar komið, og 14. gr. er þar með viðurkennd sem hrein della af þeim, sem að þessu frv. standa.
Ég ætla að geyma mér að fara í ýmislegt af því, sem sérstaklega hefir borið á góma síðan, þangað til einhverjir af hv. þm. Framsfl. hafa látið ljós sitt skína í sambandi við þetta frv., og skal því taka fyrir þetta mál, sem hér liggur fyrir.
Það er svo sem auðséð, að ekki hefir vantað samkomulagið í þessari blessaðri n., og Íhaldið finnur meira að segja sérstaka ástæðu til þess að undirstrika það í þessu nál. m. a., að það fagni framkomu þessa frv. og leggi til, að það verði samþ., og hér liggur ekki fyrir ein einasta brtt. frá hv. þm. N.-Ísf., sem á sæti í þessari hv. n., þrátt fyrir það þótt honum hljóti að vera kunnugt um, að svo að segja frá hverju einasta verkalýðsfélagi á landinu hafa komið fram óskir, og það mjög ákveðnar óskir. um stórvægilegar breyt. á þessu frv., meira að segja frá öllum þeim verkalýðsfélögum, sem tekizt hafði að fá til þess, að mæla með því.
Ég á bágt með að skilja það virðingarleysi og næstum fyrirlitningu fyrir vilja verkalýðsfélaganna, sem kemur fram í því, að það skuli ekki koma fram ein einasta till. af hálfu fulltrúa Alþfl. í þessari n. til þess að reyna að afstýra því skaðlegasta í sambandi við þetta frv. Hinsvegar er Íhaldið ánægt með þetta, eins og við var að búast. Það vantaði ekki yfirlýsingarnar um það við 1. umr. og heldur ekki í sambandi við nál. Þar gengur ekki hnífur á milli. Að vísu sést á þessu nál., að hv. þm. N.-Ísf. hefir fundizt nóg um þessa ánægju Íhaldsins og vill reyna að „dempa“ gleðina hjá því. Hann reynir a. m. k. að telja verkalýðnum trú um, að Íhaldinu sé að einhverju leyti illa við þetta frv., en það dylst bara engum, að gleði Íhaldsins er því miðu allt of ástæðurík til þess, að þessum hv. þm. takist að draga úr henni á þennan hátt. Það er því auðséð. að í sambandi við þetta mál á verkalýðurinn í landinu að etja sameiginlega við afstöðu a. m. k. allra þeirra þriggja þingfl., sem eiga fulltrúa í þessari n., og sé ég ekki betur en að þar með hafi þeir, hægri mennirnir í Alþfl., tekið algera afstöðu á móti vilja þeirra verkalýðsfélaga líka, sem þeir hafa haft meiri hl. í og hafa gengið inn á að samþ. áskorun til Alþ. um að afgreiða þetta frv. með þeim breyt., sem þau hafa óskað eftir. Það virðist því vera orðið þannig, að það sé ekkert annað en máttur og áhrif verkalýðsins og samtaka hans utan Alþ., sem geti haft einhver áhrif á það héðan af, hvort þessi vinnulöggjöf verður samþ. eða ekki.
Ég álít, að það sé afarilla farið með þessu. Þau 13000 manns í Alþýðusambandinu, sem gegnum samtök sín hafa látið í ljós álit sitt á vinnulöggjöfinni, hafa mestmegnis staðið á móti þessu frv. Það munn ekki vera nema örfá verkalýðsfélög á landinu, sem hafa samþ. að mæla með frv. óbreyttu, og ég efast um, að það sé meira en eitt, sem hefir gert það. Svo hafa sum verkalýðsfélögin samþ. að fylgja frv. með því skilyrði, að því yrði breytt, og þar að auki mun helmingur af verkalýðssamtökunum beinlínis vera algerlega mótfallinn frv. Það er því um það að ræða, hvort Alþ. ætlar að ráðast í það að samþ. lög, sem verkalýðssamtökin eiga að búa við þvert á móti vilja þeirra og þvert ofan í margyfirlýstan vilja verkalýðsfélaga utan og innan Alþýðusambands og alþýðusambandsþinga.
Við kommúnistar höfum lagt fram brtt. við þetta frv., og skal ég strax taka það fram, að þær brtt. ber í raun og veru varla að skoða sem neinar venjulegar brtt. við frv., en það get ég sagt, að svo framarlega sem þessar brtt., verða samþ., þá eru þau ákvæði frv., sem miða að því, að kúga verkalýðinn, algerlega eyðilögð, en þeim ákvæðum yrði haldið eftir, sem að einhverju leyti auka réttindi verkalýðsins. Við lýstum því yfir við 1. umr., að við værum á móti þessu frv. og munum greiða atkv. á móti því.
Brtt. okkar miða að því, að freista þess, hvort hugsanlegt væri, að nokkrir af þeim mönnum, sem greiða atkv. um þetta, vilji taka nokkurt tillit til réttinda verkalýðsins, en annars er aðaltilgangurinn með brtt., að sýna ofurlítið, hvernig þetta frv. ætti að vera, ef það væri einhvers nýtt fyrir verkalýðinn, af því að við búumst við að vekja með brtt. athygli á því, hvernig hinar einstöku gr., sem við gerum brtt. við, eru í raun og veru alveg ónógar og næstum einskisvirði, eins og frá þeim er gengið — Skal ég nú rekja brtt. okkar, sem eru á þskj. 306.
