26.04.1938
Neðri deild: 54. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 894 í B-deild Alþingistíðinda. (1332)

95. mál, stéttarfélög og vinnudeilur

*Ísleifur Högnason:

Ég mun ekki verða mjög langorður, enda er langt liðið á nóttina. En ég get ekki látið hjá líða að taka hér til máls, þar sem ég talaði ekki í málinu við 1. umr.

Í nál. mþn. er sagt, að l. þessi séu aðallega sniðin eftir danskri, norskri og sænskri vinnulöggjöf, en þó einkum byggð á „septembersættinni“ dönsku frá 1899. En þessi „septembersætt“ er svo til komin. að um 5000 atvinnurekendur lögðu verkbann á 40000 verkamenn, og biðu verkamennirnir ósigur að nokkrum mánuðum liðnum. Var þá þröngvað upp á sigraðan verkalýð ókjörum, hliðstæðum þeim nauðungarsamningum, sem sigruð þjóð er neydd til að undirskrifa að ófriði loknum. En alþýðuflokksforingjarnir, sem svo kalla sig, líta víst svo á, að nú sé alþýðan sigruð, af því að hún er sundruð vegna klofnings þeirra. Öðru vísi verður naumast skilin tilvitnun þeirra í „septembersættina“. Sem betur fer, er þessu þó ekki svo farið. Meiri hl. verkalýðsins hér á landi hefir lýst sig andvígan þessari vinnulöggjöf, og hefir langsamlega mestur hluti þeirra, sem hafa ekki algerlega hafnað frv., krafizt á því breytinga, eins og hv. síðasti ræðumaður tók réttilega fram.

Nú er viðurkennt, að þessi l. geta aldrei orðið annað en pappírsgagn, ef verklýðsfélögin ganga ekki að þeim. Hægri foringjarnir í Alþfl. hafa fyrir hvern mun viljað fá þessi l. sett og hafa með atvinnuhótunum neytt ýms verkalýðsfélög til að ganga að þeim. Á þennan hátt hafa þeir fengið fram samþykki nokkurra verklýðsfélaga á frv. þessu. Allt þeirra slúður um það, að ef þessi l. yrðu ekki samþ., þá myndi Framsókn koma í gegn, ásamt Íhaldinu, annari vinnulöggjöf, er út í bláinn. Framsókn hefði aldrei treyst sér til að koma á slíkri vinnulöggjöf í algerðri andstöðu við verkalýðinn. Og ef þessi l. verða sett, bera hægri foringjarnir, sem kalla sig Alþfl., algerða ábyrgð á því.

Atvinnurekendur hér í nágrannalöndunum hafa auðvitað ekkert við þá vinnulöggjöf að athuga, sem þar er í gildi, enda er það skiljanlegt, er menn heyra fulltrúa atvinnurekenda hér á þingi segja, um það frv., sem hér liggur fyrir, að það sé spor í rétta átt og í aðalatriðum samskonar og frv. það, er þeir hefðu áður borið. fram, sjálfstæðismennirnir.

Þegar athuguð eru einstök atriði frv., kemur í ljós, að það hefir ekki inni að halda neina réttarbót til handa verkalýðnum, þrátt fyrir yfirlýsingar hv. flm., enda hafa þeir ekki getað bent á neitt til sönnunar því, að um réttarbætur væri að ræða. Í 1. gr. er að vísu sagt, að menn hafi rétt til að stofna stéttarfélög. En er það ekki þegar leyft í stjórnarskrá landsins? Menn eru, samkvæmt henni, frjálsir að því að mynda slík samtök með sér. (BJ: Þau verða að vera lögleg!). Öll slík samtök hér á landi eru lögleg, enda hefir ekkert verkalýðsfélag hérlendis verið dæmt ólöglegt. — Að stéttarfélögin skuli vera opin öllum, er sæti reglum félaganna, er heldur ekkert nýtt. Það hefir viðgengizt hér fram til þessa.

Í 3. gr. kemur strax í ljós réttarskerðing félaganna. Þau skulu aðeins fá að ráða málefnum sínum með þeim takmörkunum, sem þar eru settar. — Ákvæðið um, að meðlimir skuli vera bundnir samþykktum félaganna, er óþarft. Svo hefir alltaf verið.

Þá eru ákvæðin um ábyrgð stéttarfélaganna út af samningsrofum. Það hefir verið óþekkt fyrirbæri hér á landi, að dómstólarnir hafi gengið að eignum félaganna, en með þessu frv. er opnuð leið til þess. Hv. þm. N.-Ísf. sagði, að eignir félaganna væru ekki undanskildar þessu í l. neins lands. Þetta er engan veginn rétt. Í löggjöf Frakklands t. d. eru húseignir og sjóðir félaganna undanþegin slíku.