Fyrsta brtt. er í sambandi við 2. gr., sem fjallar um stéttarfélög, og leggjum við til, að aftan við þá gr. verði bætt ákvæði viðvíkjandi stéttafélagssambandi. Í þessu frv. er hvað eftir annað talað um stéttafélagasamband, og það er ennfremur gert ráð fyrir sérstökum réttindum til handa alþýðusambandinu, sem, eins og kunnugt er, er núna aðalstéttafélagasamband íslenzka verkalýðsins. Þar með væri verið ef þetta frv. yrði samþ., að festa í raun og veru í fyrsta skipti í íslenzkum lögum ýmiskonar ákvæði viðvíkjandi verkalýðsfélögum og þeirra réttindum og viðvíkjandi réttindum manna innan verkalýðsfélaganna og sambanda þeirra. Þegar ríkisvaldið fer að láta það til sín taka, þá verður það auðvitað að sjá til þess, að beitt sé í sambandi við þetta þeim reglum, sem viðurkenndar eru í þjóðfélaginu, og að félagsskapur og þau samtök, sem fá þannig sérstök réttindi með þessum lögum, fullnægi þeim skilyrðum, sem menn hljóta að gera til slíkra samtaka í lýðfrjálsu skipulagi. Við leggjum því til, að aftan við þessa gr. sé bætt ákvæði um, að í þessu stéttarsambandi skuli allir meðlimir stéttarfélaganna kjörgengir til allra trúnaðarstarfa sambandsins og félaga þess án tillits til þess, hvaða stjórnmálaflokki þeir tilheyra. Það myndi t. d. ekki ná nokkurri átt, að samþ., að ákveðið samband skyldi vera það eina samband fyrir verkalýðinn í landinu og að þetta samband gæti haft ákvæði, sem útilokuðu megnið af verkamönnum frá því, að vera kjörgengir í trúnaðarstöður og fulltrúastöður innan þess, eða t. d. að útiloka frá því alla þá menn, sem fylgdu þeim stjórnmálaflokki, sem e. t. v. væri sterkasti stjórnmálaflokkur verkalýðsins. Allt þetta myndi stinga í stúf við þær reglur, sem eiga að gilda í okkar þjóðfélagi. Það verður að ganga út frá því, að það ríki fullt lýðræði innar. svona samtaka og að minni hl. geti ekki haft miklu meiri rétt en meiri hl. Nú er það hinsvegar vitanlegt, hvað Alþýðusamband Íslands snertir, að þar hafa við fulltrúakosningar ekki verið kjörgengir nema menn úr vissum stjórnmálaflokki, þannig að þó að meiri hl. verkamanna kysi menn úr öðrum flokkum, næðu þeir ekki kosningu. Þetta nær engri átt. Alþingi, sem vill byggja sín l. á lýðræði og innan sinna vébanda tryggir öllum stjórnmálaflokkum, með vissum takmörkum jafnan rétt, getur ekki verið þekkt fyrir að setja slík kúgunarákvæði í l. Samband eins og Alþýðusamband Íslands verður vitanlega að hafa rétt til að ákveða eitt og annað með sínum samþykktum. Það er ekki hægt að skylda sambandið til að taka inn félög, sem klofin eru út úr verkalýðssamtökunum. Hinsvegar álít ég, að þetta ákvæði viðvíkjandi jafnrétti meðlimanna í slíku sambandi sé mjög þýðingarmikið. Ég vil í þessu sambandi vekja eftirtekt á ákvæðum 6á. gr. frv., sem við leggjum til, að verði felld burt. Þar er Alþýðusambandi Íslands veittur sérstakur réttur til þess að útnefna menn í félagsdóm. Við skulum hugsa okkur, að eitthvert félag ætti í vinnudeilu, sem stæði utan Alþýðusambandsins; þau eru allmörg til, svo sem iðnfélögin, múrarafélagið, póst- og símamannafélagið og ýms fleiri starfsmannafélög. Í því tilfelli væri óréttmætt að láta Alþýðusambandið útnefna menn fyrir félagsins hönd. Atvinnurekendur hafa rétt til að útnefna sjálfir menn í dóminn, svo framarlega sem þeir standa utan Vinnuveitendasambands Íslands, en verkalýðurinn, sem er utan Alþýðusambandsins, á ekki að hafa þennan sama rétt. Þetta væri mjög óréttmætt. Við leggjum því til, að þessi kafli verði allur felldur burt við 2. umr., en takist það ekki, munum við bera fram brtt. við 3. umr. Ég álít, að hv. þm. ættu að athuga gaumgæfilega þetta atriði, áður en þeir afgr. frv., eins og þeir munu flestir ákveðnir í að gera.