Aðalröksemdin, sem fram hefir verið borin til réttlætingar því, að Alþfl. skuli styðja þessa löggjöf, er sú, að annars væri hætta á samkomulagi milli Íhaldsins og Framsóknar um að koma á vinnulöggjöf. Með svona loddaraskap má auðvitað réttlæta stuðning sinn við hvað sem er. Það má ef til vill blekkja einstaka menn með slíku, en haldgóð rök eru það ekki. Annars var auðheyrt á hv. þm. N.-Ísf., að samvizka hans var ekki sem bezt vegna frv. Hann kvað sig óánægðan með það að ýmsu leyti. En samt mælir hann með því, í stað þess að leggjast á móti málinu.

Eina leiðin til að koma í veg fyrir þessa vinnulöggjöf er að sameina verkalýðinn um það að viðurkenna hvorki frv. þeirra hægri foringjanna og Framsóknar né heldur frv. Íhaldsins. Þingið þyrði ekki að samþ. vinnulöggjafarfrv. Íhaldsins 1929, af því að verkalýðurinn og foringjar hans voru á móti því. Framsókn er það ekkert meira áhugamál nú en þá að koma á vinnulöggjöf. Það eru einungis hægri foringjarnir, sem með hjálp sinni við atvinnurekendur gera það nú mögulegt að fá þetta mál samþ. hér á þingi.

Maður hefði getað búizt við því, ef þetta frv. væri til óþurftar atvinnurekendum, að einhverjar aths. kæmu frá fulltrúum þeirra, t. d. um kostnað þann, sem af löggjöfinni myndi leiða. Hér er líklega um að ræða 20000 kr. árlegan kostnað eða meira. Ef atvinnurekendur skoðuðu sér ekki mikinn hag að þessari löggjöf, þá myndu þeir eflaust hafa haft það á oddinum, að hér væri verið að efna til stóraukinna útgjalda með nýjum bitlingum o. s. frv.

Þá eru nokkur atriði í ræðu hv. þm. Barð. Hann sagði, að fæstir réðu, hvaða laun þeir hefðu fyrir starfa sinn, og vildi með því gefa í skyn, að verkamönnum væri ekki vandara um en öðrum. Ég veit nú ekki betur en að Framsókn, sem ræður hér ríkjum um þessar mundir, hafi aðstöðu til að ráða því, að minnsta kosti að því er embættismennina snertir, hver launin séu. (BJ: En þeir hafa ekki verkfallsrétt!). Hv. þm. getur því farið í sinn eigin barm með það, hvort ekki sé eðlilegt, að verkamenn vilji einnig, að þeirra samtök geti ráðið kaupgjaldi því, er þeir verða að vinna fyrir, — hvaða verði þeir vilja selja sína vinnu. En hv. þm. hefir ekki komið fram sem fulltrúi þessara manna, heldur atvinnurekenda, þó að meiri hl. kjósenda hans séu alþýðumenn, sem hafa hag af því, að réttur þeirra til verkfalla sé ekkí skertur.

En aðalagnúinn á þessum l. er þó sá, að menn eru ekki frjálsir að því, hvort þeir selja yfirleitt vinnu sína eða ekki. Í 16 gr. er ákvæði um, að ekki megi leggja niður vinnu nema með 7 daga fyrirvara. Þar með er réttur manna til að gera verkföll raunverulega afnuminn, og menn ern ekki settir hærra í þjóðfélaginu en þrælar. Er í sjálfu sér ekki mikill eðlismunur á því, hvort menn eru pískaðir til að vinna með svipum eða neyddir til þess með hótunum um fjárútlát eða fangelsi, er þeir muni sæta, ef þeir vinni ekki eins og atvinnurekendum þóknast.

Hjá hv. þm. N.- Ísf. var það misskilningur, er hann sagði, að við kommúnistar kærðum okkur ekki um þessa trúnaðarmenn á vinnustöðvunum og teldum þá. þýðingarlausa. Er ekki hægt að skilja slíkt af brtt. okkar. Þá er það ekki heldur rétt, að við viljum ekki vinnulöggjöf, sem væri til bóta fyrir verkalýðinn. Ef okkar till. yrðu samþ., myndum við láta okkur vel líka. Löggjöfin væri þá orðin verkalýðnum til hagsbóta. En við viljum engan veginn ganga að vinnulöggjöf, þar sem réttur verkalýðsins er skertur.