Önnur brtt. okkar er við 4. gr. Að áliti þeirra, sem flytja þetta frv., eiga verkamenn að hafa einhverja tryggingu fyrir því, að þeir séu ekki beittir pólitískri kúgun. Og 4. gr., með þessum breyt. okkar, myndi einmitt veita slíka tryggingu að nokkru leyti. Ég er hræddur um, að þeir hv. þm., sem eru í hægra armi Alþfl., ættu fyrst og fremst að gæta þess, að fara ekki sjálfir að brjóta á móti anda þessarar gr. í verki, eins og okkur hefir þótt verða vart við upp á síðkastið, og reyna ekki að hafa áhrif á starfsmenn sína. Þeir ættu að reyna að lifa eftir anda þessarar gr. sjálfir; það væri það ánægjulegasta. Og ég hugsa, að verkalýðurinn mundi vilja vinna það til, að fella gr. alveg burt úr l., ef svo mætti verða. En eigi þessi gr. frv. eða það, sem þeir vilja finna í henni, að verða að gagni, þarf hún að vera orðuð eins og við leggjum til. — Ef atvinnurekandi segir upp verkamanni, segist hann aldrei gera það vegna stjórnmálaskoðana hlutaðeigandi manns. Hann gerir það af annari ástæðu. Sá aðili, sem einn gæti verndað viðkomandi verkamann, er verkamannafélagið sjálft eða verkamenn á viðkomandi vinnustað. Þess vegna álitum við, að þarna verði að bæta við því ákvæði, að áliti viðkomandi verkalýðsfélag, að atvinnurekandi hafi brotið þessa gr. l., þá öðlist trúnaðarmaður verkalýðsfélagsins rétt til þess að ákveða, hvaða verkamenn skuli vera í vinnu hjá viðkomandi atvinnurekanda. Sem sagt, ef verkalýðsfélagið litur svo á, að viðkomandi atvinnurekandi geri sig sekan um stjórnmálalega skoðanakúgun, getur félagið svipt hann réttinum til þess að ráða því, hvaða verkamenn hann hefir í vinnu. Þetta kann e. t. v. að koma mönnum einkennilega fyrir sjónir hér, en erlendis tíðkast víða þetta fyrirkomulag, að verkamannasamböndin sjálf skipti vinnunni niður á milli verkamanna. Og sumsstaðar hér á landi hafa samböndin tekið sér þennan rétt, þannig að þetta er ekkert, sem er fjarri lagi. Þeir, sem þykjast vilja gera eitthvað fyrir verkalýðinn á þessu sagði, ættu því að geta samþ. þessa brtt. okkar.
Fimmta gr. frv., sem við flytjum brtt. við, er um stéttarfélög sem lögformlegan samningsaðila. Nú er það vitanlegt, að þó að það standi í l., að stéttarfélög séu lögformlegur samningsaðili, geta atvinnurekendur neitað að semja við verkalýðinn.
Hv. þm. Ísaf. talaði mikið um það við 2. umr. þessa máls, að með því að fá þetta inn í l., væri verið að spara fyrir verkalýðsfélögin úti á landi harðvítuga baráttu, sem verkalýðsfélögin í hinum stærri bæjum hefðu orðið að heyja, til þess að fá sig viðurkennd sem samningsaðilja. Þetta er rangt hjá hv. þm. Þó að þetta ákvæði yrði að l., yrðu félögin úti á landi að heyja þessa sömu baráttu. Atvinnurekandinn er ekki skyldugur til að semja við viðkomandi verkalýðsfélag. Hann getur sagt sem svo: „Ég greiði ekki hærra kaup en þetta“, einkanlega þó í smáþorpunum, þar sem einn atvinnurekandi máske ræður öllu. Við leggjum til, að svo framarlega sem atvinnurekandi neitar að semja við verkalýðsfélag, hafi félagið rétt til að auglýsa kauptaxta. og hann skuli þá gilda eins og löglegur samningur. Þetta þýðir, að vilji atvinnurekandinn ekki viðurkenna verkalýðsfélag sem samningsaðilja, þá hefir verkalýðsfélagið þennan rétt. Hinsvegar er gefið, að atvinnurekandi getur hafið samninga við verkalýðsfélag og þeir orðið árangurslausir; hann er aðeins neyddur til þess að tala við félagið sem réttan samningsaðilja.
Þá kem ég að 8. gr. frv. Hún er ein af þeim mörgu gr., sem eingöngu leggja skyldur á herðar verkalýðsfélaganna, en engar samsvarandi skyldur á atvinnurekendur. Þeir bera ábyrgð á samningsrofum. Við leggjum til, að þessi gr. verði felld burt. Við viljum, að það sé ekki hægt að gera verkalýðsfélögin ábyrg fyrir samningsrofum, sem atvinnurekendur kunna að kalla fram.