Þá eru ákvæðin um lýðræðið. Það kemur einkennilega fyrir sjónir, er hv. formælendur frv. halda fram þeirri kenningu, að það sé ekki samkvæmt lýðræðisreglum, að meiri hl. þeirra, er ákvörðun vilja á annað borð taka, skuli ráða. Eftir íslenzku stjórnarskránni er það t. d. ekki talið nauðsynlegt, að allir kjósendur neyti atkvæðisréttar sins. Ef t. d. helmingur kjósenda hér í Reykjavík kýs, en hinir sitja heima, ræður meiri hl. þessa helmings úrslitum. Aftur á móti er í þessum l. gert ráð fyrir, að þeir láti þessi mál ekki til sín taka. Það er þess vegna óframbærileg röksemd af hálfu þeirra manna, sem mæla með þessari gr., að mæla með henni á þeim grundvelli, að hún sé samkvæmt lögum lýðræðisins. (VJ: Hvernig er það í kaupfélaginu í Vestmannaeyjum?). Það er nákvæmlega eins og í öðrum félögum, að meiri hluti þeirra, sem mæta á fundi, ræður úrslitum mála. Ég hefi ekki séð þetta í annari lagasetningu en hér í þessu frv.

Þá talaði hv. þm. Barð. um það, að sami réttur væri til að gera upptæka sjóði atvinnurekenda og sjóði verkamanna. Hann gerir þá ráð fyrir, að atvinnurekendafélögin stofni einhverja líknarsjóði, sem hægt sé að ganga að, til að láta þau greiða sektir. Þessari kenningu er vitanlega ekki hægt að svara, því að hún er svo brosleg. Það kemur yfirleitt ekki til neinna mála, að atvinnurekendur fari að stofna slíka sjóði til þess að láta þá, sem aðfararréttinn hafa, hafa til þess að ganga að.

Þá sagði þessi sami hv. þm., að ef þessi l. hefðu verið búin að öðlast gildi, þegar benzínverkfallið varð hér um árið, þá hefði það ekki komið til, að slíkt verkfall hefði orðið. Það kemur úr hörðustu átt, að hv. þm. skuli fagna því, að Alþ. ætlar nú að samþ. l., sem geti hindrað það, að verkamenn geri verkfall gegn því, að Alþ. samþ. l., sem eru til stórtjóns fyrir almenning í landinu. En þetta benzínverkfall, sem hv. þm. talar um, er búið að færa inn í landið mörg hundruð þúsund krónur í gróða af benzíninu, þar sem olíufélögin urðu að borga skattinn. Ég sé því ekki, hvernig hv. þm. getur notað þetta atriði til að mæla með þessu frv.

Þá er það ákvæðið um skipun félagsdóms. Ég man ekki betur en að fyrir tæpum mánuði siðan hafi málsvarar Alþfl. hér á þingi álitið það mjög varhugavert framferði af framsóknarmönnum, að vilja skipa gerðardóm í vinnudeilum, sem skipaður væri mönnum, útnefndum af hæstarétti. Nú er gert ráð fyrir því í þessu

frv., að hæstiréttur skipi 2 menn í félagsdóm, og ætti það þá eftir sömu forsendum og áður að vera alveg ófært. Það er líka alveg rétt, að þeir eru vilhallir Það hefir a. m. k. sýnt sig, að hæstiréttur hefir dæmt verkamenn í þungar sektir, ef þeir hafa átt í erjum við atvinnurekendur. Þessi félagsdómur hlýtur því eftir l. að vera vilhallur í dómum sínum. Ég geri því ekki upp á milli þess, hvort það eru þeir dómarar, sem nú fara með lögreglumálin, eða þeir dómarar, sem frv. gerir ráð fyrir. Ég geri ekki mikinn mun á því, hvorir fara með þessi mál. Ég geri ráð fyrir, að ef verkamenn eiga undir þá að sækja, þá verði þeirra dómur ekki biðdómur, eða a. m. k. hefir reynslan sýnt það.

Þá minntist hann á það, að þegar til þess kæmi, að dæma eftir þessum l., þá myndu dómendurnir hengja sig í ummæli andstæðinga l. og túlka þau samkvæmt þeim. Ég hefi aldrei heyrt þessa kenningu fyrr en ég sá hana í Alþýðublaðinu, að dómarar dæmdu eftir túlkun andstæðinga l., en ekki eftir bókstaf 1. Ég hélt, að það væri viðtekin regla að dæma eftir bókstaf l., en ekki eftir því, hvaða skilning andstæðingar þeirra legðu í þau.