9. gr. frv. fjallar um trúnaðarmenn. Henni hefir verið mjög haldið fram af formælanda þessa frv. Okkar brtt. við þessa gr. er á þá lund, að þegar verkalýðsfélag hefir útnefnt tvo menn til trúnaðarmannastarfa, skuli verkafólkið á viðkomandi vinnustöð hafa þann rétt, að velja annan þeirra sem trúnaðarmann, í stað atvinnurekenda, eins og gert er ráð fyrir í frv. Þetta ætti að tryggja samstarfið milli verkalýðsfélagsins og fólksins á viðkomandi vinnustað. — Síðasti málsl. 9. málsgr. fjallar um að undanþiggja ákveðnar vinnustöðvar undan því að hafa trúnaðarmenn, og á t. d. trúnaðarmannaákvæðið ekki að ná til landbúnaðarverkafólks. Ég benti á það við 1. umr., að með þessu væri verið að svipta verkafólkið á Korpúlfsstöðum réttinum til þess að hafa trúnaðarmenn, en þetta er stærsta landbúnaðarvinnustöðin á Íslandi. Við leggjum til, að þetta ákvæði verði fellt burt og að alstaðar, þar sem 5 menn vinna, skuli verkafólkið geta haft trúnaðarmann. Ég sé heldur ekki, að nein rök hafi komið fram, sem mæli með því, að svipta þá menn, sem vinna við landbúnað eða ákveðin skip, þessum rétti. Hinsvegar er vitanlegt, að það er lítils virði að hafa þessa trúnaðarmenn, svo framarlega sem ekki er öryggi fyrir því, að hægt sé að segja þeim upp. 11. gr. frv. mælir að vísu svo fyrir, að óheimilt sé að segja trúnaðarmönnum upp vinnu vegna starfa þeirra sem trúnaðarmanna. Þetta er sama „húmbúkkið“ og ég hefi áður bent á í sambandi við 4. gr. Auðvitað dettur atvinnurekendum ekki í hug að viðurkenna, að þeir segi trúnaðarmanninnm upp vinnu vegna hans starfa sem trúnaðarmanns. Þeir bera honum einhverja aðra galla á brýn. Okkar brtt. á að tryggja, að trúnaðarmanninum sé sagt upp síðast allra og að atvinnurekendur geti ekki losnað við þessa trúnaðarmenn, nema með því móti að segja upp öllu fólkinu. Vitanlega er sá möguleiki til fyrir atvinnurekendur, eins og það er möguleiki til fyrir þá, að fara í kringum öll þessi l. En svo framarlega, sem hv. þm. vilja sýna einhverja viðleitni til þess að tryggja rétt verkalýðsins, ættu þeir að geta samþ. brtt. okkar við 11. gr.
Þá er lokið brtt. okkar við þennan kafla, sem fjallar um rétt stéttarfélaga. Það er auðséð af því, sem ég hefi sagt, að þessi réttur er harla lítils virði. Og þótt brtt. okkar verði samþ., er samt hægt að fara í kringum þetta allt af hálfu atvinnurekenda, þannig að fáist þær ekki samþ., væri fyrst augljóst, að hér er ekki verið að hugsa um rétt verkalýðsins.
Ég kem þá að II. kaflanum og brtt. okkar í sambandi við hann. Þær eru yfirleitt stuttar, og miða að því, að viðhalda þeirri reglu, sem hér hefir gilt um verkföll og á að gilda í hverju lýðræðisþjóðfélagi. Þess vegna leggjum við til, að 15.–17. gr. verði felldar burt, en þær hafa í sér fólgnar takmarkanir á því, hvenær hægt er að koma á vinnustöðvun. Þær mæla svo fyrir, að ekki megi hefja vinnustöðvun nema í ákveðnum tilgangi, og banna ákveðin verkföll.
Það er eftirtektarvert í sambandi við þennan kafla, að hann fjallar, hvað fyrirsögnina snertir, um verkföll og verkbönn, en það er engin tilraun gerð í kaflanum til þess að takmarka það vald, sem atvinnurekendur hafa til þess að framkvæma verkbönn með allt öðru móti en þarna er um talað. Væru ákvæði kaflans tekin eftir orðunum, mætti heimfæra þau undir, að atvinnurekendur mættu ekki framkalla vinnustöðvun. En það vitum við, að hefir ekki verið tilgangurinn. Atvinnurekendum er látið standa opið að gera hvaða stöðvun sem vera skal, bara ef þeir kalla það ekki verkbann, sbr. 17. gr. Nú kynni einhver að segja, að með þessu móti væru atvinnurekendur hindraðir í því að gera vinnustöðvun til þess að þvinga viðkomandi ríkisstjórn. En það er vitað, að með þessu er verið að hindra, að verkalýðurinn geti notað samtök sín. Það er tilraun til þess að hindra verkföll, sem á mjög áhrifamiklum augnablikum gætu haft mikla þýðingu fyrir verkalýðinn og þjóðina í heild. Ef atvinnurekendur hinsvegar vildu beita þessu, þá geta þeir gert eins og þeim þóknast, án þess að brjóta í bága við þessi ákvæði. Og þeir hafa gert þetta með stöðvun togaraflotans 1936, til þess m. a. að gera viðkomandi ríkisstj. erfitt fyrir. Og það er vitanlegt, að atvinnurekendur hér á landi munu hugsa til að beita svona ráðum og reyna að kúga ríkisstj. með því að stöðva þau atvinnufyrirtæki, sem þeir hafa í sínum höndum og eru taldir eigendur fyrir. Þessi ákvæði eru því vitagagnslaus hvað verkbönn snertir af hálfu atvinnurekenda. Hér er eingöngu um að ræða árás á verkalýðssamtökin, — þau einu samtök, sem lýðræðið og vinstri flokkarnir geta treyst á og geta sýnt verulega mótspyrnu, ef um árás af hálfu afturhaldsins er að ræða. Einmitt þessi samtök myndi Framsfl. vera að reyna að veikja og lama með því að samþ. þessar gr.
Samkv. 18. gr. er atvinnurekendum óheimilt að stuðla að því, að skipulagðir verkamenn gerist verkfallsbrjótar, þegar löglega hefir verið til þess stofnað. Við viljum bæta hér við, að þeim sé ekki heldur heimilt að reyna að brjóta verkföll á bak aftur með öðrum verkfallsbrjótum.
Þá kem ég að kaflanum um sáttatilraunir í vinnudeilum. Við flytjum hér brtt. við 30. gr., þar sem rætt er um birtingu till. sáttasemjara. Það virðist vera sérstök trú á því hjá vissum þm. Framsfl., að heppilegast væri, að miðlunartill. sáttasemjara yrðu ekki kunnar, áður en fundir væru haldnir í viðkomandi verkalýðsfélögum, og sérstaklega, að fulltrúar verkalýðsins hefðu ekki haft tækifæri til þess að gera þær kunnar í blöðum sinum. Það er eins og þeir haldi, að með .því móti að birta ekki till. áður, mundu meiri möguleikar vera á því, að þær yrðu samþ. Hugsunarhátturinn, sem hér liggur á bak við, er sá, að verkamennirnir, sem um þetta eiga að fjalla, mundu til í að samþ. viðkomandi till., en hinsvegar mundu áhrif verkalýðsflokkanna og blaðanna heldur beinast í þá átt, að vinna á móti viðkomandi till. Þetta er sami hugsunarhátturinn og þeirra manna, sem halda, að verkalýðssamtökunum sé stjórnað af nokkrum æsingamönnum og að verkamennirnir séu í raun og veru menn, sem séu afvegaleiddir af þessum æsingamönnum, og þess vegna sé um að gera að halda verkalýðnum sem lengst frá þeim. Þetta byggist á reginmisskilningi á allri afstöðu verklýðsstéttarinnar í þjóðféláginu. Sannleikurinn er einmitt þvert á móti sá, að hjá verklýðsstéttinni sprettur auðvitað stéttabaráttan upp. Það er sú eðlilega tilhneiging manna til þess að bjarga sér, sem kemur fram í þeirri mynd, að þeir verða að hjálpast að, því að þeir (verkamenn) hafa enga eign og ekkert vald yfir atvinnufyrirtækjum né heldur peninga. Eina vald þeirra er með samtökum. Þess vegna er það, að hjá verkamönnum skapast verklýðshreyfingin og sósialisminn. þeirra frelsisbarátta. Það eru þess vegna verkamenn sjálfir. sem öruggastir eru í því, að balda fram réttindum sínum og berjast fyrir þeim. Það er misskilningur, að heppilegast sé að leggja till. sáttasemjara óundirbúið fram á verklýðsfélagsfundi.
Og sérstaklega, eins og sakir standa nú, er það mjög rangt. Það er einmitt svo komið nú um verklýðsstéttina, eins og afstaðan er nú í þjóðfélaginu, að hún tekur í sinni verklýðsbaráttu eða vill taka tillit til ýmislegs, sem ekki snertir hagsmunabaráttu í svipinn. Og það er miklu erfiðara að koma þess háttar baráttu við, ef ekki er hægt að ræða slíkar till. (þ. e. sáttasemjara), áður en þær koma fram á verkalýðsfélagsfundi. Það er miklu skynsamlegra, að hægt sé að ræða till. þessar áður en á fundum verklýðsfélaganna. Þess vegna förum við fram á, að heimilt sé fulltrúum verklýðsfélaga, ef þeir óska þess, að birta á prenti sáttatillögur sáttasemjara, áður en þær verði ræddar á fundi félagsins. Ég held, að þeir menn, sem hafa verið á móti þessu, en hafa hinsvegar dálítla reynslu af þessum málum, ættu að athuga þetta atriði alvarlega, áður en þessar brtt. koma til atkvgr.
Um 32. gr. frv., sem fjallar um atkvgr. um miðlunartill. sáttasemjara innan verklýðsfélaganna, leggjum við til, að þar sé samskonar aðferð höfð, sem tíðkast í siðuðum þjóðfélögum, að þar sé meiri hl. látinn ráða, en ekki minni hl. og einhver maður, sem hvergi kemur nálægt verklýðsfélaginu. Og hann getur í sérstökum kringumstæðum ráðið alveg eins fyrir verklýðsfélagið, þó að hver maður í verklýðsfélaginu, sem fjallar um þetta, sé á móti hans ráðum. Eftir 32. gr. frv. getur sáttasemjari fengið sína till. samþ., þótt hver einasti maður, sem greiðir atkv., greiði atkv. á móti henni, svo framarlega sem ekki nema 19% atkvæðisbærra manna hafa tekið þátt í atkvgr. Með þessari gr. er verið að innleiða argasta einræði og það af þeim hv. þm., sem alltaf eru með lýðræðið á vörunum og tala um það með miklum fjálgleik, og þykjast vera afskaplegir verndarar þess, og þykjast ekki mega sjá því misboðið nokkurn skapaðan hlut. Þeir finnst mér ættu að byrja heima hjá sér og samþ., að þarna skuli ráða lýðræði og að lýðræðislegur meiri hl. eigi að samþ. till. sáttasemjara í öllum kringumstæðum, til þess að þær geti orðið gildandi viðkomandi málum verkalýðsfélaganna.