Það væri æskilegt, að það kæmi skýrar fram í l. ýmislegt það, sem hv. þm. N.-Ísf. vildi láta skína í, að væru réttarbætur í l. Það væri æskilegt, að það væri skýrar fram tekið, hverjar þær réttarbætur væru, svo að það færi ekki fram hjá neinum. Hann sagði meðal annars, að með hæfilega fjölmennu trúnaðarmannaráði væri hægt að koma á skyndiverkfalli. Það getur verið, en ég hefi ekki lesið þessi l. svo í kjölinn, að ég hafi getað fundið það. Ég held, að það sé hvergi gefið í skyn í þessum l., að hægt sé að gera skyndiverkfall. Það eru þvert á móti tekin fram skilyrðin fyrir því, að hægt sé að gera verkfall yfirleitt, og það er hvergi minnzt á það, að hægt sé að gera skyndiverkfall. Það segir í 17. gr., að óheimilt sé að hefja vinnustöðvun:

1. Ef ágreiningur er einungis um atriði, sem félagsdómur á úrskurðarvald um, nema til fullnægingar á úrskurðum dómsins.

2. Ef tilgangur vinnustöðvunarinnar er að þvinga stjórnarvöldin til að framkvæma athafnir, sem þeim lögum samkvæmt ekki ber að framkvæma, eða framkvæma ekki athafnir, sem þeim lögum samkvæmt er skylt að framkvæma, enda sé ekki um að ræða athafnir, þar sem stjórnarvöldin eru aðili sem atvinnurekandi.

3. Til styrktar félagi, sem hafið hefir ólögmæta vinnustöðvun.

Í öllum þessum tilfellum er ekki hægt að hefja vinnustöðvun. Það væri mjög æskilegt, að hv. þm. N.-Ísf. upplýsti betur, með hvaða hætti mætti gera skyndiverkfall, og það væri æskilegt, að fá hrein ákvæði um það í l., hvenær megi koma því við, því að öðrum kosti býst ég við, að enginn þyrði að leggja út í slíkt.

Hann sagði líka, að mótmælaverkföll hafi verð gerð, og menn hafi ekki verið dæmdir fyrir það eitt að gera verkfall, því að menn hafa rétt til þess til þess tíma. En í l. er ekkert sérstaklega tekið fram um, að það megi gera mótmælaverkfall. Það er réttur, sem menn hafa áður haft.

Þá er það 28. gr., sem ég vildi gera þá aths. við, að mér þætti gaman að vita, af hvaða ástæðum niðurlag hennar er orðað eins og þar er gert. Þar er bannað að skýra frá eða leiða vitni um, hvað aðiljar hafa lagt til á sáttafundum, nema báðir aðiljar samþykki. Ég fæ ekki séð, til hvers á að halda þeim tillögum leyndum. Ég álít heppilegt fyrir verkamenn að fá að vita. hvaða afstöðu atvinnurekendur taka til þeirra deilna, sem uppi eru á hverjum tíma, svo að þeir geti fylgzt með, hvernig málin standa.

Í 64. gr. segir, að séu atkvæði jöfn, ræður atkvæði formanns úrslitum. En það er gert ráð fyrir því í 48. gr., að dómurinn sé ekkí starfhæfur, nema hann sé fullskipaður. Ég sé því ekki, hvað það á að þýða í 64. gr., að atkvæði formanns ráði úrslitum, því að samkvæmt l. eiga 5 menn að vera í dómnum, og þar er hann ekki talinn starfhæfur, nema allir séu í honum.

Um skyldur dómara og sáttasemjara er ekki neitt fram tekið í 1. Það væri þó ástæða til að þeir menn, sem eru á launum hjá ríkinu, hefðu einhverjar skyldur og það væri hægt að koma fram ábyrgð á hendur þeim, ef þeir væru vilhallir eða ranglátir í sínum gerðum.

Ennfremur er í 32. gr., þar sem talað er um. að atkvgr. eigi að vera leynileg, engin trygging fyrir því í l., að atkvgr. megi ekki falsa. Það þyrfti ákvæði um, að atkvæðaseðlarnir væru tölusettir og auðkenndir, svo að verklýðsfélögin væru tryggð fyrir því, að sáttasemjari sýndi ekki aðra atkvæðaseðla en greiddir hefðu verið. Í l. er engin trygging fyrir þessu, en frá verklýðsfélögunum, sem óskað hafa breyt. á 1., hefir einkum komið fram ósk um, að ekki væri hægt að koma fölsunum við. Þetta hefir ekki verið tekið til greina, en það hefði kostað lítið að koma inn í l., fyrst á að lögfesta þau á annað borð, ákvæði um það, hvernig atkvgr. skuli fara fram, svo að tryggt sé, að atkvgr. sé ekki fölsuð. Í kosningalögunum er tryggilega gengið frá þessu, og þar þótti ekki annað tryggt en að seðlarnir væru númeraðir. Það væri eðlilegt, að hér væri hið sama látið gilda.