Þá leggjum við til, að 34. gr. frv. falli burt. Við álítum ekki ástæðu til að láta ríkissáttasemjara birta skýrslu um þetta á kostnað ríkisins „á þann hátt, sem hann álítur heppilegast til þess, að almenningur fái rétta hugmynd um deiluna, eins og hér stendur í frvgr. Það væri dálaglegt, ef skrifað væri fyrir alþjóð um slíkar deilur líkt og við þekkjum, hvernig sumir hv. þm. Framsfl. skrifa um þessi mál; t. d. þegar hv. þm. S.-Þ. skrifar í Nýja-dagblaðið um sögu ýmissa verklýðsfélaga. Hann er duglegur í slíku, en sáttasemjari ríkisins hinsvegar linur í slíkum sökum. Það yrði dálaglegt plagg, ef hv. þm. S.-Þ. væri látinn skrifa sögu einhverrar vinnudeilu og hún væri svo gefin út í nafni sáttasemjara ríkisins, og á kostnað ríkisins auðv. líka, til þess að almenningur fengi rétta(!) hugmynd um málið. Ég hygg réttast, ef ætti að gefa eitthvað út um slíkt, að báðir aðiljar fengju þá að segja sitt álit um málið. En það er eins og sumir álíti, að ef orðið „ríkis-“ sé sett framan við eitthvað, þá sé það þess vegna upphafið yfir alla pólitík og alla hlutdrægni o. þ. h. Og í sambandi við ríkissáttasemjara er það að segja, að þá skipar atvmrh., og náttúrlega þá pólitískur ráðherra, sem getur sett hvaða pólitískan mann í það sem honum þóknast, sem getur unnið á hvern hátt sem vera skal. Þetta getur því verið allt saman jafnrammpólitískt, þó að verið sé að segja, að einhver ríkissáttasemjari eigi að starfa óhlutdrægt eða slíkt. Þarna er um það að ræða, hvort mögulegt er að réttlæta það fyrir einhvern flokk, sem fer með ríkisstjórn, að gefa út langar skýrslur á ríkisins kostnað til þess að láta koma fram einhliða álit manns, sem er kannske meira eða minna ákveðið á móti verkalýðnum í slíkum kringumstæðum. Það þýðir, að mjög líklega verður þá slíkt plagg agitationarplagg móti verklýðs-. félögunum.
Við leggjum til að síðustu, að 38.–69. gr. verði felldar burt, þ. e. allur kaflinn um félagsdóm. Hinsvegar höfum við ekki lagt til, að 70. gr. verði felld burt, um skaðabætur. Því að ef þessar brtt. okkar yrðu samþ., þá höfum við ekki á móti því, að 70. gr. standi, því að þá gæti hún komið niður á atvinnurekendum fyrst og fremst.
Víðvíkjandi kaflanum um félagsdóm vil ég segja það. að sérstaklega álit ég ákvæðið um skipun í hann alveg ófært. Ég hefi áður bent á það viðvíkjandi rétti verklýðssamtakanna þar, að það nær vitanlega ekki nokkurri átt að hafa áhrif þeirra svona lítil. Sérstaklega er ekki rétt að veita Alþýðusambandi Íslands þau einkaréttindi, sem þar er gert ráð fyrir. A. m. k. ætti að tryggja, að þau verklýðsfélög, sem utan þess stæðu, hefðu samsvarandi rétt til að eiga fulltrúa í dóminum.
Þá held ég, að ég hafi í höfuðatriðum skýrt okkar brtt. í sambandi við þetta frv. Ætla ég þá að koma hér að þeim brtt., sem þeir bera fram íhaldsmennirnir, hv. þm. Snæf. og hv. 8. landsk. Það var nú svo sem vitanlegt, hvernig þær brtt. mundu vera, sem kæmu úr því horninu. Þeir leggja þar til, að í staðinn fyrir orðið „atvinnurekendur og atvinnurekenda“ í frv. komi: vinnuveitendur og vinnuveitenda. Þetta virðist sumum ekki stórt mál. En er það nú rétt? Það, sem liggur bak við þetta orð, sem þeir vilja nota hér og nota sjálfir á nafni eins félagsskapar — þetta orð „vinnuveitendur“ er í raun og veru komið af hugmynd, sem er móðgandi við verkalýðinn og algerlega röng í þjóðfélagslegum skilningi. Það eru ekki þessir herrar, atvinnurekendurnir, sem veita atvinnuna, heldur taka á móti henni. Þeir, sem láta vinnuna í té, þ. e. veita hana, eru verkamennirnir. Það er þess vegna verið að rugla öllum hugtökum, þegar verið er að reyna að koma þessu orði „vinnuveitendur“ inn í l. Hér á árunum var mikið verið að nota önnur orð um þetta, sem voru „vinnuseljandi“ og „vinnukaupandi“ og önnur slík, sem voru að vísu rétt. Hinsvegar eru þau orð um þessa aðilja, sem komizt hafa inn í málið og náð þar festu, „atvinnurekendur“ og „verkamenn,“ sem ég álít rétt að halda fast við. Bak við orðið „vinnuveitendur“ er hugmynd þeirra, sem atvinnu reka, að þeir láti verkalýðnum vinnu í té eins og eitthvert náðarbrauð, svo sem einhverjir sérstakir hjálparmenn og velgerðamenn verkalýðsins, sem hjálpi verkalýðnum til að lifa, og verkalýðurinn eigi að vera þeim afarþakklátur fyrir og þess vegna að knékrjúpa fyrir atvinnurekendum og tigna þá fyrir. En sannleikurinn er sá, að atvinnurekendurnir, þessir menn, sem komizt hafa yfir peninga, og þá stundum nokkuð vandræðalega, þeir leggja í fyrirtæki, sem þeir halda, að þeir geti grætt á, og kaupa svo vinnu fátækra manna, sem ekkert hafa að selja annað en vinnuafl sitt. Þessir atvinnurekendur reyna að nota sér neyð verkamanna til þess að græða á þeim. En eins og orðið „atvinna“ er notað, er það rétt, og líka komið inn í málið að kalla þá atvinnurekendur, sem yfir atvinnutækjum ráða. Ég er því á móti þessari brtt.
Þá leggja þeir til, að upphafi 9. gr. frv. verði breytt á þá leið, að það séu ekki verklýðsfélögin, heldur mennirnir, sem á vinnustöðvunum vinna, sem eigi að tilnefna trúnaðarmenn. Ég er á móti þessu, þó að það sé gott, að verkamenn á viðkomandi vinnustöð hafi ýms réttindi. Og ég vil, að þeir ráði, hvor af þeim tveimur mönnum, sem verklýðsfélag tilnefnir, skuli verða þar trúnaðarmaður. En ég álit algerlega rangt, að þeir eigi að tilnefna trúnaðarmanninn skilyrðislaust, á þann hátt sem hér er gert ráð fyrir, því að verkamenn á einni vinnustöð geta verið alveg sérstaklega háðir atvinnurekandanum þar. og atvinnurekandinn getur þá miklu frekar haft áhrif á þá um valdið, sérstaklega frá stjórnmálalegu sjónarmiði. Þess vegna er ég algerlega á móti þessu ákvæði. — Hv. þm. Snæf. sagði hér áðan. að sér fyndist eðlilegast, að fólkið sjálft, sem á vinnustöðvunum vinnur, ætti að ákveða um þetta val. Ég er því samþykkur að því leyti, að fólkið eigi að ákveða, hvorn af tveimur eigi að hafa sem trúnaðarmann, sem stungið er upp á af verklýðsfélagi, og fremur en atvinnurekandinn.
Svo kemur í 3. lið brtt. þeirra íhaldsmannanna, b.- og e-liðum till., það, sem er táknandi fyrir þá. Það er auðséð, hverjir standa þarna að. Það á sem sé að halda því fram, að þetta skuli ekki ná til landbúnaðarverkafólks og ennfremur ekki til verkamanna á skipum eða bátum. Það á sem sé með þessu að undanskilja alla togara frá þessari löggjöf. Það er auðsjáanlega fyrir þessa herra þýðingarmikið, að togarasjómenn, og sérstaklega sjómannafélög, hafi ekki nokkra möguleika til að útnefna trúnaðarmenn á togurum. Og maður fer þá að skilja, hvað vakir þarna fyrir hv. þm. Snæf. Ef þetta verður samþ., þá þarf Kveldúlfur ekki að kvarta undan því, að trúnaðarmenn séu á togurum félagsins. Ekki þarf heldur Thor Jensen að kvarta yfir, að trúnaðarmaður sé á Korpúlfsstöðum. Það, sem þessir hv. þm. því fara fram á með þessum liðum brtt., er að undanskilja Kveldúlf og Korpúlfsstaði því, að trúnaðarmenn verkamanna þurfi nokkrir að vera meðal verkamanna, sem við þau fyrirtæki vinna. Ég get vel skilið þetta. Það hefir nefnilega verið siður hjá Kveldúlfi, sérstaklega undanfarin ár, að ef ráðamenn hans hafa komizt að því, að einhver af sjómönnum á togurum félagsins væri eitthvað „rauður“, þá að láta hann ekki vera lengi á skipi félagsins eftir það, heldur reyna að koma honum í land sem fyrst. Það er mjög skiljanlegt, að fulltrúi Kveldúlfs reyni að sjá til þess, að enga trúnaðarmenn verði hægt að hafa á þessum skipum, svo að ég ekki tali um, ef þessir trúnaðarmenn hefðu einhver réttindi, þannig að ekki væri hægt að reka þá í land hvenær sem atvinnurekandanum þóknaðist.
Annars þarf ég ekki að fjölyrða um þessar brtt. Þær eru, eins og við mátti búast, allar til hins verra. En þó verð ég að leggja sérstaka áherzlu á það, að í 12. lið brtt. þeirra er ríkissáttasemjara gefinn möguleiki til þess að fresta verkföllum sem mest. Ég er algerlega andstæður þessari brtt. Það er vitanlegt, að þessir tillögumenn vilja ganga sem allra lengst í því, að skerða verkfallsrétt verkamanna almennt, og bera þess vegna þessa till. fram. — 13. liður brtt. þeirra miðar að því sama, með því að ákveða, að hægt sé að útkljá í einn lagi, þótt margar atvinnugreinar eigi í deilum.
Þá er 17. liður brtt. þessarar, um að félagsdómur eigi að ákveða, hvort löglegt geti talizt verkbann eða verkfall, sem boðað hefir verið, og hvort ófullnægðar kröfur, sem slíkar ráðstafanir eru byggðar á, séu löglegar. Þetta ákvæði nær vitanlega ekki nokkurri átt. Ég býst við, eins mikið og hefir verið flaustrað fram í þessu máli, eins og litið móttækilegir flm. þess og þeir menn aðrir, sem harðast berjast fyrir framgangi þess, eru fyrir allar skynsamlegar ábendingar um breyt. á frv., að það muni ekki langt um liða, áður en þeir reka sig á það, að þessi l. verða nokkuð götótt.
Þá eru brtt. frá hv. 3. þm. Reykv. Þær brtt. miða að mörgu leyti í líka átt og brtt. okkar kommúnista, þó að þær gangi ekki eins langt í því, að draga úr því, sem er skaðlegast við þetta frv. Ég þarf ekki að fara ýtarlega út í þær, því að ég er búinn þegar að koma inn á efni flestra þeirra í sambandi við brtt. okkar kommúnista. Ég mun geta verið með a. m. k. flestum þeirra. En ég vil geta þess einnig í sambandi við þær brtt., að við kommúnistar erum á móti frv. sem heild, jafnt þó að við greiðum atkv. með þeim.
Nú vil ég segja í sambandi við þetta frv., að það virðist ekki vera neitt einstakt í sinni röð hér á Alþ. Það eru í raun og veru þrjú frv., sem hér liggja fyrir, sem öll miða í sömu átt. Frv. um iðnaðarnám miðar að því, að skerða réttindi sveinafélaganna. Frv. um breyt. á l. um atvinnu við siglingar miðar að því, að minnka öryggi sjómannanna og rýra atvinnu þeirra manna, sem á sjónum vinna. Og svo þarf ég náttúrlega ekki að minna á það fjórða, sem orðið er að l., gerðardómsl. Þetta frv., sem hér liggur fyrir, er því fjórða frv. á þessu þingi af stórum málum, sem öll miða að því, að láta rýra réttindi verkamannastéttarinnar til verkfalla og annars, og reyna að fjötra hana sem allra mest í hennar hagsmunabaráttu. Það er þess vegna alveg auðséð, að þessi frv. eru öll liður í einni samfelldri árás á verkamannastéttina í landinu. Þau miða öll að því, að beygja hana undir ok atvinnurekenda og reyna að láta dvína sem mest mótstöðukraft hennar til að verja sig gegn kúgun. Þó ganga gerðardómsl. lengst í þessu. Og það er hart að sjá það, að bæði í sambandi við gerðardómsl. og í sambandi við breyt. á l. um atvinnu við siglingar, og að ýmsu leyti í sambandi við breyt. á l. um iðnaðarnám, hafa 7 af þeim mönnum, sem kosnir hafa verið af alþýðunni sem Alþfl.menn staðið saman um að vera á móti þeim málum, þá eru þeir nú, hvað þetta mál snertir, algerlega að bregðast því trausti, sem kjósendur þeirra hafa sýnt þeim og verklýðssamtökin í landinu óska eftir, en berjast á þveröfugan hátt við óskir sinna kjósenda. Þó er hér um að ræða mál, sem er stórhættulegt verkalýðnum í landinu. Með þessari vinnulöggjöf, þegar hún einu sinni er sett, verður Íhaldið og hv. þm. S.-Þ., ekki lengi að færa sig upp á skaftið með að gera hana verri. Það mun ekki liða á löngu, áður en brtt. koma fram við hana, til þess að gera hana margbölvaðri en hún nú er samkvæmt þessu frv.
Nú hafa sumir af hægri mönnunum í Alþfl. talað um, að það mundi alveg eins hafa verið hægt fyrir afturhaldið að koma fram siðar svona 1. eða verri l. á Alþ., þó að þetta frv. væri ekki samþ. En það er ekki rétt. Það yrði ekki svo þægilegt fyrir afturhaldið. En það er miklu þægilegra, þegar búið er að brjóta skarð í múrinn, að fara þar inn fyrir fjandmanninn, heldur en að ráðast á vígið með óbrotnum múrum. Þetta frv. mun verka eins og Trójuhesturinn forðum. Hér er verið að véla verkalýðinn og nota þm. hans til þess, ef hægt sé að fá þá til þess að vinna skemmdarverk gagnvart honum. En ef hægt væri að fá þá til þess að fara að vilja verkalýðsins og berjast gegn þessu frv., þá er tvísýnt, að hinir flokkarnir mundu voga sér að setja það í gegn. Það er þess vegna vitanlegt, að ef þetta frv. verður samþ. nú, þá er það sérstaklega og fyrst og fremst á ábyrgð hægri mannanna í Alþfl., og það verður þá þeim, sem afturhaldið á það að þakka, ef það getur smeygt þessum fjötrum um háls verkalýðnum. Það er því ekki óeðlilegt, að afturhaldið fagni yfir því. En fyrir verkalýðinn mundi þetta þýða fyrst og fremst virkilega mikla skerðingu á rétti verkalýðsins til verkfalla, og það meira að segja þannig, sem getur varðað verkalýðinn afskaplega miklu. Þetta frv. hlýtur verkalýðurinn að líta á sem þrælalög og berjast á móti því sem slíkri lagasetningu. Þess vegna munum við kommúnistar nú við 2. umr. þessa máls greiða atkv. á móti þessu frv. sem heild, eins og við gerðum við 1. umr., og þá eins einstökum gr. þess.